Uppskriftir úr þætti 3 í Grillsumrinu Mikla

2
Uppskriftir 3. þáttur Aðferð: Hitið pott á grillinu með smá olíu og brúnið létt lauk og hvítlauk, bætið bláskel út í og hrærið. Setjið hálfan bjór út í og fáið upp suðu. Takið af hitanum og setjið saxaða steinselju yfir. Berið fram með grillaðri sítrónu. Bláskel í bjór • 1 poki bláskel frá Sælkerafisk • 2 stk skarllottulaukur, saxaður • 1 flaska Hoegaarden bjór • 2 stk hvítlauksgeirar, saxaðir 1/2 búnt steinselja • 1 sítróna Skelfiskur: • 1 pakki risarækja frá Sælkerafisk • 1 pakki hörpuskel frá Sælkerafisk • 1 pakki skelflettur humar frá Sælkerafisk • 2 stk lime • 2 stk vorlaukur, saxaður • smá steinselja, söxuð • kryddsmjör (sjá uppskrift) • smjörpappír Aðferð: Skiptið skelfisknum jafnt á þrjár smjörpappírs- arkir, ca 40x50 cm og setjið 2-3 matskeiðar af kryddsmjörinu á hverja og eina. Bætið vorlauknum og smá limesafa yfir og lokið með því að snúa upp á pappírinn. Setjið á heitt grillið í 1-2 mín og færið svo upp á efri grind eða lækkið alveg hitann á grillinu og eldið í ca 3 mín til viðbótar eða þar til smjörið er farið að malla vel. Opnið pokana stráið saxaðri steinselju yfir og berið fram með lime- bátum. Skelfiskur í umslagi Kryddsmjör: • 250 gr smjör • 4 hvítlauksgeirar • 25 gr steinselja • 20 gr skessujurt • 20 gr hvönn • salt og pipar Aðferð: Setjið allt í matvinnsluvél og blandið vel saman. Einnig má nota mortél en þá er byrjað á að merja hvítlaukinn, síðan jurtirnar og smjörið í lokin. Ath. það má nota hvaða kryddjurtir sem er t.d. basil, dill og graslauk.

description

 

Transcript of Uppskriftir úr þætti 3 í Grillsumrinu Mikla

Page 1: Uppskriftir úr þætti 3 í Grillsumrinu Mikla

Uppskriftir

3. þáttur

Aðferð:Hitið pott á grillinu með smá olíu og brúnið létt lauk og hvítlauk, bætið bláskel út í og hrærið. Setjið hálfan bjór út í og fáið upp suðu. Takið af hitanum og setjið saxaða steinselju yfir. Berið fram með grillaðri sítrónu.

Bláskel í bjór• 1 poki bláskel frá Sælkerafisk• 2 stk skarllottulaukur, saxaður• 1 flaska Hoegaarden bjór• 2 stk hvítlauksgeirar, saxaðir• 1/2 búnt steinselja • 1 sítróna

Skelfiskur:• 1 pakki risarækja frá Sælkerafisk• 1 pakki hörpuskel frá Sælkerafisk• 1 pakki skelflettur humar frá Sælkerafisk• 2 stk lime• 2 stk vorlaukur, saxaður• smá steinselja, söxuð• kryddsmjör (sjá uppskrift)• smjörpappír Aðferð:Skiptið skelfisknum jafnt á þrjár smjörpappírs-arkir, ca 40x50 cm og setjið 2-3 matskeiðar af kryddsmjörinu á hverja og eina. Bætið vorlauknum og smá limesafa yfir og lokið með því að snúa upp á pappírinn. Setjið á heitt grillið í 1-2 mín og færið svo upp á efri grind eða lækkið alveg hitann á grillinu og eldið í ca 3 mín til viðbótar eða þar til smjörið er farið að malla vel. Opnið pokana stráið saxaðri steinselju yfir og berið fram með lime-bátum.

Skelfiskur í umslagiKryddsmjör:• 250 gr smjör• 4 hvítlauksgeirar• 25 gr steinselja• 20 gr skessujurt• 20 gr hvönn• salt og pipar

Aðferð:Setjið allt í matvinnsluvél og blandið vel saman. Einnig má nota mortél en þá er byrjað á að merja hvítlaukinn, síðan jurtirnar og smjörið í lokin. Ath. það má nota hvaða kryddjurtir sem er t.d. basil, dill og graslauk.

Page 2: Uppskriftir úr þætti 3 í Grillsumrinu Mikla

Tataki dressing:• 1 msk soya sósa frá Blue Dragon• 2 msk kirsuberjaedik Meyer’s• 1 msk ólífuolía• 1 skarlottulaukur, saxaður fínt• 1/4 chili, saxaður fínt• 1/6 engifer, saxað fínt

Grillaðir tómatar• 4 stk heilsutómatar• 1 stk Mozzarellakúla (skorin í sneiðar)• 1/2 búnt basil• 1 hvítlauksgeiri (skorinn í þunnar sneiðar)• Filippo Berio ólífuolía• Meyer’s kirsuberjaedik• salt og pipar

Aðferð:Skerið tómatana til helminga, setjið smá ólífuolíu, kirsuberjaedik og salt og pipar í sárið. Raðið hvítlaukssneiðum því næst á tómatinn og látið standa í nokkrar mínútur. Grillið tómatinn á sárinu í 2 mínútur, snúið honum svo við og setjið 2-3 basillauf og mozzarella ost ofan á tómatinn. Grillið svo þangað til osturinn er orðinn mjúkur.Kryddið með salti og pipar eftir smekk.

Hrossatataki með Hoisin• 1/2 stk hrossalund• 3 msk Blue Dragoon Hoisin sósa• salt og pipar• 1 stk lime• 10 gr myntulauf

Aðferð:Setjið allt í botn á grillinu og skellið þá kjötinu á aðra hliðina og grillið í 1 mínútu á hvorri hlið, penslið svo með Hoisin sósu. Leyfið kjötinu að hvíla í 5 mín áður en það er skorið, saltið og piprið eftir smekk. Skerið í þunnar sneiðar og berið fram með límónu-bátum, myntulaufum og tataki dressingu.

Grillaður Halloumi ostur• 1 stk Halloumi ostur (ca 200gr.)• 4 msk Filippio Berio ólífuolía• 2 msk hunang• safi úr 1/2 sítrónu• salt og piparAðferð:Skerið ostinn í svipað stóra teninga og raðið á spjót. Blandið öllu öðru saman í skál og hrærið vel saman og penslið dressingunni á ostinn. Grillið ostaspjótin í 45-60 sek. á hverri hlið og penslið með meiri dressingu. Berið fram með hnetu- og fræmylsnunni og borðið á meðan osturinn er heitur.

Hnetu- og fræmylsna• 1 msk ristuð graskersfræ• 1 msk ristaðar salthneturAðferð:Setjið saman í mortél og myljið í grófan mulning.

Vínþjónninn mælir með Adobe Chardonnay, lífrænt ræktuðu hvítvíni frá Chile, sem er frábært vín með sjávar-réttum. Hoegaarden belgískur hveitibjór er góður kostur í eldamennskuna og fer einstaklega vel með bláskel. Í Hoegaarden er notaður appelsínubörkur og kóriander sem tónar mjög vel við kræklinginn.