Prófalota í VMA

8
LKN stundaskrá in 1 Fyrirkomulag, prófstofur, aðstoð í prófi og tímasetningar. Prófalota í VMA

description

Prófalota í VMA. Fyrirkomulag, prófstofur, aðstoð í prófi og tímasetningar. Tímasetningar prófa. Í próftöflu eru tveir próftímar á hverjum degi, kl. 8.15 - 9.45 og kl. 14.00 – 15.30 Próf í UTN og í verkgreinum á öðrum tíma. Mikilvægt að skoða próftöfluna sjálf(ur). - PowerPoint PPT Presentation

Transcript of Prófalota í VMA

Page 1: Prófalota í VMA

LKN stundaskráin 1

Fyrirkomulag, prófstofur, aðstoð í prófi og

tímasetningar.

Prófalota í VMA

Page 2: Prófalota í VMA

LKN stundaskráin 2

Tímasetningar prófa Í próftöflu eru tveir próftímar á hverjum degi,

kl. 8.15 - 9.45 og kl. 14.00 – 15.30 Próf í UTN og í verkgreinum á öðrum tíma. Mikilvægt að skoða próftöfluna sjálf(ur). Ekki trúa því sem vinur eða kunningi segir um

próftíma, það er of algengt að vinirnir geri mistök og nemandi komi á röngum tíma í próf.

Þú átt að taka þitt eintak af próftöflunni og geyma heima, hengja upp og merkja inn þannig að hinir á heimilinu/herberginu viti að þú átt að fara í próf.

Page 3: Prófalota í VMA

LKN stundaskráin 3

Hvað er verið að prófa? Í prófi er ekki verið að meta það hvort einhver

er góð manneskja. Í prófi er ekki verið að prófa hvort einhver er

góður nemandi. Í prófi er bara verið að prófa hvernig

nemandanum gengur að gera það sem beðið er um á prófinu.

Þú verður að leyfa kennara að sjá hvað þú getur, kennarinn má ekki meta eitthvað sem ekki er að finna í svörunum þínum.

Page 4: Prófalota í VMA

LKN stundaskráin 4

Prófstofur Uppröðun borðanna er breytt og hver nemandi

situr við stakt borð. Á töflu í anddyri (þar sem stiginn er) verða

listar um það í hvaða stofu prófin verða. Listarnir verða hengdir upp fyrir hvern dag. Hver hópur getur skipst í stofur, ekki víst að þú

sért í sömu stofu og einhver sem er í sama hópi. Skoða vel.

Athugið að eftir próf eiga nemendur að fara úr álmunni. Ekki auka álagið á félagana með því að hanga við stofuna og bíða eftir þeim.

Page 5: Prófalota í VMA

LKN stundaskráin 5

Upphaf prófs. Einn starfsmaður situr yfir í prófi, kemur með

prófblöðin, tekur manntal og dreifir prófunum. Sá/sú sem situr yfir á að taka alla síma sem

sjást í stofunni. Slökkva á öllum símum. Ef nemendur eru með eitthvað sem ekki má

hafa með þá er það tekið af borðinu. Biðja þann sem situr yfir um aðstoð.

Page 6: Prófalota í VMA

LKN stundaskráin 6

Aðstoð í prófi

Kennarinn í áfanganum kemur í stofuna. Ekki hægt að treysta á að hægt sé að ná

í kennarann hvenær sem er. Kennarinn ákveður hverju má svara,

kennarinn leysir ekki prófið. Láta yfirsetumann vita ef þér líður illa,

betra að fara fram og jafna sig en að líða illa í prófinu.

Page 7: Prófalota í VMA

LKN stundaskráin 7

Svindl !!!!!!

Nemandi sem er uppvís að því að svindla, fellur í áfanganum.

Yfirsetukennari eða kennarinn í áfanganum lætur áfangastjóra vita um svindl, nemandanum er þá vísað úr prófi.

Því miður er alltaf einhverjum nemendum vísað úr prófi vegna þess að svindlið kemst upp. Er líklegt að hægt sé að bjarga sér á svindli?

Page 8: Prófalota í VMA

LKN stundaskráin 8

Skila úrlausn. Nemendur verða að merkja blöðin með

nafninu sínu og kennitölu. Fullt nafn en ekki bara hluti nafns.

Oftast á að skila öllu sem fylgdi prófinu. Lesa fyrirmæli vel. Finnst þér líklegt að þú

fáir mikið fyrir svarið ef þú veist ekki hvaða spurningu þú ert að svara?

Athugaðu hvort þú ert búinn að svara öllu sem var spurt um í hverri spurningu.

Bíða eftir að sá/sú sem situr yfir hafi tekið við úrlausninni, ekki leggja blöðin bara einhversstaðar frá þér.