Gjafabækur 2012

5
GJAFABÆKUR » ARNALDUR INDRIÐASON REYKJAVÍKURNÆTUR Erlendur er nýlega genginn til liðs við lögregluna og starfið á strætum Reykja- víkur er erilsamt. Óútskýrt mannslát lætur hann ekki í friði. Útigangsmaður finnst drukknaður og öllum virðist standa á sama. Örlög hans ásækja Erlend og leiða hann æ dýpra inn í framandi heima borgarinnar. Mögnuð saga um fyrsta mál Erlendar eftir sagnameist- arann Arnald Indriðason. STEFÁN MÁNI HÚSIÐ Lögreglumaðurinn Hörður Grímsson rannsakar dauðsfall sem flestir telja slys en Hörður er á öðru máli. Um sama leyti flytur fjölskylda í afskekkt hús innst í Kollafirði og draugar fortíðar vakna á ný. Æsispennandi og ískyggileg saga – Stefán Máni eins og hann gerist bestur. UPPHAFIÐ Forsaga lífsins Heillandi yfirlit yfir milljóna ára sögu lífsins á jörðinni. Fjölmargar furðuskepn- ur spretta ljóslifandi fram auk þess sem getur að líta sérkennilegar beinagrindur og margslungna steingervinga. Efnið er byggt á rannsóknum fremstu vísinda- manna heims og nýjustu tækni, m.a. við tölvuteikningar, beitt til að koma því á framfæri. Allt leggst á eitt við að ljúka upp heimi hundruða útdauðra tegunda, allt frá elstu og frumstæðustu lífverum til hinna miklu risaeðla, fornra spendýra og jafnvel fyrstu mannanna. Við gerum tilboð í magn og bjóðum upp á pökkun í fallegan jólapappír, viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar veitir Haukur Olavsson: 575 5600 / [email protected] ÍSLAND Í ALDANNA RÁS 2001-2010 Fyrsti áratugur 21. aldarinnar var ævintýralegt tímabil hér á landi svo ekki sé meira sagt. Hér er öllum helstu merkisviðburðum gerð ítarleg skil en ýmsum veigaminni þáttum – skondnum eða skelfilegum – jafnframt haldið til laga. GJAFABÆKUR » GJAFABÆKUR » KRISTÍN MARJA BALDURSDÓTTIR KANTATA Þegar Nanna hugar að gróðrinum sér hún að allt er að fara úr böndum. Finnur hefur svipaða tilfinningu gagnvart bókhaldinu; þar er eitthvað sem ekki stemmir. Í stórfjölskyldunni er yfirborð- ið kyrrt – en þegar hægláti útlending- urinn birtist á sviðinu breytist allt. Stór- brotin og margradda fjölskyldusaga þar sem ótal örlagaþræðir fléttast og rakna.

description

Við gerum tilboð í magn og bjóðum upp á pökkun í fallegan jólapappír, viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar veitir Haukur Olavsson: 575 5600 / [email protected]

Transcript of Gjafabækur 2012

Page 1: Gjafabækur 2012

GJAFABÆKUR »

A R n A l d U R I n d R I ð A s o n ReyKJAvíKURnÆtUR Erlendur er nýlega genginn til liðs við

lögregluna og starfið á strætum Reykja-

víkur er erilsamt. Óútskýrt mannslát

lætur hann ekki í friði. Útigangsmaður

finnst drukknaður og öllum virðist

standa á sama. Örlög hans ásækja Erlend

og leiða hann æ dýpra inn í framandi

heima borgarinnar. Mögnuð saga um

fyrsta mál Erlendar eftir sagnameist-

arann Arnald Indriðason.

s t e Fá n M á n I HúsIð

Lögreglumaðurinn Hörður Grímsson

rannsakar dauðsfall sem flestir telja slys

en Hörður er á öðru máli. Um sama leyti

flytur fjölskylda í afskekkt hús innst í

Kollafirði og draugar fortíðar vakna á

ný. Æsispennandi og ískyggileg saga –

Stefán Máni eins og hann gerist bestur.

UppHAFIð Forsaga lífsins Heillandi yfirlit yfir milljóna ára sögu

lífsins á jörðinni. Fjölmargar furðuskepn-

ur spretta ljóslifandi fram auk þess sem

getur að líta sérkennilegar beinagrindur

og margslungna steingervinga. Efnið

er byggt á rannsóknum fremstu vísinda-

manna heims og nýjustu tækni, m.a.

við tölvuteikningar, beitt til að koma því

á framfæri. Allt leggst á eitt við að ljúka

upp heimi hundruða útdauðra tegunda,

allt frá elstu og frumstæðustu lífverum

til hinna miklu risaeðla, fornra spendýra

og jafnvel fyrstu mannanna.

Við gerum tilboð í magn og bjóðum upp á pökkun í fallegan jólapappír, viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar veitir Haukur Olavsson: 575 5600 / [email protected]

íslAnd í AldAnnA Rás 2001-2010 Fyrsti áratugur 21. aldarinnar var

ævintýralegt tímabil hér á landi svo

ekki sé meira sagt. Hér er öllum helstu

merkisviðburðum gerð ítarleg skil en

ýmsum veigaminni þáttum – skondnum

eða skelfilegum – jafnframt haldið til

laga.

GJAFABÆKUR »GJAFABÆKUR »

KRIstín MARJA BAldURsdóttIR

KAntAtA Þegar Nanna hugar að gróðrinum sér

hún að allt er að fara úr böndum. Finnur

hefur svipaða tilfinningu gagnvart

bókhaldinu; þar er eitthvað sem ekki

stemmir. Í stórfjölskyldunni er yfirborð-

ið kyrrt – en þegar hægláti útlending-

urinn birtist á sviðinu breytist allt. Stór-

brotin og margradda fjölskyldusaga þar

sem ótal örlagaþræðir fléttast og rakna.

Page 2: Gjafabækur 2012

GJAFABÆKUR »GJAFABÆKUR »GJAFABÆKUR »

e I n A R M á R G U ð M U n d s s o n

íslensKIR KónGAR

Knudsenarnir í Tangavík eru skrautleg

og flokksholl ætt með dugandi útgerðar-

mönnum, ættræknum bankastjórum,

ástsælum alþingismönnum og skapmikl-

um fegurðardrottningum. Saga þeirra

er samofin sögu alþýðunnar því hana

hafa þeir ráðskast með frá ómunatíð.

Frásagnir sögumanns af þessu skraut-

lega fólki sem við þekkjum öll eru í senn

hárbeittar og drepfyndnar.

v I l B o R G d Av í ð s d ó t t I R víGRoðI

Auður djúpúðga elur upp son sinn á Kata-

nesi eftir skilnað þeirra Ólafs hvíta Dyfl-

innarkonungs. Illindi eru milli innfæddra

og norrænna manna á svæðinu og Orkn-

eyjajarl ásælist aukin völd. Þá ræðst Ólafur

hvíti inn í Péttland og leiðir hans og Auðar

liggja saman að nýju ... Áhrifamikið fram-

hald Auðar (2009) sem var tilnefnd til

íslensku bókmenntaverðlaunanna.

BílAR í máli og myndum

Bókin Bílar í máli og myndum leiðir les-

andann á einstakan hátt í gegnum sögu

þessa merkilega farartækis sem umbylti

20. öldinni. Hér getur að líta meira en

1200 bíla af öllum stærðum og gerðum,

margbreytilegar vélar og sögu ástsæl-

ustu tegundanna og mannanna á bak við

þær. Sannkölluð skemmtireisa í gegnum

bílasöguna og fullkomin gjöf handa bíla-

áhugamönnum á öllum aldri.

FeRðAAtlAs Innbundinn

Ferðaatlasinn er ómissandi ferðafélagi

sem inniheldur 78 ný landakort í mæli-

kvarðanum 1:200 000 og 47 þéttbýliskort

auk upplýsinga um sundlaugar, tjald-

svæði, söfn og golfvelli. Meðal helstu

nýjunga eru lýsingar og litmyndir af 104

náttúruperlum og sögustöðum. Þessar

upplýsingar, ásamt einstökum teikning-

um Jóns Baldurs Hlíðberg af varpfuglum,

plöntum og skeljum landsins, gera ferða-

lagið um Ísland ógleymanlegt.

Við gerum tilboð og bjóðum upp á pökkun í fallegan jólapappír, viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar veitir Haukur Olavsson: 575 5600 / [email protected]

Fleiri frábærar bækur í jólapakkann á www.forlagid.is

á R n I Þ ó R A R I n s s o n áR KAttARIns Lífshættuleg árás fyrir utan skemmti-

stað í Reykjavík og óhugnanlegur hrekk-

ur í brúðkaupi hrinda af stað atburðarás

þar sem ekki er allt sem sýnist. Hver

sendir Einari klúru sms-in? Enn ein

perlan í glæpasagnafléttu Árna Þór-

arinssonar um blaðamanninn Einar.

Page 3: Gjafabækur 2012

s ó lv e I G e I R í K s d ó t t I R eFtIRRéttIR sollU

Solla opnar nýjar víddir í gerð gómsætra

eftirrétta og sælgætis fyrir alla sem hafa

áhuga á heilbrigði og hollri næringu

en vilja jafnframt gera vel við sig. Hér

má finna tertur, litlar og stórar bökur,

brownies, smákökur, konfekt, ís og fleiri

freistingar sem óhætt er að láta undan.

Solla er í fararbroddi meðal hráfæðis-

kokka, hérlendis sem erlendis.

A R n e n e R J o R d e t o G C A R l o s Z A C H R I s o n

JólAKúlUR

Arne og Carlos eru vinsælir hönnuðir

sem hafa sannarlega slegið í gegn með

prjónuðu jólakúlunum sínum. Bókin

hefur selst í tugþúsundum eintaka í

Noregi og verið þýdd á fjölda tungumála.

Jólakúlurnar eru frumlegar og óvenju-

legar en byggjast um leið á sterkum

hefðum og fallegu jólamynstrin er líka

hægt að nota á alls konar jólaskraut.

G í s l I e G I l l H R A F n s s o n o G I n G A e l s A B e R G Þ ó R s d ó t t I R

eldAð oG BAKAð í oFnInUM HeIMAGóður matur – gott líf

Einstök bók fyrir alla sem njóta þess

að elda og baka frá grunni með þátt-

töku allrar fjölskyldunnar. Fjölbreyttar

uppskriftir að gómsætum heimilismat,

girnilegum veisluréttum, góðu brauði og

freistandi og frábærum tertum og öðru

góðgæti, með áherslu á gott hráefni. Höf-

undar sendu í fyrra frá sér bókina Góður matur – gott líf í takt við árstíðirnar og

var hún tilnefnd til Íslensku bókmennta-

verðlaunanna.

n A n n A R ö G n vA l d A R d ó t t I R MúFFUR í HveRt Mál

Það er fljótlegt og auðvelt að baka

girnilegar múffur og þær henta við öll

tækifæri – frá morgni til kvölds. Nanna

hefur sent frá sér á annan tug vinsælla

matreiðslubóka og hér gefur hún upp-

skriftir að alls konar múffum, hollum

morgunmúffum, nestis- og kvöldverðar-

múffum, sætum múffum með kaffinu

og jafnvel múffum fyrir gæludýrin.

Við gerum tilboð og bjóðum upp á pökkun í fallegan jólapappír, viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar veitir Haukur Olavsson: 575 5600 / [email protected]

Fleiri frábærar bækur í jólapakkann á www.forlagid.is

Page 4: Gjafabækur 2012

e I n A R K á R A s o n

sKáld

Sumarið 1276 situr Sturla Þórðarson í

friði heima á Staðarhóli þegar Magnús

konungur lagabætir kallar hann á sinn

fund. Óvænt vetrardvöl í Færeyjum

gefur honum næði til að rifja upp válega

atburði undangenginna fjörutíu ára og

sjá þá í nýju samhengi. Með skáldi lýkur

Einar Kárason Sturlungasögu sinni

sem hlotið hefur miklar vinsældir og lof

gagnrýnenda.

ó l A F U R G U n n A R s s o n MálARInn

Davíð er dáður listmálari, verkin hans

seljast grimmt, hann er vel stæður og

vel giftur. En hann hefur aldrei öðlast

þá viðurkenningu menningarpáfanna

sem hann þráir og hryllilegt slys sem

hann átti ef til vill sök á varpar dimmum

skugga á fjölskyldulífið. Viðburðarík og

áhrifamikil skáldsaga um átök í sálinni

og átök milli fólks, togstreitu, umrót og

metnað.

Þ ó R A R I n n e l d J á R n HéR lIGGUR sKáld

Á hverju kvöldi hugsar Hallbjörn sauða-

maður um Þorleif jarlsskáld sem sagan

segir að hvíli þar undir sem Hallbjörn

sefur. Af Þorleifi og ætt hans eru fornar

sagnir um harðvítug átök höfðingja,

fyrirboða og forynjur, kynngimagnaðan

hefndarkveðskap og ómennskt víg á

Þingvöllum. Þórarinn Eldjárn segir hér

sögu af hógværu skáldi sem býður illsk-

unni birginn.

J ó n ó l A F s s o n AppelsínUR FRá ABKAsíUvera Hertzsch, Halldór laxness og hreinsanirnar miklu

Nafn Veru Hertzsch er órjúfanlega tengt

uppgjöri Halldórs Laxness við kommún-

ismann en árið 1938 voru Vera og dóttir

hennar teknar höndum fyrir augunum

á Halldóri í Moskvu. Áratugir liðu án

þess að nokkur vissi hvað af þeim varð.

Sú hörmulega saga er hér loksins sögð

til enda.

Við gerum tilboð og bjóðum upp á pökkun í fallegan jólapappír, viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar veitir Haukur Olavsson: 575 5600 / [email protected]

KRIstín eIRíKsdóttIR

HvítFeld Fjölskyldusaga Fyrrverandi fimleikastjarnan Jenna

Hvítfeld hefur allt: útlitið, kynþokkann,

greindina og framann. Í þessari fyrstu

skáldsögu Kristínar Eiríksdóttur kemur

í ljós að ekkert er eins og hún hélt, sjálf

lygin kvíslast líkt og eitur.

MAGnús ÞóR Jónsson

MeGAs textar 1966-2011 Hér er kominn obbinn af söngtextum

Megasar sem ortir voru á árabilinu

1966–2011. Margir textanna hafa aldrei

birst áður en aðrir hafa aflað honum

skáldfrægðar. Í bókinni er fjöldi ljós-

mynda af meistaranum og veröld hans

og síðast en ekki síst prýða bókina

myndskreytingar sem hann gerði sér-

staklega fyrir útgáfuna. Bókin fæst með

fjórum mismunandi kápum.

Fleiri frábærar bækur í jólapakkann á www.forlagid.is

Page 5: Gjafabækur 2012

Við gerum tilboð og bjóðum upp á pökkun í fallegan jólapappír, viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar veitir Haukur Olavsson: 575 5600 / [email protected]

Fleiri frábærar bækur í jólapakkann á www.forlagid.is

e R l e n d o G o R s o y l A H A A R B e R G , U n n U R J ö K U l s d ó t t I R

íslAnd í AllRI sInnI dýRð

Ísland er í mörgu tilliti land andstæðna.

Þar tekst ljósið á við myrkrið, ísinn við

eldinn, öræfakyrrðin á sér andhverfu

í öskrandi briminu við ströndina og

hrjóstrið á hálendinu á fátt sameiginlegt

með blómskrúðinu og gróskunni sem

finna má víða í skjólsælum unaðsreitum.

Bókin, sem kemur út á ensku og þýsku,

auk íslensku lýsir svo sannarlega Íslandi

– í allri sinni dýrð.

t o M A n G

stAFRÆn lJósMyndUn skref fyrir skref

Einstaklega yfirgripsmikill og aðgengi-

legur leiðarvísir um hvaðeina er lýtur að

stafrænni ljósmyndun. Bókin nýtist öll-

um sem vilja ná betri tökum á ljósmynd-

un, hvort sem þeir eru að stíga fyrstu

skrefin eða eru reyndir myndasmiðir.

Höfundurinn er margverðlaunaður ljós-

myndari, sjónvarpsþáttastjórnandi og

metsöluhöfundur. Stórfróðlegt uppfletti-

rit sem þú munt leita í aftur og aftur.

sKRípó

Skemmtilegustu skopmyndateiknarar

landsins leggja til teikningarnar – og þú

semur brandarann. Þannig er Skrípó,

einfalt og fáránlega fyndið nýtt íslenskt

spil sem fjölskyldan mun liggja í hláturs-

kasti yfir.