Kia Optima
-
Upload
bilaumbodid-askja -
Category
Documents
-
view
260 -
download
3
description
Transcript of Kia Optima
Kia
Optima fjölskyldan
Nýjungar í hverjum kima.Hönnun sem kveður að. Nýjungar í tækni. Mikil þægindi. Nýja Kia Optima fjölskyldan er framleiðslulína
yfirburða bíla sem eru hannaðir með ferðina í huga. Sem vinnubíll. Sem fjölskyldubíll. Fyrir skemmtilegu ferðalögin. Það sem þú kýst – fágaður fólksbíll, rúmgóður Sportswagon eða umhverfisvænn Plug-in
Hybrid tengiltvinnbíll. Óaðfinnanleg gæði Optima, skýr útlitsatriði og mikil þægindi hleypa meira lífi í hverja ferð.
2
3
4
Optima kemur sannarlega eins og ferskur vindur inn í þennan flokk með sínum kraftmiklu útlínum og yfirmáta sportlegum hliðarsvip. Laglegt LED afturljós, flottar vindskeiðar, einstök krómskreyting
í kringum útblásturskerfi og neðri stuðara draga fram náttúrulega fallegt útlit bílsins. Álfelgurnar fara ekki fram hjá neinum og viðhalda glæsileikanum alveg niður að götu.
Hönnun á yfirbyggingu
Djarfur og fagur.
5
Rennilegar línur, fáguð form og stæðileiki á vegi gefa nýjum Kia Optima áberandi yfirbragð. Sé nánar skoðað má sjá enn fleiri nýstárlegar hugmyndir sem vekja athygli. Lengra hjólhaf skilar sér í auknum stöðugleika, þægindum, aksturseiginleikum og auknu innanrými. Aðalsmerkið, Kia grillið, eykur heildaráhrifin. Glæsileg hönnun á framljósum ásamt athyglisverðum krómskreytingum á loftinntökum og við glugga fullkomnar síðan djarfa útlitshönnun bílsins.
Áberandi framljós með hátæknilegu útliti einkennast af djörfung í hönnun. Þau eru með LED tækni sem
lýsir upp veginn framundan á óaðfinnanlegan hátt. Framljósin eru með beygjuvirkni, Dynamic Bending
Light, sem hámarkar útsýnið með því að beina ljósgeislanum í átt að beygjum sem framundan eru.
Hönnun á yfirbyggingu
Fyrstu hughrif sem endast.
6
7
8
Kynntu þér nýjan heim þæginda í innanrými nýs Optima. Með hágæða efnum sem eru mjúk viðkomu opnast ný vídd fágunar. Hágljáandi svartir fletir auka síðan enn frekar á upplifunina.
Stjórnrýmið er sniðuglega hannað utan um ökumanninn sem fyrir vikið veit ávallt að allt er nákvæmlega innan seilingar.
Hönnun á innanrými
Kyrrð, ró og þægindi.
9
10
Innanrými Optima er með innréttingum sem eru mjúkar viðkomu, hannað með það fyrir augum að hámarka nýtanlegt innanrými
og auka þar með þægindin. Ríkuleg stærðarhlutföll skila sér í miklu rými til að koma sér fyrir og njóta ferðarinnar. Snjallar lausnir, eins
og loftkæling í sætum og minni fyrir sætastillingar, stórauka þægindi og vellíðan ökumanns. Síðast en ekki síst ríkir ávallt frískandi kyrrð inni í
farþegarýminu sem rekja má til frábærrar hljóðeinangrunar bílsins.
1. Hámarksþægindi með 8 mismunandi rafstillingum á framsætum, þar af fjórum á
mjóbaksstillingu í ökumannssæti og tveimur í farþegasæti. 2. Hiti í sætum heldur þeim heitum á köldum vetrardögum.
3. Minnisaðgerðin stuðlar að enn frekari þægindum því hún man þá stillingu sem ökumaður og
farþegi kjósa helst og sömuleiðis stillingar á útispeglum.
Hönnun á innanrými
Staður til að dafna.
Staðalbúnaður getur verið mismunandi eftir gerðum.
11
12
Optima GT Line er ekki feiminn við að sýna sportlegu hliðarnar enda státar hann af fjölda einstakra útlitsatriða sem fanga hugann. Áberandi LED framljós, afturljós með svartri umgjörð,
áberandi sílsalistar, tvöfalt púst og sportlegir stuðarar gefa honum sitt einstæða útlit. Við það bætist Kia grillið, 18” álfelgur og glæsileg loftinntök sem draga enn frekar fram karakterinn.
GT Line – hönnun á yfirbyggingu
Sportlegur á réttu stöðunum
13
GT – hönnun á yfirbyggingu
Skapaður fyrir spennu.Annars vegar eru sportlegheit og hins vegar splunkunýr Optima GT. Hönnun GT er heillandi
frá öllum sjónarhornum. Hann státar af skörpum útlínum, kraftalegu yfirbragði og er hlaðinn framúrskarandi útlitsatriðum eins og glæsilegum sílsalistum. 2.0 T-GDi vél með 245 hestafla
afköstum fullkomnar svo myndina og gerir Optima GT að sigurvegara í sínum flokki með alvöru afkastagetu og fágun í útliti.
14
15
16
Það er erfitt að standast rennilegt innanrýmið í Optima GT og GT Line. Óviðjafnanlega glæsileg efni sem eru mjúk viðkomu, stuðla að auknum þægindum og sportstilling á mælaborði heldur
ökumanni upplýstum um hraða, snúningsvægi og þrýsting frá forþjöppu. Auðvitað felst um leið glæsileiki í öllum þægindabúnaðinum. D-laga stýrishjól, álpedalar og áberandi sportleg sæti eru atriði
sem hækka enn frekar spennustigið.
1.Álpedalar: Glæsileg áferð sem viðheldur fáguninni frá toppi til táar.
2.Ökumælaklasi með GT skjá: Á 4,3” skjá aksturstölvunnar birtast upplýsingar
um hraða, snúningsvægi og forþjöppuþrýsting og upplýsingarnar eru aðgengilegar.
GT og GT Line hönnun á innanrými
Sportlegur, rúmgóður og ómótstæðilegur.
17
18
Lífið er svo miklu skemmtilegra þegar fullt frelsi er til að njóta þess. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af rými og fjölhæfni í nýjum Optima.
Hann kemur með ríkulega útilátnu farangursrými, niðurfellanlegum aftursætum með einu handtaki og skynsamlegri uppröðun í innanrými sem fullnýtir allt plássið
og eykur þægindi. Aðrar viðbótarlausnir auka enn frekar á hagkvæmnina, eins og geymsluhólf í gólfinu, notadrjúg og stillanleg farangursbraut í farangursrými og
handfrjáls opnun á afturhlera.
1. Rúmgott farangursrými og aftursæti niðurfellanleg 40:20:40. Aftursæti sem eru aðskilin og falla
flöt niður og hámarka þannig farangursrýmið. Það er því lítið mál að finna aukapláss.
2. Öryggisnet Heldur stórum hlutum– öruggum á sínum stað með handhægu öryggisþili sem kemur í veg
fyrir að hlutir fari á hreyfingu og berist inn í farþegarýmið meðan á flutningi stendur.
3. Stillanlegar farangursbrautir Brautirnar liggja endilangt eftir farangursrýminu og koma í veg fyrir að
farangur færist úr stað. Hægt er að festa á þær álþverbita sem stilla má af hvern fyrir sig þannig að þeir skorði
af mismunandi stærðir farangurs. Þeim fylgir einnig farangurskrókar og þægilegar festiólar fyrir hringlaga hluti.
Fjölhæfni. Aðlögunarhæfni. Rými.
Staðalbúnaður getur verið mismunandi eftir gerðum.
19
Það er úr mörgu að velja þegar kemur að aflrásum fyrir nýjan Kia Optima. Í boði er fjöldi hátæknivæddra bensín- eða dísilvéla, þar á meðal 2,0 lítra bensínvél með 163 hestafla afkastagetu og 1,7 lítra dísilvél, 141 hestöfl. Allar vélarnar bjóða upp á þýðgenga, hljóðláta og sparneytna vinnslu.
1. 7 þrepa, tvíkúplandi gírskipting (DCT) 7 þrepa, tvíkúplandi gírskipting er í boði með dísilvélinni
sem tryggir enn sportlegri og enn meira spennandi akstur.
2. 6 gíra beinskipting Hraðari, betri og liprari 6 gíra beinskipting sem gerir aksturinn enn
ánægjulegri.
3. Orkuendurheimtarkerfi ECO dynamics valbúnaður Optima felur í sér
orkuendurheimtarkerfi og Idle Stop & Go kerfi. Hagstætt fyrir umhverfið sem og
heimilisbókhaldið. ISG tæknin er spartækni sem dregur úr losun CO2 og sparar orku
með því að slökkva á vélinni þegar stigið er af inngjöfinni og bíllinn er í hlutlausum
gír. Orkuendurheimtarkerfið verður virkt þegar stigið er af inngjöfinni. Það
endurheimtir hreyfiorku sem að öðru jöfnu hefði tapast og nýtir hana til að
endurhlaða rafgeyminn. ISG er fáanlegt með dísilvélum. Það er staðalbúnaður
með 7DCT, valbúnaður með 6MT.
Aflrásir
Þýðgengar og eyðslugrannar vélar.
20
GT vélin.
2.0 T-GDi vélin vekur eftirtekt fyrir snerpu. Afköstin eru 245 hestöfl fyrir aflmikinn og spennandi akstur.
6 þrepa sjálfskipting
Njótið mýktar í hröðun, snerpu í skiptingum og sparneytni með 6 þrepa sjálfskiptingunni.
21
Búðu þig undir unaðslega mýkt í akstri. Undirvagn Optima er þannig gerður að hann býður upp á mikla svörun í akstri og meiri stöðugleika óháð vegskilyrðum. Aksturseiginleikar Optima
eru fágaðri en nokkru sinni fyrr sem má ekki síst þakka sterkari legum í framhjólum og stærri, tvöföldum stífum að aftan.
Full stjórn
Ávallt með stjórn á bílnum.
Mótordrifið tannstangarstýri (R-MDPS) Ákveðin og traustleg tilfinning og svörun frá stýri sem á sér ekki
hliðstæðu með nýju mótordrifnu tannstangarstýri (R-MDPS). Staðalbúnaður með dísilvélum og Optima GT.
Forhlaðnir höggdeyfar með línulegum ventlum (PLD)
Einkenni forhlöðnu höggdeyfanna með línulegum ventlum er afar hröð ventlaopnun og –lokun sem bætir höggdeyfingu
hjóla og stuðlar að auknum akstursþægindum. Nýstárleg hönnun á stimplum dregur úr hljóðum og búnaðurinn
dregur úr titringi í yfirbyggingu sem stuðlar að enn frekari þægindum í akstri.
Rafeindastýrt fjöðrunarkerfi (ECS) Rafeindastýrða fjöðrunarkerfið aðlagar sig á rauntíma að
akstursaðstæðum, breytir dempunareiginleikum og stuðlar þannig að hámarks aksturseiginleikum og akstursgæðum.
Staðalbúnaður með GT, valbúnaður með GT Line og Base Line útfærslum með 7 þrepa DCT og dísilvélum.
22
Öryggi er forgangsatriði í nýjum Optima. Hann setur ný viðmið hvað snertir öryggisaðgerðir og efnisval í öryggisbúnaði. Nýstárleg notkun málms og límefna í burðarvirki eykur styrkleika
farþegarýmisins. Full alúð er lögð við hvert smáatriði og hefur öryggi ökumanns og farþega tekið stórstígum framförum.
Vernd
Heildstæð vernd.
Forhlaðnir höggdeyfar með línulegum ventlum (PLD)
Einkenni forhlöðnu höggdeyfanna með línulegum ventlum er afar hröð ventlaopnun og –lokun sem bætir höggdeyfingu
hjóla og stuðlar að auknum akstursþægindum. Nýstárleg hönnun á stimplum dregur úr hljóðum og búnaðurinn
dregur úr titringi í yfirbyggingu sem stuðlar að enn frekari þægindum í akstri.
Límefnanotkun
Stífleiki yfirbyggingar nýs Optima hefur aukist sem og mýkt og hljóðeinangrun meðan dregið
hefur úr titringi. Þetta má ekki síst þakka 119 metrum af límefnum í burðarþolsvirki bílsins.
Heitpressaðir íhlutir
Heitpressaðir íhlutir á 16 álagssvæðum styrkja til muna burðarvirkið og stuðla að aukinni árekstrarvörn, betri
aksturseiginleikum og betri hljóðeinangrun.
Háþróað hástyrktarstál
Yfir 50% yfirbyggingar nýs Optima er úr hástyrktarstáli (AHSS). Stíf yfirbyggingin stuðlar því að enn meira öryggi, jafnt fyrir
ökumann og farþega. Ný hringlaga hönnun á opi milli aftursæta og skotts eykur umtalsvert stífleika yfirbyggingarinnar og leiðir
til aukins öryggis og styrkleika.
7 öryggispúðar
Til að auka öryggi farþega og draga úr alvarleika meiðsla
við árekstur fylgir öllum gerðum Optima öryggispúði fyrir ökumann,
farþega í framsæti, tveir hliðarpúðar að framan og tvö loftpúðatjöld auk
hnépúða fyrir ökumann.
23
24
Nýr Kia Optima tengiltvinnbíll á eftir að vekja mikla athygli. Vistvænn tvinnbíll sem er sparneytinn og vistmildur
en glæsilegur útlits. Kraftalegar formlínur og sportleg hlutföll slá tóninn. Alúð við hvert smáatriði í hönnun og
smíði kallar á aðdáun frá hvaða sjónarhorni sem litið er.
1. Hleðsluinntak með EU staðalgerð hleðsluinntaks getur þú hlaðið Optima tengitvinnbílinn með 220 V heimilisúttaki eða
á almennri hleðslustöð.
2. LED framljós og bláar línur í grillinu ýta undir djörfung í hönnun en stuðla um leið að betri lýsingu og minni orkunotkun.
Tengiltvinnbíll, Plug-in Hybrid – hönnun á yfirbyggingu
Ný ásjóna vistvænnar hönnunar.
25
Eiginleikar tengiltvinnkerfisins
Afkastageta tvinnaflrásar á næsta stigi.Optima tengiltvinnbíllinn er einstaklega athyglisverður og sannar svo ekki verður um villst að hægt að er auka sparneytni án þess að gengið sé á aflið. Háþróuð aflrásin býr yfir jafnvægi milli skilvirkni og afls. Hún skiptir með skjótum hætti og með mýkt milli rafstillingar og tvinnstillingar (bensínvél/rafmótor), jafnt í borgarumferð og úti á vegum.
1. Á skjá leiðsögukerfisins birtast upplýsingar um orkuflæði, akstursmáta og sparneytni.
2. Hvít leðursæti eru góð viðbót við glæsilegt innanrýmið og skapa tilfinningu fyrir afslöppun og kyrrð.
3. Í ökumælaklasanum birtast nytsamlegar upplýsingar um valda stillingu (tvinnaflrásarstillingu,
rafmótorsstillingu) og orkuflæðið.
26
27
28
Stjórnrými nýs Kia Optima er lagað að þörfum ökumannsins og heldur honum í tengslum við umheiminn með fjölmörgum einföldum og handfrjálsum aðgerðum. Þráðlaus hleðsla fyrir
farsímann tryggir stöðugt samband. Harman/KardonTM hljómtækin skila hágæða hljómgæðum. Val er um 7” eða 8” leiðsöguskjái sem birta leiðarvalið með skýrum hætti. Ökumaður hefur ávallt
aðgang að nýjustu kortaupplýsingum því árleg uppfærsla* á kortum til sex ára er endurgjaldslaus.
1. Harman/KardonTM hljómtæki Njótið hágæðahljóms í þessu hátæknivædda hljómkerfi með ClarifyTM tækni. Stallbakurinn
kemur með tíu hátölurum og 8” bassahátalarakerfi en Sportswagon kemur með átta hátölurum og 8” bassahátalarakerfi.
2. 4,3” TFT-LCD litaskjár Í djarflega hönnuðum, keilumynduðum ökumælaklasanum er 4,3” TFT-LCD litaskjár þar sem birtast
valdar grunnupplýsingar, allt frá meðaleyðslu til leiðsagnar frá leiðsögutækinu.
3. Þráðlaus hleðsla fyrir farsíma Upplifið þægindin af þráðlausri hleðslu. Farsímar með Qi tækni eru einfaldlega lagðir á
hleðsluhilluna þar sem þeir hlaða sig þráðlaust.
*Inniheldur árlega uppfærslu á kortum í sex ár fyrir ný Kia ökutæki með LG leiðsögutæki frá verksmiðju.
Tengingar
Kveikt á. Tengt. Alltaf í sambandi.
Staðalbúnaður getur verið mismunandi eftir gerðum.
29
1. Sjálfvirk neyðarhemlun (AEB)
Sjálfvirka neyðarhemlunarkerfið getur greint ökutæki sem á undan fara og vegfarendur sem ganga þvert yfir veginn. Búnaðurinn
styðst við ratsjárskynjara og myndavél til að fylgjast með nálægð og hraða annarra ökutækja og varar ökumann við yfirvofandi
árekstrarhættu. Bregðist ökumaðurinn ekki við aðvöruninni getur bíllinn hemlað með sjálfvirkum hætti til að forðast eða draga úr
alvarleika slyssins.
2. Hátæknivæddur hraðastillir með aðlögun (ASCC) Hátæknivæddur hraðastillir með aðlögun styðst við ratsjárskynjara sem
viðheldur ákveðinni fjarlægð að næsta ökutæki á undan með því að stilla með sjálfvirkum hætti hraða bílsins. Ef ökutækið fyrir
framan eykur hraðann sér búnaðurinn til þess að Optima hraðar sér upp að völdum hraða. Ef ökutækið fyrir framan hægir á sér
þannig að ekki verður unnt að viðhalda fyrirfram ákveðinni öryggisfjarlægð, dregur búnaðurinn úr hraðanum og jafnvel stöðvar
bílinn ef þess er þörf.
Það má reiða sig á það að í nýjum Kia Optima er allur sá búnaður sem tryggir öryggi ökumanns og farþega með sem bestum hætti. Þar má nefna nýstárlegan búnað sem aðstoðar ökumann við aksturinn og virkan öryggisbúnað sem
verndar jafnt ökumann, farþega og gangandi vegfarendur. Optima er þannig útbúinn að hann veitir fullkomna hugarró.
Virkt öryggi
Hátæknivæddur búnaður sem eykur öryggið.
30
3. Akreinavari (LKAS)
Nú þarf ekki að óttast það að vikið sé óafvitandi út af akreininni. Akreinavarinn aðvarar ökumann og getur stýrt bílnum aftur inn á
sína akrein þar sem hann á að vera.
4. Blindblettsvari (BSD) og akreinaskiptavari (LCA)
Blindblettsvarinn styðst við ratsjá sem fylgist með blinda bletti bílsins og varar ökumann við aðvífandi ökutækjum með blikkandi
ljósi í hliðarspeglinum. Akreinaskiptavarinn aðstoðar ökumann við að skipta um akrein með öruggum hætti. Búnaðurinn greinir og
aðvarar ökumann við aðvífandi ökutækjum sem eru allt að 70 metrum fyrir aftan á samhliða akrein.**
5. Upplýsingar um hraðatakmarkanir (SLIF)
Búnaðurinn veitir allar þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru ökumanni til að virða hraðatakmarkanir. Búnaðurinn styðst við
myndavél á framrúðu sem les hraðatakmarkanir af skiltum, bann við framúrakstri og birtir upplýsingarnar með skýrum hætti á
skjá leiðsögukerfisins og í ökumælaklasanum.
Staðalbúnaður getur verið mismunandi eftir gerðum. 31
1. Umhverfissýn (AVM)
Á allt að 20 km hraða á klst samþættir AVM kerfið fjórar breiðhornsmyndir (teknar af myndavélum að framan, aftan og á hliðum
bílsins) og varpar þeim upp á skjá þannig að við ökumanni blasir loftmynd af rýminu í kringum bílinn. Í Optima Plug-in Hybrid er
boðið upp á 270 gráðu útsýni.
2. Sjálfvirk bílastæðalögn (SPAS)
Sjálfvirka bílastæðalögnin gerir það að leik einum að leggja bílnum í stæði. Búnaðurinn styðst við skynjara á hlið bílsins sem
aðstoða ökumann við að leggja bílnum í stæði samsíða veginum eða þvert á hann. Eina sem ökumaður gerir er að stíga á hemil,
inngjöf og stjórna gírskiptingu. Búnaðurinn sér um að beygja bílnum inn í stæðið. Auk þess aðstoðar búnaðurnn ökumann við að
bakka út úr þverstæðu bílastæði.
3. Beygjuljós
Nú þarf enginn að vera einn úti í myrkrinu. Beygjuljósið beinir lága geislanum inn í beygjuna þegar bílnum er beygt inn í hana.
Þetta bætir lýsingu að næturlagi. Beygjuljósið aðlagar sig hraða ökutækisins, hleðsluþyngd og beygjuhorninu.
32
4. Hágeislavari (HBA)
Þegar myndavél á framrúðunni greinir ökutæki fyrir framan bílinn slekkur hágeislavarinn með sjálfvirkum hætti á háu ljósunum og
kveikir á lágu ljósunum og aðlagar þannig bílinn að réttum akstursaðstæðum.
5. Hliðarumferðarvari (RCTA)
Nú er engin ástæða til þess að láta sér bregða illa þegar bakkað er út úr bílastæði eða heimreið. Hliðarumferðarvarinn varar
ökumann við umferð þegar bakkað er út úr bílastæði.
Í nýjum Kia Optima er ökumaður upplýstur öllum stundum. Optima státar af nýstárlegum lausnum sem aðstoða ökumann við aksturinn og býr yfir fjölmörgum aðferðum til að halda honum upplýstum – og um
leið hámarka öryggið.
Akstursstoðkerfi
Nýstárlegar lausnir og snjallstuðningur.
Staðalbúnaður getur verið mismunandi eftir gerðum. 33
Stór sóllúga Breiða, þriggja þátta sóllúgan hleypir birtu og fersku lofti inn í bílinn á ferðalaginu.
Einfalt er að opna hana og loka með rafstýrðum stjórnrofum. Valbúnaður með EX, GT Line og GT útfærslum.
Hiti í stýri Valbúnaður er hiti í stýri sem kemur sér vel á köldum vetrardögum.
Rúllutjald í afturglugga Rúllutjald í afturglugga dregur úr hitamyndun í farangurs- og farþegarými á sólríkum dögum.
Snjalllykill Notfærðu þér lykillaust aðgengi að bílnum með snjalllyklinum og ræsihnappinn sem með einni snertingu ræsir vélina og slekkur á henni.
Aflúttak að aftan Á aftanverðum miðjustokknum eru USB og 12 V úttök. Farþegarnir verða því ekki í vandræðum með að hlaða tækin sín.
Tveggja svæða, sjálfvirk hitastýring Svo öllum líði vel er staðalbúnaður með Optima tveggja svæða, sjálfvirkt hitastýringarkerfi sem býr yfir aðskildri hitastýringu fyrir ökumann og farþega.
Raftstýrð handbremsa (EPB) Settu bílinn í handbremsu með einni snertingu á rafstýrðu handbremsunni.
60:40 niðurfelling aftursæta í Optima Sedan Aftursætin í sedan útfærslunni falla flöt niður og skapa þannig hámarks hleðslurými. Ekki fáanlegt í Optima Plug-in Hybrid.
34
Alúð við hvert einasta smáatriði og frágang vekur aðdáun í Kia Optima. Það er allt til alls í bílnum, hvort sem um ræðir snjallbúnað og afburða þægindi eða breitt úrval af
töfrandi valbúnaði. Þitt er valið.
Hagkvæmni og þægindi
Allt á réttum stað.
LED þokuljós LED þokuljós að framan eru stílhrein og hagnýt. Þau lýsa upp veginn þegar útsýnið er takmarkað.
Snjalllýsing Úti- og inniljósin eru samstillt með snjalllyklinum og kvikna og bjóða þig velkominn aftur að bílnum.
Fjarstýrðar rúður Allar rúður opnaðar eða lokaðar einfaldlega með því að halda niðri hnappi á fjarstýringunni í þrjár sekúndur. Klemmivörn fylgir.
Flipaskipting Gírskiptingin verður leiftursnögg með flipaskiptingu við fingurgómana. Einungis fáanlegt með sjálfskiptingu og tvíkúplandi gírskiptingu. Fjarstýring á hljómtækjum á stýri Stilltu hljómstyrkinn og skiptu um stöð án þess að taka hendur af stýri með handhægri fjarstillingu fyrir hljómtæki á stýrinu.
Sjálfvirkur móðueyðir Hreinsaðu rúðurnar af móðu með hraði í köldu eða röku veðri svo aldrei dragi úr útsýninu.
LED kortaljós Skær og endingargóð LED kortaljós ofan við bakksýnisspeglinn varpa skýru ljósi á hluti í bílnum. Fylgir panoramic sólþaki.
Staðalbúnaður getur verið mismunandi eftir gerðum. 35
2. Aurhlífar Sérsniðnar aurhlífar sem verja undirvagninn fyrir miklum óhreinindum.
3. Speglahús Hágljáandi speglahús gefa Optima enn stílhreinna útlit.
4. Vindhlíf Loftaflsfræðilega hannaðar vindhlífar draga úr ókyrrð þegar ekið er með framrúðuna lítillega opna.
Kia upprunalegir aukahlutir eru hannaðir til að uppfylla ströngustu kröfur um gæði og útlit. Veldu úr breiðum lista hágæða aukahluta fyrir þinn Kia Optima. Næsti söluaðli Kia tekur vel
á móti þér og hjálpar þér við valið.
Aukahlutir
Stílhrein og snjöll leið til þess að láta bílinn þinn líta sem best út.
1. Motta í farangursrými og varnarfilma fyrir afturstuðarann Með hágæða mottu helst farangursrýmið snyrtilegt,
stílhreint og eins og nýtt. Passar nákvæmlega í farangursrýmið. Varnarfilman fyrir afturstuðarann dregur úr líkum á
skemmdum á lakki við hleðslu og afhleðslu úr farangursrýminu. Fáanleg í svörtum lit og gegnsæ.
36
5. + 6. LED lýsing í fótarými og teppa mottur Lýsing í fótarými tekur á móti þér þegar þú opnar hurðina og sest inn. Lýsingin deyr út þegar
bíllinn er ræstur. Fáanlegt með fallegu rauðu ljósi eða klassísku hvítu ljósi. Hágæða motturnar eru sérsniðnar og passa fullkomlega í fótarýmið.
Þær eru skorðaðar af með festum sem fylgja. Motturnar verja gólfið og gefa innanrýminu yfirbragð hreinleika og ferskleika.
7. Herðatré fyrir jakkaföt Herðatréð býður upp á hámarksþægindi. Það einfalt í uppsetningu og hægt að nota hvar sem er.
37
EX/LX staðalbúnaður svart áklæði
EX valbúnaður svart tauáklæði og leðurlíki
Innanrými í svörtu Ríkulegt og svart, einn litatónn í mælaborði, val um svart leðuráklæði, sæti
að hálfu klædd leðri og tauáklæði, og málmlistar.
EX valbúnaður Saturn svart leður
Tveggja litatóna ljósbrúnt innanrými Róandi, ljósbrún leðursæti með ljósbrúnum hurðaspjöldum, neðri hluta
mælaborðs og armhvílu á miðjustokki, efri hluti mælaborðs svartur og
umgjörð ofan við hurðarspjöld, svart fótarými, neðri hluti miðjustokks og
hurða og málmlistar. Ekki fáanlegt í Optima Sportswagon.
EX valbúnaður ljósbrúnt leður
EX staðalbúnaður ljósbrúnt tauáklæði
EX valbúnaður ljósbrúnt tauáklæði og leðurlíki
38
Veldu það sem þér hentar best úr úrvali fágaðra efna, klæðninga, lita og skreytinga fyrir nýjan Kia Optima. Í boði eru þrjár mismunandi, nútímalegar útfærslur í innanrými og það
er ekki hægt að velja rangt.
Innréttingar
Sérhver ákvörðun er góð ákvörðun.
Tveggja litatóna grátt innanrými Róandi grá leðursæti með gráum hurðarspjöldum, neðri hluta mælaborðs
og armhvílu á miðjustokki, efri hluti mælaborðs svartur og umgjörð ofan
við hurðarspjöld, svart fótarými, neðri hluti miðjustsokks og hurða og
málmlistar.
EX valbúnaður grátt leður
EX/LX staðalbúnaður grátt tauáklæði
EX valbúnaður grátt tauáklæði og leðurlíki
Sérinnréttingarfyrir GT og GT Line Sportleg sætahönnun með vali um glæsilegt, svart leður
með rauðum saumum eða rautt leður með gráum saumum og GT merkinu
á sætunum (ekki er merki á sætum í GT Line). Hvítt leður Optima Plug-in
Hybrid er fáanleg með hvítum leðursætum sem gefur honum einstaklega
glæsilegt yfirbragð.
Hvítt leður (einungis PHEV)
Rautt leður með svörtum saumum (einungis GT og GT Line)
Svart leður með rauðum saumum (einungis GT og GT Line)
39
Felgur
235/45R 18” álfelgur
GT/GT Line 18” álfelgur
Plug-in Hybrid 17” álfelgur
215/55R 17” silfurlitar álfelgur
Litir
Aurora Black [ABP]
Gravity Blue [B4U]Moss Grey [M5G](ekki fyrir
Plug-in Hybrid)
Platinum Graphite [ABT]Silky Silver [4SS]Snow White Pearl [SWP]
Temptation Red [K3R] Aluminium Silver [C3S](einungis fyrir Plug-in Hybrid)
Stærðir (mm)
Clear White [UD](ekki fyrir Plug-in Hybrid)
Pluto Brown [G4N](ekki fyrir Plug-in Hybrid)
40
Líflegir og kröftugir litir, breitt úrval af felgum og glæsileg útlitsatriði auðvelda þér að sérsníða þinn Kia Optima nákvæmlega að þínum óskum.
Tæknilýsing og litir
Litatónar og útlitshönnun að þínu vali.
Höfuðrými (framan) (mm) 1020 Fótarými (framan) (mm) 1155
Höfuðrými (aftan) (mm) 970 Fótarými (aftan) (mm) 905
Farangursrými (lítrar) 510 (PHEV: 307)
Kia Optima Sedan tölulegar stærðir
Höfuðrými (framan) (mm) 1020 Fótarými (framan) (mm) 1155
Höfuðrými (aftan) (mm) 970 Fótarými (aftan) (mm) 905
Farangursrými (lítrar) 552 (PHEV: 440)
Farangursrými (niðurfelld sæti) 1686 (PHEV: 1574)
Kia Optima Sportswagon tölulegar stærðir
Tæknilýsing
Vélar
Gírskiptingar
Drif
Eldsneytisgerð
Vélargerð
Gerð rafmótors
Rúmtak (cc)
Hámarksafl (hö/sn.mín)
Hámarkstog (Nm/sn.mín)
Hámarkshraði (km/h)
CO2 (blandaður akstur) (g/km)
Eldsneytiseyðsla (borgarakstur)
Eldsneytiseyðsla (þjóðvegaakstur)
Eldsneytiseyðsla (blandaður akstur)
Eigin þyngd (kg) (hám.)
Heildarþyngd (kg)
Hám. dráttargeta (kg) með hemlum
Hám. dráttargeta (kg) án hemla
Eldsneytistankur (lítrar)
Hámarksafl (kW)
Fjöldi flaga
Spenna (V)
Rafhlaða þyngd (kg)
1.7 CRDi 141 hö
6-speed MT 7-speed DCT
FWD FWD
Dísil
-
1685
141/4000
340/1750~2500
203 (SW: 200) 203 (SW: 200)
110 (SW: 113)*** 116 (SW: 120)***
5.1 (SW: 5.2)*** 5.1 (SW: 5.2)***
3.7 (SW: 3.8)*** 4.1 (SW: 4.2)***
4.2 (SW: 4.4)*** 4.4 (SW: 4.6)***
1630 (SW: 1675) 1645 (SW: 1695)
2070 (SW: 2140) 2080 (SW: 2150)
1800 1500
2.0 T-GDi 245 hö
6-speed AT
FWD
Bensín
-
1998
245/6000
353/1350~4000 (SW: 350)
240 (SW: 232)
191
11.8 (SW: 11.9)
6.1
8.2
1680 (SW: 1720)
2120 (SW: 2190)
1400
700750
2.0 GDI PHEV
6-speed AT
FWD
Bensín
Fjögra strokka línuvél
Sísegulmótor
1999
205/6000**
375/2330
192
37 (SW: 33)
0
5.2
1.6 (SW: 1.4)
1775 (SW: 1805)
2200 (SW: 2270)
0 (SW: 1500)
0 (SW: 750)
7055
Rafhlaða
Gerð tengis
Drægni rafhleðslu (km)
9,8kWh Li-ion polymer
68
96, 12 einingar
360
130,7
54* (SW: 62*)
Type 2
Fjögra strokka línuvél, með forþjöppu
*Samkvæmt mælingum framleiðanda**Samanlögð afköst tvinnaflrásar
***með ISG
41
42
Hugarró
Öll sú hugarró sem hugsast getur.
7 ára ábyrgð á ökutæki
Allar gerðir Kia koma með 7 ára/150.000 km ábyrgð (óháð akstri að 3 árum; frá 4 árum að 150.000 km). Þessi
yfirgripsmikla ábyrgð er endurgjaldslaus og flyst yfir til næstu eigenda, að því gefnu að bílnum hafi reglulega fengið þjónustu í
samræmi við þjónustuáætlun.
5 ára ábyrgð á lakki og 12 ára ábyrgð gagnvart gegnumtæringu
Hágæða lakk á yfirbyggingu tryggir langvarandi vernd og gljáa á nýja Kia bílnum þínum. Honum fylgir einnig yfirburða ryðvörn og 12 ára ábyrgð gegn
gegnumtæringu.
Vertu í tengslum við Kia
Heimsæktu www.kia.com og fáðu allar nýjustu fréttirnar. Kynntu þér betur Kia og spennandi framleiðslulínu okkar. Sjáðu nýjustu áfangana í þróunarstarfi okkar á sviði
umhverfisvænnar orku, eins og jarðgasi, tvinnbílatækni og efnarafalatækni. Kynntu þér hvað miðstöð okkar á sviði umhverfisrannsókna er að fást við.
Við erum einnig þátttakendur í stórum íþróttaviðburðum. Kia er opinber bakhjarl UEFA og FIFA í knattspyrnu. Við erum stuðningsaðilar Opna ástralska tennismótsins og
tennisstjörnunnar Rafael Nadal.
Fjármögnun
Umboðsaðili Kia getur aðstoðað þig við að setja upp fjármögnunaráætlun sem hentar þínum aðstæðum. Leitaðu nánari upplýsinga.
7 ára ábyrgð Kia7 ára/150.000 km ábyrgð á nýjum bíl. Gildir í öllum Evrópusambandslöndum (auk þess í Noregi, Sviss, Íslandi og Gíbraltar), háð staðbundnum skilmálum og skilyrðum.
43
Allar upplýsingar, myndlýsingar og tölur í þessum bæklingi eru réttar þegar hann fór í prentun en geta breyst án fyrirvara. Ekki er víst að gerðir og tölulegar upplýsingar, sem greint er frá í þessum bæklingi, eigi við um þinn heimamarkað. Vegna takmarkana í prentvinnslu geta litir á yfirbyggingum verið frábrugðnir raunverulegum litum. Vinsamlega leitið til næsta umboðsaðila Kia til að nálgast nýjustu upplýsingar.
Bílaumboðið Askja ehf.Krókhálsi 11110 ReykjavíkSími 590 2100Netfang [email protected]
www.kia.com7 ára/150.000 km ábyrgð á nýjum bíl. Gildir í öllum Evrópusambandslöndum (auk þess í Noregi, Sviss, Íslandi og Gíbraltar), háð staðbundnum skilmálum og skilyrðum.