Meginreglan um aðgreiningu hlutverka f orsenda góðra stjórnarhátta

16
26.11.2012 BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST 1 Málþing Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ, um val stjórnarmanna í opinberum félögum MEGINREGLAN UM AÐGREININGU HLUTVERKA FORSENDA GÓÐRA STJÓRNARHÁTTA

description

Meginreglan um aðgreiningu hlutverka f orsenda góðra stjórnarhátta. Málþing Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ, um val stjórnarmanna í opinberum félögum. Í erindi mínu mun ég fjalla um. - PowerPoint PPT Presentation

Transcript of Meginreglan um aðgreiningu hlutverka f orsenda góðra stjórnarhátta

Page 1: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

126.11.2012

Málþing Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ, um val stjórnarmanna í opinberum félögum

MEGINREGLAN UM AÐGREININGU HLUTVERKA

FORSENDA GÓÐRA STJÓRNARHÁTTA

Page 2: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

2

Í ERINDI MÍNU MUN ÉG FJALLA UM...

26.11.2012

• Mikilvægi góðra stjórnarhátta og af hverju þeir skipta enn meira máli í opinerum fyrirtækjum en einkafyrirtækjum

• Aðgreiningu hlutverka og hvers vegna aðgreining hlutverka er enn mikilvægari hjá opinberum fyrirtækjum en einkafyrirtækjum

• Mikilvægi skýrrar framtíðarsýnar og langtímastefnumótunar gagnvart fyrirtækinu

• Mikilvægi virks eftirlits eigandans með stjórn og hvernig hann getur beitt eigendavaldi sínu án þess að fara á svig við góða stjórnarhætti

• Þá hagsmunaárekstra sem augljóslega geta orðið ef aðgreining hlutverka er ekki virt í opinberum fyrirtækjum og það hversu skaðleg skörun milli hlutverka getur orðið fyrirtækjum

Page 3: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

3

GÓÐIR STJÓRNARHÆTTIR...

26.11.2012

• Stjórnarhættir: „Þær reglur og hefðir sem ríkja milli eigenda og umboðsaðila þeirra, stjórnar fyrirtækis og stjórnenda, og ætlaðar eru til að trygga hagsmuni eigenda og árangur fyrirtækisins“ (Skýrsla úttektarnefndar um OR, bls. 43)

• Eiga að stuðla að því að fyrirtæki séu rekin á faglegum forsendum. – þau séu vel rekin, sem til lengri tíma eykur arðsemi þeirra.

• Eru nauðsynlegir fyrir þá sem stjórna fyrirtækjunum – stjórnendur, stjórnarmenn – til að þeir geti rækt hlutverk sitt sem skyldi og þá sívaxandi ábyrgð sem á herðum þeirra hvílir

• Er m.a. ætlað að tryggja að umboðskeðjan virki sem skyldi, í tilviki OR: „Í sinni einföldustu mynd eru það íbúar þeirra sveitarfélaga sem standa að fyrirtækinu sem veita fulltrúum sínum í sveitarstjórn umboð sitt til að stýra verkefnum sveitarfélagsins, þar á meðal að velja í stjórnir fyrirtækja sveitarfélaganna til að starfa í almannaþágu.....er ætlast til að sá sem er ofar í stigveldinu hafi eftirlit með þeim sem neðar eru, þeas umboðsaðila sínum og sá sem er neðar veiti upplýsingar þeim sem ofar eru.“ (Skýrsla úttektarnefndar OR, bls. 47)

Page 4: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

4

UMBOÐSKEÐJAN

26.11.2012

Kjósendur (lýðræðislegt aðhald)

Ráðherra/Sveitarstjórn

Stjórn fyrirtækis

Forstjóri og aðrir stjórnendur

Page 5: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

5

MISMUNANDI HLUTVERK Í UMBOÐSKEÐJU

26.11.2012

Ráðherra/Sveitarstjórnarmenn• Eigendahlutverk (Ákveður hlutverk, framtíðarsýn fyrir

fyrirtækið)• Stjórnsýsluhlutverk (Leyfisveitingar, skipulagsvald o.fl.)

Stjórn Útfærir stefnu í samræmi við sýn eigenda um hlutverk fyrirtækisins. Ræður forstjóra, veitir honum aðhald og eftirlit í störfum og tryggir að hann vinni innan ramma laga og þeirrar stefnu sem um fyrirtækið gildir

• ForstjForstjóri• Dagleg stjórnun, ræður aðra starfsmenn.• Upplýsir stjórn um málefni fyrirtækisins á stjórnarfundum

Page 6: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

6

FLÆÐI Á MILLI HLUTVERKA ÓÆSKILEGT

26.11.2012

• Forstjóri á ekki að móta stefnu fyrirtækisins, sbr. dæmið um OR. Hann er þvert á móti ráðinn af stjórn til að framfylgja þeirri stefnu sem hún mótar innan ramma þess hlutverks og framtíðarsýnar sem eigandinn hefur sett fyrirtækinu

• Eigandinn á ekki að skipta sér af daglegri stjórnun fyrirtækisins

• Eigandinn hefur í gegnum sitt stjórnsýslulega hlutverk einnig hlutverki að gegna gagnvart öðrum fyrirtækjum á sama starfssviði og er í reynd vanhæfur til að fara með slíkt hlutverk um leið og hann sest í stjórn fyritækis

• Við stjórnarborð á ekki að leysa pólitísk ágreiningsmál um fyrirtækið. Stjórn fyrirtækis á ekki að vera hinn pólitíski vettvangur!

Page 7: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

7

GÓÐIR STJÓRNARHÆTTIR...

26.11.2012

• Eru enn mikilvægari í opinberum fyrirtækjum en einkafyrirtækjum vegna

• Nálægðar við pólitíkina og valdið – hætta á pólitískum inngripum, sem eru ekki endilega byggð á faglegum forsendum

• Tveggja hlutverka eigandans gagnvart fyrirtækinu;

• sem stjórnvald sem fer með mikilvægt vald á starfssviði fyrirtækisins (skipulagsvald, leyfisveitingar, osfrv)

• Sem eigandi – sem getur sem slíkur tekið afdrifaríkar ákvarðanir um málefni fyrirtækisins

Samþætting þesssara tveggja hlutverka skapar hættu á hagsmunaárekstrum – að jafnræði sé fyrir borð borið milli fyrirtækja og að fyrirtækinu í opinberri eigu séu ýmist settar hömlur eða því hyglað (hvorugt æskilegt!)

Page 8: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

8

AÐGREINING HLUTVERKA...

26.11.2012

• Leiðandi þáttur í þróun stjórnarhátta í opinberum fyrirtækjum (SOE) er aðgreining hlutverka:

• “In recent years, the fundamental trend in SOE governance has been to clarify the roles of the state, ownership entities, boards and management. The goal has been to assign decision-making powers to those who are most capable of exercising them, and segregate decision-making responsibilities in order to avoid conflicts of interest and disincentives. All of this is to make decision making more rational, more focused, based on competencies, avoid confusion and, above all, reduce the potentially negative impact of politicisation. “ http://www.oecd.org/dataoecd/14/4/47782032.pdf

• Sjá einnig OECD/SOE guidelines: http://www.oecd.org/dataoecd/46/51/34803211.pdf

Page 9: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

9

OECD GUIDELINES (SOE´S)

26.11.2012

• Þriggja hlekkja fyrirkomulag, hver og einn hlekkur hefur mikilvægu hlutverki að gegna:

• 1) Eigandi (ríkisstjórn/sveitarstjórn)– sem ber ábyrgð á að setja fyrirtækinu framtíðarsýn og móta langtíma stefnu þess;

• 2) Stjórn sem ber ábyrgð á að framfylgja stefnu eigandans og stendur skil á framkvæmd hennar gagnvart eiganda sínum; og

• 3) Framkvæmdastjórn – stjórnendur, sem bera ábyrgð gagnvart stjórn á því hvernig stefnunni sé framfylgt.

Hlekkirnir þurfa að vera aðgreindir. Ef „flæði“ er á milli – hætta á að næmni gagnvart hlutverkinu glatist og að hagsmunaárekstrar verði á milli ólíkra hlutverka.

Page 10: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

10

SKIPAN STJÓRNAR..

26.11.2012

• Rammi í eigendastefnu en ekki of stífur, getur verið matsatriði á hverjum tíma hvernig samsetning stjórnar á að vera

• Mikilvægt að vanda vel til verka og sjá til þess að þeir sem skipaðir eru;

• Hafi hæfni og reynslu sem til þarf

• Hafi þann tíma sem til þarf

• Hafi nægilegt sjálfstæði (gagnvart eigendum, forstjóra o.frv.) og styrk til að taka réttar ákvarðanir

• Fjölbreyttur hópur (kyn, pólitísk sýn, menntun, reynsla osfrv) þar sem hver vegur annan upp ef á þarf að halda

Page 11: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

11

EIGA KJÖRNIR FULLTRÚAR AÐ SITJA Í STJÓRNUM OPINBERRA FYRIRTÆKJA?

26.11.2012

• NEI, slíkt fyrirkomulag er ekki í anda góðra stjórnarhátta!

• Almennt ekki tíðkað lengur hjá ríkisfyrirtækjum, tilheyrir fortíðinni. Önnur sjónarmið uppi í Reykjavíkurborg, amk hvað varðar OR.

• Sveitarstjórnarmaður er hlekkur í „eigendavaldinu“ hvort sem hann fer með atkvæði sem slíkur á eigendafundum eða ekki.

• Vandasamt fyrir aðra sveitarstjórnarmenn að veita stjórn fyrirtækisins eðlilegt aðhald ef „félagar“ í sveitarstjórn sitja í stjórn fyrirtækisins. Armslengd æskileg.

• Stjórnarmenn bera að lögum aðeins ábyrgð gagnvart fyrirtækinu og þeirra ákvarðanir í stjórn eiga að ráðast af hagsmunum fyrirtækisins og engu öðru. Þeir geta þurft að verja fyrirtækið fyrir pólitísku inngripi eða óskynsamlegri ákvörðun eigandans (s.s. óhóflegum arðgreiðslum) eða ákvörðun um að taka ekki óvinsælar ákvarðanir (s.s. gjaldskrárhækkanir). Stjórnmálamaður sem sækir umboð sitt til kjósenda getur auðveldlega lent í hagsmunaárekstri við slíka ákvarðanatöku!

Page 12: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

12

PÓLITÍKUSAR/OPINBERIR STARFSMENN ALLA JAFNA EKKI Í STJÓRNUM FYRIRTÆKJA Í SEINNI TÍÐ

26.11.2012

• “There appears to be a growing consensus that neither ministers, other politicians, nor in many cases civil servants should serve on SOE boards. Though they may represent “owner” interests, ministers and politicians can be expected to have governmental and political concerns at heart, which can constitute a conflict of interest that compromises them in their duty of loyalty to the SOE. Similarly, civil servants who are generally under instruction from the state are unlikely to contribute to open-minded discussions, and do not generally have the status or experience to function as peers of executives or other high level board appointments.”

• http://www.oecd.org/dataoecd/14/4/47782032.pdf

Page 13: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

13

STJÓRNIR TILNEFNDAR EFTIR PÓLITÍSKUM LÍNUM ÞÓ VÍÐA TIL EN ÞRÓUN Í ÞEIM EFNUM LÍKA..

26.11.2012

• “On the other hand, political skills on the board are not only useful but, in some cases, indispensible. The business of politics can be opaque to business people, and individuals with political and government experience can be very useful in helping executives and board members from business backgrounds to understand the workings of government, and the position of the state as an owner.”

• “In addition, board members with political experience can be well-suited to communicate back to the state.. (Úr sömu skýrslu OECD).

• Sumstaðar þó vaxandi tilhneiging að aftengja alfarið stjórnmál og stjórnir opinberra fyrirtækja, sbr. td. Noregur.

Page 14: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

14

EIGANDI ÞARF AÐ SINNA VIRKU EFTIRLITI MEÐ STJÓRN – EIGENDASTEFNA ER NOTUÐ

26.11.2012

• Til að setja fram markmið með eignarhaldi í fyrirtækinu og framtíðarsýn eigandans

• Til að koma á framfæri hvernig eigandinn lítur á hlutverk sitt

• Til að gera kröfur um samfélagsábyrgð fyrirtækisins, góða stjórnarhætti, sjálfbæra nýtingarstefnu, starfsmannastefnu osfrv.

• Til að setja fram æskilega launastefnu stjórnenda, kröfur til stjórnarmanna

• Til að gera kröfur um upplýsingagjöf fyrirtækisins til eigenda, almennings o.s.frv.

Page 15: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

15

EIGANDINN MÁ ÞÓ EKKI SOFA Á VERÐINUM...

26.11.2012

• Fylgir stefnunni eftir á eigendafundum/aðalfundum

• Getur skipt út stjórnamönnum, bregði þeir út af stefnunni eða sinni ekki hlutverki sínu sem skyldi

• Grípur ekki inn í daglega stjórnun fyrirtækisins

• Veitir stjórn fyrirtækisins fullt sjálfstæði til að vinna innan ramma eigendastefnu og laga/reglna um fyrirtækið

• Hefur virkt eftirlit með framgangi áætlana og stefnu fyrirtækisins

• Getur komið á reglulegum samráðsfundum með stjórn/stjórnendum fyrirtækisins, ef ástæða þykir til

• Byggir eftirlit sitt og aðhald á fyrirsjáanlegum aðgerðum, sem eru kynntar hlutaðeigandi með viðunandi fyrirvara

Page 16: Meginreglan um aðgreiningu hlutverka  f orsenda góðra stjórnarhátta

BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

16

AÐ LOKUM...

26.11.2012

• Ef hver hlekkur í ábyrgðar- og umboðskeðju opinbers fyrirtækis sinnir sínu hlutverki og heldur sig innan þess ramma sem honum er ætlaður, eru stundaðir góðir stjórnarhættir í fyrirtækinu

• Ef einn eða fleiri hlekkir bresta er hætta á ferðum

• Stjórn sem skipuð er í anda góðra stjórnarhátta (armslengd, fjölbreytni, almennt hæfi stjórnarmanna osfrv.) getur skaðað fyrirtækið ef eigandinn sefur á verðinum og tryggir ekki að hún starfi innan þess ramma/stefnu sem settur hefur verið um fyrirtækið

• Sjónarmið um aðgreiningu hlutverka sem forsendu góðra stjórnarhátta eru almennt viðurkennd – hvers vegna ættu þau ekki að eiga við um opinber fyrirtæki á Íslandi?

• Skýrsla úttektarnefndar OR dregur mjög augljóslega fram mikilvægi almennt viðurkenndra og góðra stjórnarhátta við rekstur fyrirtækisins eins og annarra opinberra fyritækja.