Post on 23-Mar-2016
description
Fimmtudagur 1. desember 2011 www.eystrahorn.is
Eystrahorn43. tbl. 29. árgangur www.eystrahorn.is
Föstudaginn 2. desember kl. 20 mun Jón Viðar Sigurðsson, jarðfræðingur og ritstjóri Árbókar Ferðafélags Íslands, flytja erindi í Hofgarði í Öræfum. Jón Viðar mun í máli og myndum segja frá berghlaupinu sem féll á Morsárjökul árið 2007. Hann fór á vettvang í maí 2007 til að rannsaka og mæla skriðuhlaupið og hefur síðan fylgst reglulega með ferðalagi og þróun skriðunnar sem hvílir á jöklinum. Rannsóknirnar hafa leitt margt forvitnilegt í ljós. Skriðan er áhugavert fyrirbæri sem skemmtilegt er að skoða enda er umhverfi Morsárjökuls stórfenglegt. Í seinni hluta sýningarinnar mun Jón Viðar sýna myndir sínar frá Grænlandi en hann hefur ferðast vítt og breytt um byggðir og óbyggðir Grænlands s.l. 30 ár við leik og störf. Hann þekkir því vel til landsins og hefur heimsótt staði sem fáum er kunnugt um. Náttúra Grænlands er stórbrotin og á margt sameiginlegt með Öræfasveit. Áætlað er að dagskráin vari í tvær klukkustundir og verða veittar kaffiveitingar í hléi. Allir eru velkomnir og aðgangseyrir er enginn.
Morsárjökull - GrænlandErindi í Hofgarði föstudaginn 2. desember kl. 20:00
Áætlunarflug Skipulagðar ævintýraferðirLeiguflug
bókaðu flugið á ernir.is
blessuð jólinBráðum koma
GjafabréfGefðu flug til áfangastaða okkar eða gjafabréf með upphæð að eigin vali.
JólapakkatilboðAllir jólapakkar undir 10 kíló aðeins 1.700 kr. hver sending
Gjafabréf
Jón Viðar á vettvangi. Mynd: Guðmundur Ögmundsson
Fimmtudagur 1. desember 2011 www.eystrahorn.isEystrahorn
Vildaráskriftina má greiða í LandsbankanumHornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811 Kt. 240249-2949
Eystrahorn
Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249
Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. albert@eystrahorn.isPrófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent
ISSN 1670-4126
Til söluTil sölu eru líkamsræktartæki stig/róðravél og göngubretti, tvö sjónvörp 28" Philips og Sanyo. Upplýsingar s. 892 8890 og netfang sjalf@simnet.is.
kemur út þriðjudaginn 20. desember
Þeir sem óska eftir að senda jólakveðjur, auglýsa eða fá birt efni í jólablaðinu eru beðnir að hafa samband við ritstjóra sem fyrst í tölvupósti: albert@eystrahorn.is.
Hafnarkirkja Sunnudaginn 4. desember
2. sunnudag í aðventu Aðventukvöld kl. 20:00
Kórsöngur - Hljóðfæraleikur Barnakór Hornafjarðar syngur
Kristín Jónsdóttir á Hlíð flytjur hugvekju Komið og njótið notalegrar stunda á aðventunni
Sóknarprestur
Hofskirkja Sunnudaginn 4. desember
2. sunnudag í aðventu
Aðventumessa kl. 14:00 með þátttöku skólabarna Eigum saman notalega stund á aðventunni
Sóknarprestur
Fjölskyldu- og jólatrésdagur í HaukafelliSunnudaginn 11. desember nk. kl 11:00 - 15:00
Jólasveinar, kakó
og kökur
Allir velkomnir
Jólablað Eystrahorns
Vorum að fá jólagjafapakka frá Wella og Sebastian þú kaupir sjampó og næringu og færð 3 vöruna frítt
Einnig úrval af sléttu og krullujárnum bæði stór og lítil
Erum með brúnkusprey frá Su do sem er í tveimur litatónum fyrir bæði ljósa og dökka húð
Jóna Margrét er komin aftur til starfa eftir fæðingarorlof
Verið velkomin
JM Hárstofa Vesturbraut 2 • Sími 478 1780
Markaðsstemning á föstudag og laugardag
TAX FREE af ölluM vörumOpið á laugardag kl. 11:00 - 17:00
Verslun Dóru
Kaffi Hornið á aðventu Helgin 3. - 5. desemberLaugardagur kl. 14:00 - 16:00
Belgískarvöfflur með sýrópi og kaffi/kakó. Um kvöldið verður jólahlaðborð - Fullbókað.
Sunnudagur kl. 15:00 - 17:00
Aðventukaffihlaðborð
Vegna mikillar aðsóknar verður bætt við jólahlaðborði föstudagskvöldið 9. desember og eru örfá sæti laus.
Minnum á jólamatseðillin sem verður í gangi allan desember.
Verið velkomin Starfsfólk Kaffi Hornsins
Skógræktarfélag Austur - Skaftfellinga
Mikið af fallegum jólavörum fyrir konur og karla
Jakkaföt, frakkar, kjólar, pils, blússur, veski, skart, ilmur, og margt margt fleira
Sjón er sögu ríkari.
Verðum með opið til kl. 21:00
fimmtudag 1.desember þann dag verður 15%
afsláttur af öllum vörum
Verið velkomin
Fimmtudagur 1. desember 2011 www.eystrahorn.isEystrahorn
Aðventan er komin með sinn góða blæ. Skammdegið er lýst upp með fallegum ljósum sem minna okkur á komu jólanna. Og margt annað gerir mannfólkið hér til að takast á við dimmu daganna. Vinnufélagar, fjölskyldur og vinir koma saman á svokölluð jólahlaðborð eða þá að farið er á tónleika, sýningar, aðventukvöld eða eitthvað annað sem veitir andlega hressingu. Á aðventunni erum við líka minnt á þá sem minna mega sín og eru að nokkur leyti háð velvild annars fólks. Samhjálp hefur það markmið að styðja við og koma áfram því fólki sem hefur ýmissa hluta vegna farið halloka í lífsbaráttunni. Samhjálp hefur starfað frá árinu 1973. M.a. rekið meðferðarheimilið í Hlaðgerðarkoti og Kaffistofu Samhjálpar að Borgartúni 1 en þar fær fátækt fólk heimilislegar máltíðir alla daga ársins. Aðsókn fer vaxandi og voru heimsóknir alls um 42.000 á síðasta ári. Samhjálp mun líka gera vel við aðra skjólstæðinga sína í mat um jólin og áramót. Það er fólkið okkar sem býr á Sporinu og Brú, stuðningsbýlum okkar, en þar búa 36 manns sem munu eiga sameiginlega jólamáltíð með þeim sem eru í meðferð í Hlaðgerðarkoti yfir jólin. Þó starfsemin fari að öllu leyti fram á höfuðborgarsvæðinu þá nýtur hennar fólk hvaðanæva af landinu. Þetta krefst mikilla útgjalda og búnaðar og til þess að allt gangi upp þurfum við stuðning sem margir hafa veitt. En herða verður róðurinn svo jólamánuðurinn gangi alveg upp. Ein fjáröflunarleiðin er happdrættið. Sá sem kaupir miða í happdrættinu er um leið að gefa sem svarar þrjár máltíðir. Sú gjöf er blessun þeim sem fær og líka hinum sem gefur því Guð blessar góðan gjafara. Ungt knattspyrnufólk úr Sindra, sem er að safna fyrir keppnisferð til Noregs, hefur tekið að sér að selja happdrættismiðana á Hornafirði. Við vonum að fólk taki vel á móti þeim. Styrktarfélag Samhjálpar tekur á móti framlögum starfinu til framdráttar. (kt. 690104-2880. Rnr. 101- 26 – 31880). Samhjálp óskar þess að aðventan verði öllum hlý og góð og að friður verði á öllum heimilum landsmanna um jól og áramót.
Margir þurfa hjálp
Á dögunum fór fríður hópur krakka frá fimleikadeild Sindra á mót í almennum fimleikum sem haldið var í Hveragerði. Í keppni ellefu ára krakka á stökki varð Guðrún Ása Aðalsteinsdóttir í fyrsta sæti, Tinna Marín Sigurðardóttir í öðru, Guðný Árnadóttir í fjórða og Ylfa Beatrix N. Stephensdóttir í fimmta. Á dýnu var Guðrún í öðru sæti, Tinna í þriðja, Ylfa svo í fimmta og Guðný í sjötta. Á trampólíni náðu stúlkurnar því miður ekki á pall en Tinna endaði í fjórða sæti, Guðný í fimmta, Guðrún í sjötta og Ylfa í sjöunda. Í keppni tíu ára krakka kepptu fjórar stelpur og fjórir strákar. Á golfi (í dansi) varð Hafdís Ýr Sævarsdóttir þriðja og Hafdís Rut Vilhjálmsdóttir fimmta. Á dýnu varð Malín Ingadóttir þriðja. Á stökki varð Malín fjórða, Hafdís Rut fimmta og Hafdís Ýr sjötta. Strákarnir náðu ekki á pall en Hafsteinn Elvar Aðalsteinsson varð fjórði bæði á dýnu og trampólíni og Kristján Bjarki Héðinsson varð í fimmti á trampólíni. Í keppni þrettán og fjórtán ára kepptu sex krakkar. Sigrún Salka Hermannsdóttir varð önnur á trampólíni og Arney Bragadóttir fjórða. Í keppni níu ára krakka voru sex keppendur. Á golfi (í dansi) varð Eydís Arna Sigurðardóttir önnur og María Romy Felekesdóttir fimmta. Á dýnu var Eydís Arna í fyrsta sæti, Arnrún Mist Óskarsdóttir þriðja, Gréta Sól Ingólfsdóttir fimmta, Hildur Margrét Björnsdóttir sjötta, María Romy áttunda og María Andersen tíunda. Á trampólíni varð María Romy fimmta og María Andersen sjöunda. Á sunnudeginum var Meistaramót. Á það komust 10 hæstu einkunnir á hverju áhaldi, óháð aldri. Á þetta mót komust Guðrún Ása Aðalsteinsdóttir á stökk og dýnu, Tinna Marín Sigurðardóttir á stökk, Sigrún Salka Hermannsdóttir og Arney Bragadóttir á trampólíni. Guðrún Ása varð tíunda á dýnu en hún var þar að keppa við stelpur sem voru eldri. Á stökki gerði Guðrún sér lítið fyrir og varð þriðja og Tinna Marín sem einnig er 11 ára varð sjöunda. Þær Sigrún Salka og Arney stóðu sig einnig mjög vel á trampólíninu, Sigrún varð þriðja og Arney fjórða. Ekki nóg með að árangurinn hafi verið frábær heldur voru allir keppendur deildinni til sóma hvar sem við komum. Fyrir hönd þjálfara og stjórnar vil ég þakka krökkunum fyrir flotta helgi og einnig þeim foreldrum sem komu með og aðstoðuðu við þetta allt saman.
Kristinn Þór Guðlaugsson
Fimleikakrakkarnir stóðu sig vel
JólatónleikarKvennakórs Hornafjarðar
verða haldnir í Mánagarði miðvikudaginn 7.desember kl 20:00
Að venju er dýrlegt kaffihlaðborð hlaðið tertum, brauðréttum og fleiri gómsætum réttum
Verð er kr. 2000 á mann en frítt fyrir 12 ára og yngri
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest
Kvennakór Hornafjarðar
Fimmtudagur 1. desember 2011 www.eystrahorn.isEystrahorn
HúsgagnavalSími 478 - 2535 / 898 - 3664
Í baráttunni fyrir mannréttindum átt þú öflugt vopn. Vopn sem getur breytt heiminum.NAFNIÐ ÞITT. Nýttu það til að skrifa undir bréf til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi. Þú getur einnig sent kveðjur til fórnarlamba mannréttindabrota. Undirskrift þín hefur meira vægi en þú heldur. Breyttu heiminum og vertu með í bréfamaraþoni Amnesty International í Nýheimum, Höfn í Hornafirði, 3. desember frá 11–16.
FJÖLMENNUM Í ÞÁGU FÓRNARLAMBA MANNRÉTTINDABROTA
TIL BJARGAR LÍFIBRÉF
Jólahlaðborð á Hótel Höfn
laugardaginn 10. desember
Verð 6.900,- Nánari upplýsingar
og miðapantanir í síma 478-1240
Jóla-tónlistardagskrá á vegum Hornfirska skemmtifélagsins
Ný sýning opnar í fremra rými Listasafns Hornafjarðar þann 2. desember klukkan 16:00. Sýningin er yfirlitssýning á verkum Elínborgar Pálsdóttur sem er heimamönnum góðkunn fyrir fjölbreytt verk sín, sem prýða mörg heimili í sveitarfélaginu og víðar. Elínborg hóf að mála fyrir um 30 árum, eftir að hún sótti myndlistarnámskeið hjá Margot Gamm og hún hefur málað alla tíð síðan. Verkin á sýningunni eru frá árinu 1982 til ársins 2011 og það sem er einkennandi við verkin er að þau eru máluð á rekavið og tunnufjalir. Öll verkin á sýningunni eru í einkaeigu og mun sýningin standa út desember. Listasafnið er opið alla virka daga frá klukkan 9:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30 og er aðgangur ókeypis.
Sýning á verkum Elínborgar Pálsdóttur
Fimmtudagur 1. desember 2011 www.eystrahorn.isEystrahorn
Eins og undanfarin ár hafa slökkviliðin í landinu staðið fyrir eldvarnarátaki um land allt, þar sem slökkviliðsmenn láta til sín taka við að fræða æsku landsins um helstu hættur í umgengni við eld og eldvarnir á heimilum og í víðari skilningi. Eldvarnabandalagið hefur gefið út ítarlega handbók um eldvarnir heimilanna og hefur henni síðan verið dreift í verulegu upplagi. Handbókin hefur að geyma ítarlegar upplýsingar um eld-varnir heimilanna og hægt er að finna þennan bækling á heimasíðu eldvarnareftirlitsins og hvetjum við ykkur til að kynna ykkur hann. Að undanförnu hefur eldvarnareftirlitsfulltrúi unnið að gerð nýrrar rýmingaráætlunar fyrir Grunnskóla Hornafjarðar þar sem tekið er á helstu þáttum um rýmingu eða annarri vá sem gæti komið upp í skólanum, þar sem eldur eða annað neyðarástand getur komið upp er betra að vera undir það búinn. Í eldi og reyk eru mannslíf í hættu auk eigna og annarra fjármuna. Besta leiðin til að komast hjá alvarlegu tjóni er að hafa tilbúna svokallaða neyðaráætlun eða rýmingaráætlun. Í þessari neyðaráætlun er greint frá leiðum til þjálfunar starfsmanna og nemenda við að vinna ákveðin verk sem framkvæma þarf ef eldsvoði kemur upp, svo sem að aðstoða við rýmingu, taka virkan þátt í rýmingu, slökkva eld, veita fyrstu hjálp ef þörf krefur, auk annarra verka sem falla innan neyðaráætlunarinnar. Eitt af fyrstu skrefum í gerð neyðar-áætlunar er að huga að öryggi fólks sem dvelur í byggingunni á hverjum tíma. Síðan er hugað að
byggingunni sjálfri, starfseminni og umhverfinu. Þegar neyðar-ástand skapast þarf mikið af upplýsingum að koma fram á skömmum tíma. Mikilvægast af öllu er að vita hvað á að gera því tíminn getur verið knappur í neyðartilfellum og hver mínúta skiptir máli. Því er mikilvægt að hafa allar upplýsingar handbærar. Það er betra að vera búinn að gera ráð fyrir neyðarástandi og geta gengið að öllum gögnum á vísum stað. Neyðaráætlunin er einnig fyrir björgunarlið og slökkvilið. Markmið neyðaráætlunarinnar er að starfsfólk verði betur meðvitað um brunavarnir og neyðaráætlun á sínum vinnustað. Hægt er að finna áætlunina í heild sinni á heimasíðu Hafnarskóla. Að lokum vil ég hvetja alla til að fara yfir reykskynjara hjá sér og skipta um batterí í þeim, megin reglan er sú að skipta um einu sinni á ári.
Borgþór Freysteinsson, eldvarnarfulltrúi
Slökkvilið Hornafjarðar
Eldvarnarátak í eldvarnarviku
Síldveiðum er lokið á þessari vertíð og uppsjávarveiðiskipin eru að fara gera klárt fyrir loðnuna. Humarbátar hafa sótt um framlengingu á leyfum út desember og vonast að fá jákvæð svör.
Neðangreindar upplýsingar eru um veiðafæri, fjölda landana, heildarafla í tonnum og uppistöðu fisktegunda í aflanum.
Hvanney SF 51 .................... net ............. 5 .... 88,7 ufsi 63,1Sigurður Ólafsson SF 44 .... humarv ..... 3 .... 14,9 humar 3,1 (halar)Skinney SF 20 ..................... humarv ..... 3 .... 35,7 humar 9,5Þórir SF 77 .......................... humarv ..... 3 .... 36,5 humar 11,8Steinunn SF 10 .................... botnv ......... 2 .. 122,3 blandaður afliBenni SU 65 ........................ lína ............. 7 .... 49,9 þorskur 42,9Beta VE ............................... lína ............. 5 .... 23,3 þorskur 16,0Dögg SU 118 ....................... lína ............. 7 .... 96,8 þorskur 89,9Guðmundur Sig SU 650 ..... lína ............. 5 .... 22,3 þorskur 16,8Ragnar SF 550 ..................... lína ............. 5 .... 26,2 þorskur 20,9Siggi Bessa SF 97 ............... lína ............. 5 .... 20,1 þorskur 13,5Ásgrímur Halld. SF 250 ..... nót ............. 2 .. 1.830 síldJóna Eðvalds SF 200........... nót ............. 2 .. 1.630 síld
Þrír sunnanbátar á humarveiðum lönduðu hér á Hornafirði um 60 tonnum og þar af 20 tonnum af humri.
Heimild: www.fiskistofa.is
Aflabrögð 14. - 27. nóvember (2 vikur)
Fiskirí og vinnsla
Sími 478-2200
PIZZA • PIZZA Heilsa og útlit lokar Snyrtistofan lokar 20. janúar
Vinsamlega notið gild gjafakort fyrir þann tíma
Full búð af góðum vörum fyrir jólin
Sími478-2221
OPIÐ HÚSOpið hús verður hjá Rauða krossinum að Víkurbraut 2 laugardaginn 3. desember kl. 13:00 -15:00
Skráðu þig á póstlistann á www.netto.isMjódd - Salavegi - Hverafold - Akureyri - Höfn Grindavík - Reykjanesbær - Borgarnes - Egilsstaðir
1.989kr/ds.
Tilboðsverð!
699kr/pk.
Tilboðsverð!
498kr/kg
áður 698 kr/kg
1.199kr/kg
áður 1.998 kr/kg
1.197kr/kg
áður 1.995 kr/kg
2.295kr/kg
Tilboðsverð!
798kr/pk.
áður 998 kr/pk.
2.998kr/kg
áður 3.989 kr/kg
Tilboðin gilda 1. - 4. desember eða meðan birgðir endast
BAYONNESKINKA
BLEIKJUKABARETT SÞ
GRÍSABÓGUR HRINGSKORINN, NÝR
CADBURY ROSES 800 G DÓS
KJÚKLINGABRINGUR OKKAR
TOBLERONE TABELLE 160 G JAMBAL JUICE 3 TEG. 227 G
LAUFABRAUÐ 8.STK.
Kræsingar & kostakjör……um jólin
mar
khon
nun.
is BI
RT M
EÐ F
YRIR
VARA
UM
PRE
NTVI
LLUR
OG
MYN
DAVÍ
XL
25%afsláttur
29%afsláttur 40%
afsláttur
*GILDIR EKKI UM NETTÓ SALAVEGI
UNDIRBÚUM JÓLIN TÍMANLEGA Í ÁR!
HAMBORGAR-HRYGGUR
40%afsláttur
2 1FYRIR
199kr/pk.
áður 398 kr/pk.