Samhæfing líkamsstarfa

32
Samhæfing líkamsstarfa

description

Samhæfing líkamsstarfa. Boðflutningskefi líkamans. Tvö líffærakerfi sjá alfarið um boðflutning í líkamanum og samhæfa þannig líkamsstarfsemina, en það eru taugakerfið og innkirtlakerfið Raunar eru þessi kerfi svo samslungin að ómögulegt er að gera grein skil á milli þeirra - PowerPoint PPT Presentation

Transcript of Samhæfing líkamsstarfa

Page 1: Samhæfing líkamsstarfa

Samhæfing líkamsstarfa

Page 2: Samhæfing líkamsstarfa

Boðflutningskefi líkamans• Tvö líffærakerfi sjá alfarið um

boðflutning í líkamanum og samhæfa þannig líkamsstarfsemina, en það eru taugakerfið og innkirtlakerfið

• Raunar eru þessi kerfi svo samslungin að ómögulegt er að gera grein skil á milli þeirra

• T.d. Stjórnar undirstúkan (sem er hluti af heilanum) fjöldan allan af innkirtlum í gegnum heiladingulinn.

Page 3: Samhæfing líkamsstarfa

Taugakerfið

• Taugakerfið– Heili, mæna og taugar– Samtengt kerfi– Boð berast hratt til ákveðinna staða,

þ.e. eingöngu til markfrumna– Boðin endast stutt

Page 4: Samhæfing líkamsstarfa

Innkirtlakerfið

• Innkirtlakerfið– Heildadingull, skjaldkirtill, kalkkirtlar,

nýrnahettur, bris, eistu og eggjastokkar o.fl.

– Er ekki samtengt kerfi, þ.e. Innkirtlarnir eru dreifðir um líkamann og tengjast ekki í eina líffæra heild.

– Boð berast með blóði og eru lengur á leiðinni.

– Boðin endast lengur

Page 5: Samhæfing líkamsstarfa

Boðflutningskefi líkamans• Taugakerfið kemur boðunum hratt

áleiðis og aðeins á ákveðin stað, þ.e. nærliggjandi frumu.

• Innkirtlakerfið myndar hormón sem er seytt í blóðið og dreifist þannig um allan líkamann.

• Boðefni innkirtlakerfisins (hormón) eru lengur að komast á staðinn en virka að sama skapi lengur en boð frá taugakerfinu.

Page 6: Samhæfing líkamsstarfa

Boðefni og nemar• Til þess að boðefni

(taugaboðefni og hormón) geti verkað á tiltekna frumu (markfrumu) þarf sú fruma að hafa nema fyrir tiltekið boðefni.

• Boðefnið virkar því aðeins ef fruman hefur sértækan nema fyrir tiltekna boðefnið

• Þessi nemi er yfirleitt sökkulprótein staðsett á frumuhimnunni.

• Þegar boðefnið sest á nemann losar það innboða (second messenger) innan í frumunni sem kemur áhrifum boðefnisins til skila

• Best þekkti innboðinn er cAMP

Page 7: Samhæfing líkamsstarfa

Boðefni og nemar

• Sterar (sem er hluti hormóna) og skjaldkyrtilshormónin þýroxíð og þríjoðóþýroxíð komast í gegnum lípíðsamloku frumuhimnunnar og inn í frumuna.

• Neminn fyrir þessi boðefni er því í umfryminu eða í kjarnanum

Page 8: Samhæfing líkamsstarfa

Virkni stera

Page 9: Samhæfing líkamsstarfa

Innkirtlakerfið• Innkirtlakerfið eru til að samhæfa störf

líkamans ásamt taugakerfinu– Það t.d. hefur áhrif á efnaskipti, stýrir

vexti og þroskun og stjórnar æxlunarferlum

• Innkirtlar er klasi sérhæfa frumna sem eru víðsvegar um líkamann og hefur hver þeirra sérhæft hlutverk, þótt þeir seiti mismörgum boðefnum.

• Boðefnið sem innkirtlar seyta kallast hormón

Page 10: Samhæfing líkamsstarfa

Innkirtlakerfið

• Innkirtlar eru æðaríkir og seyta hormónum sínum beint út í æðakerfið, sem sér um að flytja það til markfrumna.

• Hvert hormón hefur sérstaka efnasamsetningu og hefur aðeins áhrif á ákveðnar frumur (þ.e. þær frumur sem hafa nema fyrir tiltekið hormón)

Page 11: Samhæfing líkamsstarfa

Helstu innkirtlar líkamans

Page 12: Samhæfing líkamsstarfa

Innkirtlakerfið

• Kannast mjög vel við töflu 2.1. bls 43

Page 13: Samhæfing líkamsstarfa

Efnasamsetning hormóna• Amín: Umbreyttar amínósýrur

– T.d. Dópamín, þyroxín og adrenalín• Peptíð: Þegar amínósýrurnar eru

tvær eða fleiri tengdar saman verður til peptíð– Öll heiladingulshormónin, insulin og

glúkagon• Sterar: eru hringlaga sameindir.

– Sterar eru lengur að virka en peptíð og amíð hormónin, en þeir virka lengur.

– Hormón nýrnahettubarkar og kynhormón

Page 14: Samhæfing líkamsstarfa

Hvernig verka hormón

• Hormón geta verkað aðallega á þrennskonar hátt:

1. Þau geta stjórnað hraða ensíma og efnahvarfa

2. Þau geta stjórnað fluttningi efna í gegnum frumuhimnur

3. Þau geta stjórnað genatjáningu og myndun próteina

Page 15: Samhæfing líkamsstarfa

Heiladingull• Heiladingull er nokkurskonar

yfirkirtill og hefur áhrif á starfsemi fjölda innkirtla

• Heiladingull skiptist í fram- og afturhluta

• Aftari hluti heiladinguls er eiginlegur taugavefur, og framhald af undirstúkunni.– Hann framleiðir ekki hórmón

sjálfur heldur seytir hormónum sem undistúkan framleiðir

• Framhluti heiladinguls, er sannur kirtilvefur og seytir hormónum út í blóðið.

Page 16: Samhæfing líkamsstarfa

Heiladingull og undirstúka

• Framhlutinn er undir stjórn frá undirstúkunni sem metur magn hormóns í blóðinu og sendir svo framhlutanum stýrihormón

• Stýrihormón geta verið af tvennum toga– Leysihormón, sem eykur seyti

hormónsins– Hömlunarhomón, sem minnkar seyti

hormónsins

Page 17: Samhæfing líkamsstarfa

Heiladingull

Page 18: Samhæfing líkamsstarfa

Heiladingull• Framhluti heiladinguls (kirtilhluti) losar

– Stýrihormón skjaldkitils, nýrnahetturbarkar og kynkirtla

– Vaxtarhormón: örvar vöxt líkamans– Prólaktín: örvar þroska brjósta hjá konum og

seytingu mjólkur• Afturhluti heiladinguls (taugahluti)

– Þvagtemprandi hormón (ADH eða Vasópressín). Sér um enduruppsog vatns í nýrum og dregur þar með úr þvagmagni

– Hríðarhormón (oxytósín): Örvar hríðir og losun mjólkur úr brjóstum

ATH mynd 2.3. bls 42

Page 19: Samhæfing líkamsstarfa

Fremri hluti heiladinguls (kirtilhluti)

Page 20: Samhæfing líkamsstarfa

Aftari hluti heiladinguls (taugahluti)

Page 21: Samhæfing líkamsstarfa

Skjaldkirtill• H-laga kirtill rétt neðan við barkakýlið• Framleiðir tvö hormón, Þýroxín og Kalsítónín.

• Joð er líkamanum nauðsynlegt fyrir myndun á þyroxíni

• Þýroxín hefur mikil áhrif á efnaskipti (efnaskiptahraða) líkamans– Eykur efnaskiptin

• TSH, stýrihormón skjaldkirtils seytt frá framhluta heiladinguls, stjórnar framleiðslu þyroxíns í skjaldkirtlinum

• Kalsitónín stjórnar upptöku kalsíums (kalks) í beinin og styrkir þau

Page 22: Samhæfing líkamsstarfa

Kalkkirtlar

• Kalkkitlarnir eru fjórir, og eru tveir sitt hvoru megin við skjaldkirtilinn.

• Þeir framleiða kalkhormón (Parathormon eða PTH) sem hefur mikil áhrif á kalkefnaskipti líkamans.– Tekur kalk úr beinum, eykur

upptöku kalks úr meltingarvegi og setur það í blóðið

Page 23: Samhæfing líkamsstarfa

Briskirtill• Briskirtillinn er í kviðarholinu og

liggur á milli maga og skeifugarnar

• Briskirtill er bæði innkirtill og útkirtill (hann framleiðir líka meltingarensím)

• Innkirtilshluti brissins er ekki nema um 2% af heildarstærð hans, en það eru frumuklasar sem nefnast Langerhans-eyjar

• α (alfa) glúkagon frumur framleiða og β (beta) frumur framleiða insúlín

Page 24: Samhæfing líkamsstarfa

Briskirtill• Insúlín og glúkogon virka andstætt hvoru

öðru, en saman sjá þau um að halda blóðsykrinum stöðugum.

• Verði blóðsykurinn of hár, seytir (losar) brisið insúlíni sem greiðir fyrir upptöku glúkósa í frumum líkamans, og myndunar glýkogens í lifur blóðsykur lækkar

• Verði blósykurinn of lár aftur á móti, þá seytir brisið glúkagoni sem örvar losun á glýgogeni úr lifur og hægir á glúkósaupptöku frumnanna blóðsykur hækkar

Page 25: Samhæfing líkamsstarfa

Sykursýki• Sykursýki er það þegar líkaminn getur

ekki nýtt sér blóðsykurinn, hann kemst ekki inn í frumurnar

• Er þetta vegna þess að annaðhvort vantar insúlín eða það er hætt að virka eins vel og það gerði

• Líkaminn þarf því að brenna eingöngu prótíni og fitum, sem leiðir til uppsöfnunar á eiturefnum sem getur raskað sýrujafnvægi líkamans og fellt einstaklinginn i dá og leitt hann til dauða.

Page 26: Samhæfing líkamsstarfa

Sykursýki

• Til eru tvennskonar sykursýkistegundir

• Sykursýki I (insúlínháð sykursýki). Þar framleiðir brisið ekki insúlín.

• Sykursýki I leggst nær alltaf á börn eða ungt fólk

• Hún er ólæknandi og einstaklingurinn þarf að sprauta sig með insúlíni til að geta nýtt blóðsykurinn

Page 27: Samhæfing líkamsstarfa

Sykursýki• Sykursýki II (insúlínóháð sykursýki) er einnig

oft kölluð fullorðinssykursýki• Sykursýki II er þegar að insúlín er hætt að

virka eins vel og það gerði, þótt brisið framleiði það ennþá, og á því erfiðara með að koma blóðsykrinum inn í frumuna.

• Hún leggst á menn seinna á æviskeiðinu (miðaldra), þótt uggvænleg þróun á sér stað og hún er farin að leggjast á sífellt yngri einstaklinga.

• Sykursýki II er lífstílssjúkdómur, þar sem hann leggst yfirleitt á fólk í yfirvigt sem hreyfir sig lítið

Page 28: Samhæfing líkamsstarfa

Nýrnahettur• Nýrnahettur eru tveir

þríhyrningslaga innkirtlar, sem liggja hvor um sig ofan á nýrunum.

• Skiptist þær í merg og börk, en báðir hlutarnir framleiða og seyta hormónum.

• Virkni nýrnahettubarkarins er stjórnað frá framhluta heiladinguls.

Page 29: Samhæfing líkamsstarfa

Helstu hormón nýrnahettubarkar

• Kortisól (“stresshormón”) eykur:– nýmyndun glúkósa– niðurbrot glýkogens (bæði þessi atriði

hækkar blóðsykur) – niðurbot á prótínum og bælir

ónæmiskerfið. – Eykir virkni adrenalíns og verkar gegn

verkun insúlíns• Aldósterón, eykur upptöku á salti í

nýrum og eykur vökvarúmmál líkamans

Page 30: Samhæfing líkamsstarfa

Helstu hormón nýrnahettumergjar

• Framleiðir hormónið adrenalín en streyta, ótti og reiði hefur áhrif á framleiðslu þess.

• Adrenalín leiðir til “hrökkva eða stökkva” viðbragðs– hækkun á blóðsykri með nýmyndun glúkósa og

niðurbroti á glýkogeni– aukið niðurbrot á fitu– öndun og hjartsláttur eykst – blóðþrýstingur hækkar– blóðflæði eykst til vöðva en minnkar til annarra

líffæra• Noradrenalín er annað hormón sem

nýrnahettumergur losar, og virkar það mjög svipað

Page 31: Samhæfing líkamsstarfa

Kynhormón• Eistu karla

– Androgen, þeirra algengastur er testesterón– Örvar karlleg einkenni t.d. skeggvöxt, dýpkun

raddar og aukins vöðvavaxtar• Eggjastokkar kvenna

– Estradiol, þar er estrogen algengast– Örvar kvennleg einkenni t.d. myndun brjósta og

undirbýr slímhúð legsins fyrir egglos– Progesteron er annað hormón, en það myndast í

gulubúi og örvar þroska og æðakerfi legslímu.

Page 32: Samhæfing líkamsstarfa

Sterar fyrir aukinn vöðvavöxt

• Það er vel þekkt að anabólískir sterar geta aukið vöðvavöxt með því að auka próteinmyndun í vöðvum

• Hinsvegar vita flestir minna um aukaverkanir steranotkunar

• Steranotkun getur leitt til:– Aukningar á blóðfitu, sem getur leitt til

hjarta- og æðasjúkdóma– Heilablóðfall og hjartaáfall– Lifrar-, nýrna- og blöðruhálskrabbi– Skapbrestir og geðræn vandamál– Mikið af bólum– Karlmenn geta fengið “brjóst” – Eistu minnka og sáðfrumufjöldi

minnkar. – Geturleysi hjá körlum– Skalli hjá körlum– Konur geta fengið skeggvöxt auk þess

sem rödd dýpkar