Eystrahorn 11. tbl. 2012

8
Fimmtudagur 15. mars 2012 www.eystrahorn.is Eystrahorn 11. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is Konur Takið frá föstudagskvöldið 13. apríl 2012 Föstudaginn 16. mars kl. 16:00 verður opnuð sýning á ljósmyndum Runólfs Haukssonar áhugaljósmyndara í fremra rými Listasafnsins. Sýningin ber heitið Skaftfellsk náttúra og eru myndirnar eins og nafnið gefur til kynna af náttúrunni í Austur – Skaftafellssýslu. Runólfur Hauksson hefur verið duglegur við að taka myndir síðustu ár. Áhugi fyrir myndatöku kviknaði fyrir alvöru árið 2008 þegar Runólfur hóf störf við siglingar á Jökulsárlóni, hann fylgdist með öllu þessu fólki sem sigldi um lónið með honum og veitti því eftirtekt hversu góðar myndarvélar fólk hafði meðferðist til að mynda lónið. Þá um haustið uppfærði Runólfur myndavélakostinn og keypti fyrstu alvöru myndavélina sína með skiptanlegum linsum og eftir það var ekki aftur snúið. Í byrjun var áhuginn fyrir að mynda ís mestur og er enn í miklu uppáhaldi hjá Runólfi, en í dag eru það norðurljósin sem fanga hugann. Runólfur hefur notið góðrar aðstoðar frá Olgeiri Andréssyni ljósmyndara en hann hefur einbeitt sér að myndun norðurljósa í gegnum tíðina. Bakgrunnur Runólfs í ljósmyndun er í raun enginn. Hann er áhugaljósmyndari af lífi og sál en hann sótti eitt námskeið í Photoshop myndvinnslu hjá Sigurði Mar Halldórssyni ljósmyndara og hefur fikrað sig áfram sjálfur eftir það. Draumurinn er svo að komast lengra í ljósmyndun og eignast öflugri myndavél. Á sýningunni eru 22 ljósmyndir af náttúrunni í sýslunni og sjón er sögu ríkari, einnig heldur Runólfur úti ljósmyndasíðu á Facebook undir nafninu The Aurora photo guide. Skaftfellsk náttúra séð í gegnum ljósmyndalinsu Runólfs Haukssonar Sýningin verður opnuð föstudaginn 16. mars kl. 16:00

description

Eystrahorn 11. tbl. 2012

Transcript of Eystrahorn 11. tbl. 2012

Page 1: Eystrahorn 11. tbl. 2012

Fimmtudagur 15. mars 2012 www.eystrahorn.is

Eystrahorn11. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is

KonurTakið frá föstudagskvöldið 13. apríl 2012

Föstudaginn 16. mars kl. 16:00 verður opnuð sýning á ljósmyndum Runólfs Haukssonar áhugaljósmyndara í fremra rými Listasafnsins. Sýningin ber heitið Skaftfellsk náttúra og eru myndirnar eins og nafnið gefur til kynna af náttúrunni í Austur – Skaftafellssýslu. Runólfur Hauksson hefur verið duglegur við að taka myndir síðustu ár. Áhugi fyrir myndatöku kviknaði fyrir alvöru árið 2008 þegar Runólfur hóf störf við siglingar á Jökulsárlóni, hann fylgdist með öllu þessu fólki sem sigldi um lónið með honum og veitti

því eftirtekt hversu góðar myndarvélar fólk hafði meðferðist til að mynda lónið. Þá um haustið uppfærði Runólfur myndavélakostinn og keypti fyrstu alvöru myndavélina sína með skiptanlegum linsum og eftir það var ekki aftur snúið. Í byrjun var áhuginn fyrir að mynda ís mestur og er enn í miklu uppáhaldi hjá Runólfi, en í dag eru það norðurljósin sem fanga hugann. Runólfur hefur notið góðrar aðstoðar frá Olgeiri Andréssyni ljósmyndara en hann hefur einbeitt sér að myndun norðurljósa í gegnum tíðina. Bakgrunnur

Runólfs í ljósmyndun er í raun enginn. Hann er áhugaljósmyndari af lífi og sál en hann sótti eitt námskeið í Photoshop myndvinnslu hjá Sigurði Mar Halldórssyni ljósmyndara og hefur fikrað sig áfram sjálfur eftir það. Draumurinn er svo að komast lengra í ljósmyndun og eignast öflugri myndavél. Á sýningunni eru 22 ljósmyndir af náttúrunni í sýslunni og sjón er sögu ríkari, einnig heldur Runólfur úti ljósmyndasíðu á Facebook undir nafninu The Aurora photo guide.

Skaftfellsk náttúraséð í gegnum ljósmyndalinsu Runólfs Haukssonar

Sýningin verður opnuð föstudaginn 16. mars kl. 16:00

Page 2: Eystrahorn 11. tbl. 2012

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 15. mars 2012

Brunnhólskirkja sunnudaginn 18. mars

Messa kl. 15:00

Gideonfélagið verður með kynningu á starfsemi félagsins

Sóknarprestur

Minningarkort Hafnarkirkju er hægt að nálgast hjá:Hafdísi í Sport-X í Miðbæ í síma 478-1966Ástríði Sveinbjörnsdóttur í síma 847-8918Guðrúnu Þorsteinsdóttur í síma 864-4246

Hafnarkirkja sunnudaginn 18. mars

Sunnudagaskóli og messa kl. 11:00

Kyrrðarstund á föstu alla miðvikudaga til páska kl. 18:15

Sóknarprestur

Undanfarin 4 ár hefur Jóhann Morávek í samvinnu við Rafn Sigurbjörnsson unnið að geisladiski með frumsömdu efni fyrir leikskólaaldurinn. Diskurinn sem heitir „Uss, uss“ inniheldur 12 lög ásamt Þjóðsöng Íslands sem spilaður er í tóntegund sem hentar þessum aldri. Öll lögin eru eftir Jóhann og Rafn sem samdi jafnframt alla texta. Börn á aldrinum 5 – 11 ára syngja lögin og koma nánast öll börnin héðan frá Höfn. Diskurinn er hugsaður líka sem hljóðfærakynning og koma býsna mörg hljóðfæri fyrir á honum og þar leika hornfirskir hljóðfæraleikarar stórt hlutverk. Jóhann útsetti öll lögin og tók upp diskinn, en Rafn hannaði albúmið og 64 síðna bók sem fylgir, með textum og hljómum auk myndum af þeim hljóðfærum sem koma fyrir í lögunum ásamt flytjendum þeirra. Krakkar úr Lúðrasveit Tónskólans munu ganga í hús á næstu dögum og selja diskinn sem kostar kr. 2000- og mun sölulaun þeirra renna í ferðasjóð lúðrasveitarinnar.

Geisladiskurinn Uss uss

Rafn Sigurbjörnsson og Jóhann Morávek

Vildaráskriftina má greiða í LandsbankanumHornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811 Kt. 240249-2949

Eystrahorn

Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

sandbakkavegurUm er að ræða 3ra herbergja vel skipulagða 91,6 m² íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi byggðu árið árið 1991. Íbúðin er laus 1.ágúst 2012

sandbakkavegurUm er að ræða 4ra herbergja vel skipulagða 99,2 m² íbúð á annari hæð í fjölbýlishúsi byggðu árið árið 1991. Íbúðin er laus 1.ágúst 2012

hæðagarðurFallegt 144,2 m² einbýlishús, m/garðstofu, 4 svefnherbergi rúmgóðar stofur.

Hafnarbraut 15 • 780 Höfn • Sími 580 7915 • Fax 580 7911Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901Vallholtsvegi 3 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821www.inni.is

Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. leigumiðlari, Egilsstöðum

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Pétur Eggertsson, lögg. fasteignasali, Húsavík

Sigríður Kristinsdóttir, hdl, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Hilmar Gunnlaugsson,hrl. og lögg.fasteignasalis. 580 7902

Hjördís Hilmarsdóttir,lögg.

leigumiðlaris. 580 7908

Sigurður Magnússon,lögg.

fasteignasalis. 580 7907

SigríðurKristinsdóttir,

lögmaður

Snorri Snorrason,lögg.

fasteignasalis. 580 7916

FÉLAG FASTEIGNASALA

NÝTT Á SKRÁ NÝTT Á SKRÁ NÝTT Á SKRÁ TIL SÖLU OG LEIGU

Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð

og hlýhug við fráfall og útför

Eiríks Þorvaldssonar

(Edda í Nýjabæ).

Sveinbjörg Eiríksdóttirog fjölskyldur

Page 3: Eystrahorn 11. tbl. 2012

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 15. mars 2012

Aðalfundur Ræktunarfélags Austur-SkaftfellingaRæktunarfélag Austur-Skaftfellinga heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 20. mars nk. kl. 20:30 í Mánagarði í Nesjum. Gestir fundarins verða Jónatan Hermannsson starfsmaður Landbúnaðarháskóla Íslands og Ólafur Eggertsson bóndi á Þorvaldseyri. Þeir munu m.a. flytja erindi um ræktun og úrvinnslu á olíujurtum.

Dagskrá fundarins:1. Venjuleg aðalfundarstörf.2. Erindi verkefnisstjóra. 3. Erindi Jónatans Hermannssonar.4. Erindi Ólafs Eggertssonar.5. Umræður.

Allir áhugamenn um jarðrækt í Austur-Skaftafellssýslu eru hvattir til að mæta.

Stjórn Ræktunarfélags Austur-Skaftfellinga

Lúðrasveitirnar á staðnum verða með sína árlegu Sumar-Humartónleika sunnudaginn 18. mars í Sindrabæ. Lúðrasveitirnar tóku upp á þessu tónleikafyrirkomulagi vorið 2000 og eru þetta því 13. tónleikarnir. Ýmislegt hefur verið boðið upp á á þessum tónleikum í gegnum tíðina. Nú ætlum við að bjóða upp á dagskrá sem við getum kallað söngkonur og suðrænir taktar. Lúðrasveit Tónskólans byggir sína dagskrá á lögum frá mið- og suður- Ameríku með meiru en Lúðrasveit Hornafjarðar hefur fengið 4 söngkonur til liðs við sig og spilar lög úr ýmsum áttum með þeim. Þær sem syngja eru Íris Björk Rabanes, Ásdís Pálsdóttir og Ragnheiður Sigjónsdóttir auk þess sem kvennahljómsveitin Guggurnar taka lagið með sveitinni. Við ætlum að gera lítilsháttar breytingu á fyrirkomulagi tónleikanna í ár í þeirri von að hægt sé að ná fleirum inn í húsið. Tónleikarnir hefjast kl. 12:30 og kostar 1.500 krónur inn.

Helgina 2. - 4.mars fóru tvö lið, 3. og 5. flokkur karla í ferð til Reykjanesbæjar til að taka þátt í Nettómótinu. Þetta mót er haldið árlega og voru þátttökulið að þessu sinni 179 talsins. Drengirnir í Sindra sem eru á aldrinum 9 – 11 ára stóðu sig með prýði í leikjum sínum og áttu einnig skemmtilegar stundir utan leikja. Hvort lið um sig spilaði sex leiki. Á laugardagskvöldinu var kvöldvaka þar sem fram komu m.a.sjónhverfingamaður og tveir hópar tónlistarmanna. Að sjálfsögðu var líka troðslukeppni milli fjögurra úrvalsdeildarleikanna. Á mótinu skörtuðu strákarnir nýjum búningum framleiddum af HENSON. Körfuknattleiksdeildin vill koma þökkum á framfæri til þeirra sem studdu við kaup þessara búninga en það voru Jökulsárlón ehf, Sparisjóðurinn, Jaspis og Sport-X.

Körfuknattleiksdeild Sindra

Flottir körfuboltastrákar í nýju búningunum.

Sumar-Humartónleikar SeljavallakjötvörurOpið föstudaginn 16. mars frá kl. 15:00 - 18:00

Mikið úrval af nautakjöti

Sjá nánar á www.seljavellir.is

Verið velkomin, Ella og Eiríkur, sími 860-7582

Opin vinnustofaOpin vinnustofa í Miklagarði alla laugardaga fram að páskum frá kl. 14:00 - 16:00

Einnig hægt að hafa samband í síma 892-1527 aðra daga.

Myndir til fermingargjafa

Verið velkomin Eyrún Axelsdóttir

Page 4: Eystrahorn 11. tbl. 2012

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 15. mars 2012

Allt um viðburðiyfir páskana á

www.east.is

Frábær skíðasvæði í Stafdal og OddsskarðiSkipulagðar gönguferðir og skemmtileg dagskrá

PáskafjörPáskafjörá Austurlandi

- fyrir alla fjölskylduna

Komdu og upplifðu ævintýrin með okkur!

Mynd: Goðaleið í Oddsskarði, Sævar Guðjónsson

Aðalsafnaðarfundur Hafnarsóknar og

aðalfundur kirkjugarða í HafnarsóknFundurinn verður haldinn sunnudaginn 18. mars nk. kl. 17:00 í safnaðarheimili Hafnarkirkju.

Venjuleg aðalfundarstörf

Sóknarbörn hvött til að mæta

Sóknarnefnd Hafnarsóknar

aðalfundur ríkis vatnajökuls ehf verður haldinn miðvikudaginn 28. mars kl. 13:00 - 16:00 á Hótel Skaftafelli í Öræfum. Fundurinn er opinn öllum hluthöfum í Ríki Vatnajökuls.

Klukkan 16:00 hefst ársfundur Svæðisráðs suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. Fundurinn er öllum opinn. Dagskrá auglýst síðar.

Tilboð í SporthöllinniÞú kaupir 3 mánuði og færð þann fjórða frítt

• Kenndir tímar alla morgna kl. 6:10• Zumbafjör 1 x í viku kl. 17:10• Lóð/brennsla 2 x í viku kl. 17:10• Óvissutími 1 x í viku kl. 17:10

Kíkið á nýja stundaskrá á www.sporthollin.is

Hornfirskir fylgihlutir frá Arfleifð í fermingarpakkana og við

fermingarfatnaðinnHerraslaufur, belti og armbönd frá 3500 kr.

Dömutöskur, hárskraut og armbönd frá 3500 kr.

Opið í Kartöfluhúsinu fram að páskum:

Fimmtudaga kl. 11-18 Föstudaga kl. 11-15

Laugardaga kl. 14- 17

Nýjar vörur á www.facebook.com/arfleifd AtvinnaVatnajökulsþjóðgarður óskar eftir fólki til starfa á upplýsingamiðstöðinni á Höfn í sumar.Upplýsingar um störfin veitir Regína Hreinsdóttir þjóðgarðsvörður í síma 842 4370 Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf má senda á netfangið: regina@vjp. eða í pósti: Skaftafellsstofa, v/starfs, 785 Öræfi. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 30. mars.

Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands fer fram miðvikudaginn 21. mars kl. 11:30 - 14:00 Í Árnesi Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Opin dagskrá hefst kl 11:30

Friðrik Rafn Larsen, lektor í Háskólanum í Reykjavík fjallar um mikilvægi vörumerkja í ferðaþjónustu byggt á reynslu sinni af vörumerkinu „Ísland“

Í framhaldi mun Davíð Samúelsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands kynna verkefni Markaðsstofu Suðurlands í erindinu ,,Hvernig nálgust við markaðinn“.

Venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 13:00

Súpa í boði

Page 5: Eystrahorn 11. tbl. 2012

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 15. mars 2012

Til söluSumarbústaður /sumarbústaðaland í Stafafelli í Lóni á góðum og skjólríkum stað. Nánari upplýsingar hjá Eyrúnu Axelsdóttur í síma 8921527

Rækjusala7. bekkur er að selja

rækjur og rennur ágóðinn í ferðasjóð.

2,5 kg á 4.000- Pantanir hjá:

Þuríði • 895-1973 Fjólu • 846-8586 Huld • 478-2262

Ég verð fjarverandi um óákveðinn tíma.

Framteljendur eru allir á fresti og enn er ekki búið að opna við RSK svo við bíðum róleg.

Jón Gunnar 478-1106 867-4441

Karlakórinn Jökull heldur “hjónaball” föstudaginn 23. mars kl. 22 í Sindrabæ. Kórmenn munu syngja gömul þekkt dægurlög undir þéttu spili hljómsveitar kórsins, má þar nefna lög eins og Kostervals, Blíðasti blær, Hlín Rósalín og fleiri góð lög. Kórmenn hvetja alla til að dusta nú rykið af dansskónum og skella sér á gömlu dansana.

Hjónaballí Sindrabæ

Laugardaginn 17. mars nk. munu Sunnlendingar annað árið í röð fylkja liði í Ráðhús Reykjavíkur til að kynna það sem efst er á baugi í landshlutanum með sérstakri Suðlandssýningu. Sýningin ber yfirskriftina Suðurland í sókn. Það er Atvinnuþróunarfélag Suðurland og Markaðsstofa Suðurlands sem standa að þessu verkefni ásamt fjölda annarra þátttakenda s.s. ferðamálafulltrúum, klasaverkefnum, sveitarfélögum, handverkshópum, ferðaþjónustuaðilum af Suðurlandi o.fl. Suðurland er fjölsóttur staður en með sýningu sem þessari viljum við tefla fram nýjum sjónarhornum og spegla allan fjölbreytileikann

á svæðinu. Með hækkandi sól vaknar ferðaþráin og gerir tímabært að huga að ferðalögum sumarsins. Rómuð fegurð, úrval þjónustu og nálægð við höfuðborgarsvæðið og aðra landshluta gerir Suðurland að einstökum áfangastað til hvers kyns útivistar. Nýr Suðurstrandarvegur og uppbygging vega í Uppsveitum Árnessýslu eykur enn á alla þá möguleika sem fyrir eru, líka utan alfaraleiðar. Sýningin í Ráðhúsi Reykjavíkur er opin almenningi frá klukkan 12 til 17 á laugardaginn kemur.

Sunnlendingar í Ráðhúsi Reykjavíkur

Page 6: Eystrahorn 11. tbl. 2012

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 15. mars 2012

Magnús Þór Sigmundsson heldur tónleikar á föstudagskvöldið kl 21:00

Miðaverð kr. 1.500,-

sumar-humartónleikarHinir árlegu hádegistónleikar Lúðrasveitar Hornafjarðar og Lúðrasveitar Tónskólans verða haldnir í Sindrabæ sunnudaginn 18. mars kl. 12:30

Boðið verður upp á humarsúpu ásamt rúmlega klukkustundar lúðraþyt þar sem fram koma hljóðfæraleikarar á öllum aldri

Einnig munu söngkonur syngja með og sérstakir gestir er hljómsveitin Guggurnar.

Aðgangseyrir kr. 1.500,-

Í sumar mun ferðafélagið fara af stað með verkefnið KOMDU MEÐ. Verkefnið felst í því að boðið verður upp á léttar útivistarferðir fyrir byrjendur í tengslum við aðrar ferðir á vegum félagsins. Verkefninu er ætlað að ná til einstaklinga sem ekki treysta sér í almennar ferðir. Nánari kynning verður á aðalfundi félagsins í Golfskálanum mánudaginn 19. mars kl.19.30, þar mun einnig Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarfræðingur fræða okkur um hollustu útivistar fyrir líkama og sál. Allir eru velkomnir á fundinn.

Nýtt í starfsemi Ferðafélagins

leikur á laugardagskvöld frá kl. 21:00BigBand Hornafjarðar er 18 manna hljómsveit

skipuð hornfirsku tónlistarfólki.

Mæðusveitinn Sigurbjörn

tekur við af BigBandinu og leikur blússlagara frameftir kvöldi.

Frítt inn

HORNAFJARÐAR

Íbúð til sölu • Höfðavegur 4Björt og rúmgóð 4raherbergja íbúð á annarri hæð í velviðhöldnu fjölbýli. 4 íbúðir í stigagangi. Sameign í góðu ástandi. Íbúðinni er vel við haldið, nýtt flísalagt bað með nýjum sturtuklefa, lokaðar svalir með hita í gólfi.

Parkett á gólfum. Íbúðin er 100,3 m2. Gengið er inn í geymslu frá stigagangi, og er þar þvottahús.

Nánari upplýsingar í síma 8484085 eða 8956921

Hótel Höfn • Sími 478-1240

Skemmtileg helgi á Hótel Höfn23. og 24. mars

Page 7: Eystrahorn 11. tbl. 2012

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 15. mars 2012

Neðangreindar upplýsingar eru um veiðafæri, fjölda landana, heildarafla í tonnum og uppistöðu fisktegunda í aflanum.

Hvanney SF 51 .................... net .........4......... 96,1 ..þorskur 81,1Sigurður Ólafsson SF 44 .... net .........3......... 39,9 ..þorskur 39,7Skinney SF 20 ..................... net .........5....... 113,2 ..þorskur 84,0Þórir SF 77 .......................... net .........5......... 79,9 ..þorskur 76,4Steinunn SF 10 .................... botnv .....3....... 194,0 ..ufsi 100,8Benni SU 65 ........................ lína .........4......... 19,5 ..steinbítur 18,0Beta VE 36 .......................... lína .........1........... 6,2 ..ýsa 3,8Guðmundur Sig SU 650 ..... lína .........1........... 7,5 ..þorskur 6,5Ragnar SF 550 ..................... lína .........1......... 12,7 ..þorskur 11,1Dögg SU 118 ....................... lína .........3......... 18,4 ..steinbítur 17,3Siggi Bessa SF 97 ............... lína .........1........... 2,1 ..þorskur 1,3Ásgrímur Halldórsson SF 250 ...........4...................4.975 tonn loðnaJóna Eðvalds SF 200...........................3...................3.711 tonn loðna

Heimild: www.fiskistofa.is

Aflabrögð 27. febrúar – 11. mars ( 2 vikur)

Fiskirí og vinnslaMikil ótíð og brælur hafa hamlað sjósókn undanfarið en afli góður þegar gefið hefur á sjó. Af þessum sökum hefur verið frekar rólegt hjá Fiskmarkaðnum að sögn Jóhanns Þórólfs og Ásgeir hjá Skinney-Þinganesi segir að farið sé að sjást fyrir endann á loðnuvertíðinni. Búið er að veiða rúm 43.000 tonn af loðnukvótanum. Eftir eru um 4.000 tonn sem ættu að klárast um miðja næstu viku. Mikil ótíð hefur einkennt þessa loðnuvertíð en á heildina litið vel viðunandi. Ásgrímur og Jóna hafa þurft að landa töluverðu magni annarsstaðar sökum þess að innsiglingin hefur verið ófær. Mikil þorskgengd hefur verið í allan vetur og reiknar Ásgeir með að netavertíðin klárist í páskavikunni. Humarvertíðin byrjar síðan strax eftir páska og í kringum sjómannadag byrjar makríl- og síldarvertíð við hjá uppsjávarskipunum.

Lionsklúbbur Hornafjarðar þakkar gestum og eftirfarandi fyrirtækjum veittan stuðning:

Kútmaganefnd

Sýning á málverkum Gunnlaugs Scheving listmálara verður opnuð í Listasafni föstudaginn 16. mars kl. 16:00. Gunnlaugur Scheving skipar háan sess í íslenskri listasögu og nafn hans verður ávallt eitt það fyrsta sem menn nefna þegar rætt verður um myndlist tuttugustu aldar á Íslandi. Maðurinn er ávallt áberandi í málverkum hans en það hefur veitt honum sérstöðu í íslenskri myndlist. Sýningin ber heitið Til Sjávar og Sveita, en Gunnlaugur er einna þekktastur fyrir voldugar sjávarmyndir, þar sem maðurinn er upphafinn og í jafnvægi við náttúruöflin, en einnig eru málverk hans af sveitarlífinu áberandi. Gunnlaugur er fæddur í Reykjavík árið 1904, fyrstu ár ævi sinnar ólst hann upp hjá móðurömmu sinni og afa en var síðan sendur í fóstur til Guðlaugar Jónsdóttur og Jóns Stefánssonar Scheving að bænum Unaósi á Fljótsdalshéraði árið 1909. Hann tók upp eftirnafn fóstra síns og kallaði sjálfan sig upp frá því Gunnlaug Scheving. Haustið 1921 fór Gunnlaugur í Listaskóla í Reykjavík en hélt svo til Kaupmannahafnar árið 1923 til að leggja stund á frekara listnám. Tveimur árum seinna hóf hann nám við Akademíuna á Charlotteborg, hann kom þó heim í millitíðinni til að vinna sér inn fyrir náminu við fiskvinnu og skissaði fólk við vinnu og báta sem lágu við bryggju. Út frá þessum skissum og myndum málar hann svo málverk sem sýnd voru á sýningu Listvinafélagsins og marka áhuga hans á myndum af þessu tagi. Viðfangsefnið þar sem maðurinn er við vinnu sína, hvort sem það er bóndinn, járnsmiðurinn í smiðjunni eða sjómaðurinn varð honum alla tíð mjög hugleikið. Gunnlaugur flutti svo alfarið heim til Íslands árið 1930.Hann vann með olíuliti, vatnsliti og gerði myndskreytingar og eru mörg verka hans í opinberri eigu en Listasafn Íslands fékk að dánargjöf Gunnlaugs um 1800 verk og er það með stærstu listaverkasöfnum sem safninu hefur borist. Ekki er til heildarskráning á verkum hans og í mörgum tilvikum er ekki vitað hvenær verkin voru gerð því hann merkti myndir sínar sjaldan með ártali, né gaf þeim nafn. Gunnlaugur lést árið 1972.

Til sjávar og sveitasýning á verkum Gunnlaugs Scheving

upplýsingabæklingur ríkis vatnajökuls

Hafin er vinna við endurgerð upplýsingabæklings Ríkis Vatnajökuls. Þeir sem vilja auglýsa starfsemi sinna fyrirtækja í bæklingnum eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið [email protected] til að fá nánari upplýsingar. Lokafrestur til skráningar er 23. mars.

Jökulsárlón•Húsasmiðjan•Flugfélagið Ernir•Norðlenska•Ferðaþjónustan •SmyrlabjörgumOlís•Nettó•Hótel Vatnajökull•

Jöklaferðir•N1•Bílaleigan Hertz•Kaffi-Hornið•Efnalaug Dóru•Hótel Höfn•Sveitarfélagið •Hornafjörður

BEINT FRÁ BÝLI afurðamarkaður

Opið laugardaga kl. 13:00 til 16:00

Grísasteikur tilbúnar í ofninn, lundir, kótilettur, hamborgarhryggir,

bayonskinka, beikon, álegg, lamba- og geitakjöt og margt fleira

MiðskersbúiðPálína og Sævar Kristinn

Page 8: Eystrahorn 11. tbl. 2012

Föstudagur 30. mars 201214:45 Koma og kaffi15:00 Ársfundur settur – Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs15:15 Inngangur að umræðum – Sverrir Albertsson, framkvæmdastjóri AFLS15:30 Velferðarkerfið og landsbyggðin – Hjalti Jóhannesson, landfræðingur og forstöðumaður Rannsóknarþjónustu Háskólans á Akureyri

16:15 Kaffihlé16:40 Verkalýðshreyfingin og velferð – Halldór Grönvöld, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ17:30 Kjör 5 fulltrúa í uppstillingarhóp17:40 Umræður í hópum18:30 Fundarhlé19:30 Kvöldverður í boði AFLs Starfsgreinafélags

Laugardagur 31. mars08:00 Morgunverður09:00 Viðhorf félagsmanna AFLs – Sigríður Ólafsdóttir, ráðgjafi, Capacent Gallup10:00 Lífeyrissjóðaskýrslan - staða Stapa 11:00 Umræður í hópum12:30 Hádegisverður13:45 Stefnumótunarumræða – inngangur 14:00 Unnið í hópum

15:30 Kaffi16:00 Hópar kynna niðurstöður – pallborð17:00 Ársfundi slitið.

Ársfundurinn verður haldinn að Hótel Hallormsstað. Skráning trúnaðarmanna er í síma 4700 303 eða [email protected]. Skipulagðar ferðir verða frá þéttbýliskjörnum félagssvæðis.

Ath. þátttaka er trúnaðarmönnum að kostnaðarlausu.