E303 menntakvika fjarnám

30
Úttekt á fjarkennslu í framhaldsskólum Sólveig Jakobsdóttir, dósent [email protected] Þuríður Jóhannsdóttir, lektor, [email protected] RANNUM - Menntavísindasviði HÍ Unnið fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið vorið 2010 Menntakvika 2010

Transcript of E303 menntakvika fjarnám

Page 1: E303 menntakvika fjarnám

Úttekt á fjarkennslu í framhaldsskólum

Sólveig Jakobsdóttir, dósent [email protected]

Þuríður Jóhannsdóttir, lektor, [email protected]

RANNUM - Menntavísindasviði HÍ

Unnið fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið

vorið 2010

Menntakvika 2010

Page 2: E303 menntakvika fjarnám

Úttekt

• Miðast við að svara ákv. spurningum; leggja fram

rökstuddar og raunhæfar tillögur til úrbóta

• Beinist að FÁ, VÍ og VMA (75% fjarnema þar)

• Gögn frá vori 2010: 991 nemum og 127 kennurum

(kannanir); 6 stjórnendum (viðtöl), 36 námskeiðsvefjum

(úttekt skv. alþjóðlegum gæðaviðmiðum iNACOL)

• Skýrsla • Sólveig Jakobsdóttir og Þuríður Jóhannsdóttir. (2010). Úttekt á fjarkennslu í

framhaldsskólum. Reykjavík: RANNUM og SRR Háskóla Íslands.

http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/fjarnam_uttekt_2010.pdf

Menntakvika 2010

Page 3: E303 menntakvika fjarnám

Spurningar og svör

Menntakvika 2010

Page 4: E303 menntakvika fjarnám

1. Er fjarnámið í samræmi við gildandi

aðalnámskrá framhaldsskóla (2004)?

• Já – þessir þrír skólar bjóða áfanga í fjarnámi sem eru í

samræmi við skilgreinda áfanga á þeim brautum

framhaldsskólans sem hver skóli býður fram nám á.

• Fjarnámið hefur þróast í samræmi við áætlun/stefnu

menntamálaráðuneytisins.

– Forskot til framtíðar (2001): dreifnám eflt svo nemendur geti

stundað fjölbreytt nám óháð búsetu.

– Áræði með ábyrgð (2005):„stuðlað verði að frekari þróun

dreifmenntunar þar sem nám verður óháð stað og stund.“

Menntakvika 2010

Page 5: E303 menntakvika fjarnám

Fjarnemar: dreifing á skóla (fjöldi)

Menntakvika 2010

0

5

10

15

20

25

30

FSU

MH FB MÍ

BH

S

Tækn

iskó

lan

n

FVA

MA

MK

FSS VÍ

FG

Kve

nn

ó

FAS

Flen

s

Fhu

s

FNV

FSN

MB

ME

VA

VM

A

FÍV

ML

Hra

ðb

rau

t

IH

Iðn

skó

linn

Flau

g

FMO

S

MR

MS

MTr

öll

VMA

8% 10%

25%

1,3%

10%

0

5

10

15

20

25

30

Fjarnám í öðrumframhaldsskóla

Dagskóla í samaskóla

Dagskóla í öðrumskóla

Háskóla Grunnskóla

Page 6: E303 menntakvika fjarnám

2. Hvernig er námið skipulagt með

tilliti til samspils við dagskóla?

• Fjarnámið er yfirleitt skipulagt í nánu samspili við

dagskólanámið. Sömu námskröfur eru gerðar og stuðst

við sömu kennslubækur og prófin eru sambærileg.

• Faggreinadeildir bera faglega ábyrgð á sínum greinum í

FÁ og VÍ og þar eru almennt sömu kennarar í fjarkennslu

og dagskólakennslu.

• Í VMA eru fleiri fjarkennarar utan skólans og þeir eru ekki

endilega í samstarfi við fagdeildir sem ekki bera sem

slíkar faglega ábyrgð á fjarkennslu.

Menntakvika 2010

Page 7: E303 menntakvika fjarnám

3. Hvernig er námsframboðið?

Skóli Fjöldi

áfanga Allir með Sérstaða

FÁ 120-130 Stúdentsbraut Heilbrigðisbraut

VÍ 150 Stúdentsbraut Verslunarbraut

VMA 120-130 Stúdentsbraut Sjúkraliðabraut Iðnnámsbraut

Meistaraskóli iðnsveina

Menntakvika 2010

Page 8: E303 menntakvika fjarnám

4. Hvaða hópar stunda fjarnám?

• Mjög breiður hópur!

• Meirihlutinn er konur (66%). Meðalaldur 24-29;

Búseta víða á landinu og erlendis (tafla 3 bls.11).

Töluverður hópur svarenda (22%) úr dreifbýli án

framhaldsskóla í sama pnr.

Menntakvika 2010

9

33

25

9 10 9 5 7

51

20

8 5 5 4

0

32

18 13 15 16

8

0

10

20

30

40

50

60

15 og

yngri

16-20 21-25 26-30 31-40 41-50 51 og

eldri

%

FÁ VÍ VMA

Page 9: E303 menntakvika fjarnám

5. Hver er þörfin fyrir fjarnám?

• Mikill fjöldi fjarnema skráður (3228 á vorönn 2010) = mikil eftirspurn

og því væntanlega þörf. Meirihluti nemendanna (ekki síst konur)

metur þörf sína fyrir fjarnám mikla/mjög mikla; telur það hafa mikið

hagnýtt og menntunarlegt gildi. Yngsti hópurinn, 15 og yngri, telur

síður þörf.

• Dreifing nemenda um allt landið, langflesta framhaldsskóla og mjög

marga grunnskóla sýnir að mikil þörf er á að veita aðgengi að

menntun með sveigjanlegum hætti eins og gert er með fjarnáminu.

• Aðstæður margra nemenda eru þannig að þeir hafa greinilega þörf

fyrir mikinn sveigjanleika í námi s.s. vegna vinnu með námi,

fjölskylduaðstæðna og barna, veikinda, og félaglegra ástæðna.

Menntakvika 2010

Page 10: E303 menntakvika fjarnám

Ástæður fyrir fjarnámi Aldurshópur (N) Meginástæður (% sem velja)

Grunnsk. (95) Flýta fyrir sér í náminu (70)

16-20 (340) Vantar einingar (44), sveigjanleiki í tíma, þægilegt (35), flýta fyrir sér (31)

21-25 (216) Vantar áfanga (56), sveigjanleiki í tíma (48), þægilegt (40) Hægt að stunda nám með vinnu (40), sveigjanleiki í staðs. (38)

26-40 (191) Hægt að stunda með vinnu (57), sveigjanleiki í tíma (55) Vantar áfanga (52), sveigjanleiki í staðs. (43), þægilegt (43), Bæta við þekkingu (40), heimavinnandi v. fjölsk (37)

41-50 (94) Hægt að stunda með vinnu (66), bæta við þekkingu (57) þægilegt (41), vantar áfanga (39), sveigjanl. í staðs. (35)

51+ (50) Bæta við þekkingu (80), hægt að stunda með vinnu (66) Þægilegt (50), sveigjanl. í tíma (46), sveigjanl. í stðast. (32)

Menntakvika 2010

Page 11: E303 menntakvika fjarnám

6. Hvernig hentar námið mismunandi

hópum?

• Fólki finnst yfirleitt fjarnámið henta sér vel/mjög vel og stórum hluta

fjarnema finnst þægilegt að stunda fjarnám.

• Aðeins um 5% telja að henti sér illa/mjög illa, flest af þeim yngra fólk,

<25)

• Kennarar telja að að aldurshópnum 21-40 henti sérstaklega vel að

stunda fjarnám.

Menntakvika 2010

Page 12: E303 menntakvika fjarnám

7. Eru gæði sambærileg við dagskóla?

Hver eru viðhorf til gæða?

Menntakvika 2010

35

41

20

3 1

27

39

29

4 1

0

5

10

15

20

25

30

35

40

45

Mjög

ánægð(ur)

Ánægð(ur) Misjöfn

reynsla

Óánægð(ur) Mjög

óánægð(ur)

Fjarnám Dagskóli

36

68 66

90

18 26

50

23 26

8

27

57

14 9 8

2

55

18

0

20

40

60

80

100

Námsefni Kennsla Samskipti við

kennara

Samskipti

nemenda

Stjórn á eigin

námi

Námsmat

%

Miklu betra/betra í dagskóla Svipuð gæði Miklu betra/betra í fjarnámi

Mynd 5. Samanburður

nemenda á dagskólanámi og

fjarnámi varðandi gæði

nokkurra þátta (hlutfall sem

velur hvert svar).

Mynd 2. Ánægja/óánægja

fjarnema með fjarnám og nám

í dagskóla þegar á heildina er

litið. Hlutfall (%) sem velur

hvern möguleika.

Page 13: E303 menntakvika fjarnám

Dæmi um umsagnir Skóli Jákvætt Upp og ofan Neikvætt

FÁ ..mér líkaði svo rosalega vel við Ármúla að ég er að hugsa um að verða stúdent þaðan frekar en frá Framhaldskólanum í X. Svo vel hefur mér líkað að vera í fjarnámi hjá ykkur. Takk fyrir allt! „ (kvk. 16-20 ára)

„Er í tveimur áföngum í fjarnámi, er mjög ánægð með námsfyrirkomulag og kennslu í öðrum áfanganum en mjög óánægð í hinum.“ (kvk. 21-25 ára)

„Sjúklega leiðinlegt þannig að maður dettur oft aftur úr. „ (kk. 16-20)

VÍ Mér líður bara eins og þið viljið að manni gangi vel, og þó svo að það séu eflaust 1000 nemendur í fjarnámi virðist ég skipta máli, ég er ekki bara einhver ein lítil baun í poppskál, eins og í skóla X og Y (kvk. 16-20)

„fjarnámsstjórinn í Versló er einstaklega góð í samskiptum þegar einhver vandamál hafa komið upp. Kennarar fjarnámsins eru mjög misjafnir í samskiptum, sumir svara alltaf strax og sýna áhuga en aðra rétt sér maður inni á vefnum í kringum próf“ (kvk. 51+)

„Ég almennt mjög óánægð með fjarnámskennsluna í Versló! Námsgögnin eru óljós, kennarinn svarar ekki fyrirspurnum, gefur ekki úr verkefnum.“ (kvk. 16-20)

VMA af þeim skólum sem ég hef stundað fjarnám við finnst mér Verkm.sk. Ak langbestur hvað varðar skipulag, samband við fjarnámsstjóra, skrifstofu og kennara. (kvk. 51+)

Finnst maður stundum vera svolítið "á hakanum" hjá sumum kennurum sem trassa lengi að svara manni. (kvk. 16-20) Bæta þarf kennslubréf töluvert. (kk. 16-20)

Alger vonbrigði með kennsluna. Engar útskýringar, hjálp eða persónuleg samskipti við kennara eða aðra nemendur. (kk. 26-30)

Menntakvika 2010

Page 14: E303 menntakvika fjarnám

7. Eru gæði sambærileg við dagskóla?

Hver eru viðhorf til gæða?

• Skólastjórar og stjórnendur fjarnáms telja að gæði fjarnámsins séu

sambærileg við dagskólanám og fjarnámið síst léttara og bæði

nemendur og kennarar eru jákvæðir í mati á fjarnáminu. Mikill

meirihluti nemenda og kennara er ánægður með fjarnámið.

• Prófin eru sambærileg til að tryggja að gæðin séu sambærileg.

• Meirihluti fjarnema telur að námsmat í fjarnámi sé gott eða mjög gott

og að það sé svipað að gæðum í dagskóla og fjarnámi.

• Um helmingur nemenda taldi námsárangur sinn svipaðan í dagskóla

og fjarnámi. Meirihluti kennara telur námsárangur sambærilegan.

• Meira en helmingur nemenda taldi að þeir hefðu meiri stjórn á eigin

námi í fjarnámi en rúmum fjórðungi fannst það svipað.

Menntakvika 2010

Page 15: E303 menntakvika fjarnám

7. Eru gæði sambærileg við dagskóla?

Hver eru viðhorf til gæða?

• Meirihluti nemenda telur kennslu betri í dagskóla, fjórðungi fannst

þetta svipað, lítill hluti taldi fjarnámið betra.

• Rúmlega helmingi kennara fannst kennsla sín svipuð í dagskóla og

fjarnámi; tæpum helmingi fannst hún betri eða miklu betri í dagskóla.

• Bæði nemendur og kennarar telja að námsefni í fjarnámi sé gott og

nemendur telja það nokkuð svipað að gæðum og í dagskóla.

• Meirihluti nemenda og kennara telja dagskólanám almennt betra en

fjarnám hvað varðar samskipti nemenda og kennara.

• Meirihluti nemenda segir samskipti nemenda í fjarnámi vera mj. lítil

eða lítil, langflestir nemenda telja þau betri/miklu betri í dagskóla.

• Meirihluti kennara segir samskipti milli fjarkennara vera mjög lítil/lítil.

Menntakvika 2010

Page 16: E303 menntakvika fjarnám

8. Hvernig eru kennsluhættir og

námsgögn í námi á netinu?

• Kennslubækur og kennslubréf frá kennurum algengasta námsefnið.

• Tenglar í námsefni á netinu mikið notaðir til að vísa á efni.

• Notkun hljóð- og myndefnis (skjáupptökur, kvikmyndabútar,

talglærur o.þ.h.) er ekki mikið notað en mest í VÍ.

• Flestir kennarar segjast gefa nemendum endurgjöf á verkefni sem

unnin eru á önninni í formi einkunna.

• Meirihluti kennara gefa persónulega endurgjöf á verkefni.

• Tæpur helmingur kennara segja að nemendur fái tækifæri til að

vinna að sjálfstæðum verkefnum.

• 20-30% kennara segja nemendur fá tækifæri að velja milli verkefna.

• Marktækur munur á skólum hvort nemendur hafa tækifæri til að fara

mishratt í gegnum námsefnið mest í VÍ, tölvuert í FÁ minna í VMA.

Menntakvika 2010

Page 17: E303 menntakvika fjarnám

8. Hvernig eru kennsluhættir og

námsgögn í námi á netinu? Frh.

• Gagnvirk krossapróf fyrir sjálfsmat nemenda eru mikið notuð mest í

FÁ en um helmingur kennara í VÍ og MA nota þau.

• Þátttaka í umræðum er lítið notuð sem liður í námsmati en þó mælist

marktækur munur á milli skóla þar sem í FÁ kennarar nota meira.

• Matstæki til að búa til gagnvirk próf er mest notaða verkfærið í

kennslukerfinu (ef frá er talinn einkapóstur til samskipta).

• Kennarar nota kennslukerfið vel í sambandi við skipulag og til að

gefa nemendum tækifæri til æfinga og sjálfsprófa.

• Almennt lítil samskipti. Um helmingur kennara segist þó setja upp

umræðusvæði. Mjög lítið um að gert sé ráð fyrir samvinnu nemenda.

• Betur virðist þurfa að huga að samvinnu, samræðum og þáttum sem

efla samkennd og samhjálp nemenda.

Menntakvika 2010

Page 18: E303 menntakvika fjarnám

9.Hvernig er háttað starfsþróun kennara?

• Helmingur kennara hefur engan formlegan undirbúning úr

kennaranámi f. fjarkennslu, tæpur helmingur tekið einhver námskeið.

• Um 25% kennara hefur reynslu af að vera fjarnemar í kennaranámi.

• Kennarar hafa yfirleitt aðgang að leiðsögn og tækniaðstoð varðandi

fjarkennsluna í skólanum, síst þó VMA kennarar.

• Meirihluti kennara hefur átt kost á námskeiði um fjarkennslu áður en

kennsla hófst, færri í VMA en í hinum skólunum og ánægja með slík

námskeið mælist mest í FÁ.

• Meirihluti kennara nýtir sjálfsnám og stuðning frá skóla og

samkennurum til að byggja upp fjarkennslu sína.

Menntakvika 2010

Page 19: E303 menntakvika fjarnám

10. Hversu mikið er brottfall? • Í VMA hefur brottfall verið minnst en þar var 27% brottfall á vorönn

2010 sem var óvenju mikið.

• Í FÁ var brottfall 33% á vorönn 2010 sem var óvenju lítið.

• Í VÍ hefur brottfall almennt verið um 40% og var það á vorönn 2010.

• Ekki er víst að þessar tölur séu sambærilegar þar sem aðferðir sem

notaðar eru við útreikning brottfalls eru ekki alls staðar eins.

• Nemendur gefa oftast þá ástæðu fyrir að hafa sagt sig úr áföngum

að þeir hafi verið í of mikilli vinnu með náminu og að þeir hafi skráð

sig í of marga áfanga. Erfitt námsefni og of mikið álag í áfanganum

eru líka ástæður fyrir að nemendur hætta. Lítill hluti (16%) nefnir að

skipulag áfangans hafi ekki verið gott.

Menntakvika 2010

Page 20: E303 menntakvika fjarnám

11. Hver er kostnaður við fjarnám? • Erfitt er að aðgreina kostnað við fjarkennslu frá almennri þjónustu

skólanna nákvæmlega. Kennslukostnaður er stærsti liðurinn.

• Kennslukostnaður á hverja einingu í fjarnámi er um um 10.000 í FÁ

um 13.000 kr. í VÍ og um 20.000 kr í VMA.

• Hópastærð hefur áhrif á kostnað í VÍ og FÁ þar sem stórir hópar eru

hagkvæmari en litlir dýrari. Í VMA skiptir hópastærð ekki máli þar

sem kennarar frá greitt fyrir hvern nemanda sem þeir kenna.

• Kjarasamningar hafa ekki verið gerðir við Kennarasamband Íslands

um fjarkennslu heldur gerir hver skólinn samning við sína kennara.

Samningar FÁ og VÍ eru sambærilegir en í VMA er útfærsla

samnings með öðru móti.

Menntakvika 2010

Page 21: E303 menntakvika fjarnám

SVÓT greining

Ábendingar og tillögur

Menntakvika 2010

Page 22: E303 menntakvika fjarnám

Styrkleikar fjarnámsins • Mikil jákvæðni í garð fjarnáms er áberandi meðal allra hópa

• Kemur til móts við mismunandi þarfir stórs nemendahóps

• Grunnskólanemendur hafa átt kost á að taka áfanga

• Nemendur í dagskóla geta flýtt fyrir sér eða unnið upp.

• Möguleiki til að taka áfanga getur dregið úr brottfalli.

• Auðveldara að taka upp þráðinn ljúka námi með vinnu/öðru.

• Miðaldra/eldra fólk hefur nýtt tækifæri til að sækja sér menntun.

• Hægt er að bjóða fólki að taka fjarnám óháð búsetu.

• Fólk sem vegna aðstæðna, t.d. veikinda á ekki heimangengt.

• Nemendur geta sett saman námið eftir sínum þörfum.

• Nemendum býðst í meira mæli að hafa stjórn á eigin námi í fjarnámi.

Menntakvika 2010

Page 23: E303 menntakvika fjarnám

Veikleikar fjarnámsins • Líklega of lítil samskipti á milli nemenda og kennara og allt of lítil

nemenda sín á milli. Tækifæri tölvusamskipta eru vannýtt.

• Nemendur virðast fá of lítil tækifæri til að ráða ferðinni í námi sínu,

s.s. að velja sér verkefni, og ráða hraða yfirferðar.

• Kennsla í munnlegri færni í tungumálum sums staðar vanrækt.

• Seint gengið að þróa kennsluhætti í stærðfræði sem skila árangri.

• Verklegar tilraunir í raungreinum hafa víða orðið útundan.

• Meirihluti nemenda og kennara telur dagskólanámið betri kost en

fjarnámið þegar þeir eru beðnir að bera saman gæði nokkurra þátta.

• Þróun fjarnáms sem hluta af skólaþróun er misvel sinnt í skólunum

• Ekki til neinn kjarasamningur við Kennarasamband Íslands

Menntakvika 2010

Page 24: E303 menntakvika fjarnám

Ógnanir • Mikill niðurskurður til skólanna, einkum varðandi fjarnám

• Bitnað einna mest á grunnskólanemum. Mikil eftirsjá að þeim hópi,

duglegir nemendur skila sér vel til prófs, standa sig vel;

samvinnuverkefni milli skólastiga - í takt við stefnu (fljótandi skil).

• Áhyggjur af aldrinum 20-30+ , nemar sem hafa flosnað úr skóla en

vilja taka upp þráðinn. Hluti af vandamáli (mikið brottfall úr frhsk).

• Sumir hafa áhyggjur af því að stjórnvöld setji samræmdar reglur um

skipulag og framkvæmd fjarnáms sem muni geta kæft frumkvæði.

• Ný námsskrá fyrir framhaldsskóla - gerir ráð fyrir að hver skóli geti

skapað sér sína sérstöðu gæti gert erfiðara um vik.

• Þörf á að vera vakandi fyrir svindli, tryggja netöryggi, vinna með

netsiðferði

Menntakvika 2010

Page 25: E303 menntakvika fjarnám

Tækifæri til þróunar • Þróun tækni einkum varðandi hljóð- og myndsendingar á netinu.

• Þróun fjarnámsins sem hluta af starfsemi framhaldsskóla

• Samvinna við háskóla sem sjá um kennaramenntun um starfsþróun.

• Samvinna skóla um þróun fjarnámsformsins býður upp á tækifæri til

að miðla reynslu og hugmyndum.

• Aukið samstarf við símenntunarstöðvar á landsbyggðinni gæti styrkt

þátttöku dreifbýlisfólks í fjarnámi.

• Mikilvægi þess að þróa upplýsingalæsi nútímafólks ofarlega á baugi.

• Ör þróun í opnum og ókeypis hugbúnaði gæti verið leið til að gera

fjarnámið hagkvæmara og þyrfti að huga að því ekki síst á

niðurskurðartímum.

Menntakvika 2010

Page 26: E303 menntakvika fjarnám

Viðbrögð frá skólum og

ráðuneyti

Í kjölfar þessarar úttektar...

Menntakvika 2010

Page 27: E303 menntakvika fjarnám

• Samskipti /sveigjanleiki. “Þitt

nám þegar þér hentar.” Kjörorð

okkar frá upphafi. Allt námsefni

aðgengilegt frá upphafi.

• Fjarnám fyrir alla.

• Nýr kjarasamningur/aukin

tenging við starfshlutfall

kennara skólans.

• Fróðlegt væri að sjá

niðurstöður á mati einstakra

áfanga.

• Bera saman við dagskóla

(brottfall, meðaleinkunnir).

• Breyta veikleikum í styrkleika

(tungumál, stærðfræði o.fl.)

• Verkefni/próf opin frá upphafi

getur verið bæði plús og mínus

enda nemendahópurinn

ólíkur.

• Samstarf við aðra skóla býður

upp á möguleika, t.d. faglega

ráðgjöf, umsýslu, skráningu,

hugbúnaðarþekkingu o.þ.h.

• Varast of mikla miðstýringu!

21.10.2010 FÁ / SHH

Page 28: E303 menntakvika fjarnám

• Skólinn er ánægður með þá faglegu úttekt sem gerð var á fjarkennslu á framhaldsskólastigi sl. vor

• Eftir sem áður mun skólinn leggja mikla áherslu á þróun fjarkennslu og þá sérstaklega:

– Gerð rafræns námsefnis

– Menntun fjarkennara

• Meiri samvinna við háskóla varðandi símenntun kennara væri æskileg

Page 29: E303 menntakvika fjarnám

• Úttekt þótti fróðleg, henni fagnað. Gott að fá samanburð við aðra

skóla

• Virðist sem nemendur í öllum skólunum séu ánægðir með þá

þjónustu og kennslu sem þeir fá.

• Hefði verið betra að hafa fleiri áfanga inni (tekna út).

• Munu nota niðurstöður ásamt öðrum gögnum til að endurskoða

verklag og vinnuframlag nemenda og kennara í fjarnámi

• Haft að leiðarljósi að leyfa kennurum að ráða hvort þeir kenni

áfangann í gegnum tölvupóst. Verði fjarkennsla skipulögð miðlægt í

framtíðinni er eðlilegt að allir séu að vinna í sama umhverfi og sama

viðmiðun sé um vinnuframlag og vinnubrögð.

Menntakvika 2010

Page 30: E303 menntakvika fjarnám

Mennta- og

menningarmálaráðuneyti

• Samstarfsnefnd um fjarnám í framhaldsskólum hefur

notað niðurstöður skýrslu í sinni vinnu (óbirt skýrsla)

• Hugmyndir um breytingar á fjarnámi í framhaldsskólum –

kynntar og ræddar á samstarfsnefndar-fundi

framhaldsskólanna (þri. 12.okt.)

• Áframhaldandi vinna að móta og koma á formlegu

samstarfsneti framhaldsskólanna um fjar- og dreifnám

• Árið 2010 50% niðurskurður á fjarnámi, 2011 enginn

sérstakur niðurskurður á fjarnámi, flatur á framhald

Menntakvika 2010