Fjögur álitamál um hagstjórn
-
Upload
orson-roth -
Category
Documents
-
view
26 -
download
4
description
Transcript of Fjögur álitamál um hagstjórn
Fjögur álitamál um hagstjórn
1. Eiga hagstjórnendur að reyna að draga úr hagsveiflum?
2. Á stjórn peningamála að fylgja föstum reglum eða ekki?
3. Eiga útgjöld og tekjur ríkisins að standast á?
4. Á að breyta skattalögum til að örva sparnað?
Sumir: Já, hagstjórnendur eiga að reyna að draga úr hagsveiflum
Hagkerfið er í eðli sínu óstöðugt og sveiflast til og frá, ef ekkert er að gert
Hagstjórn getur haft áhrif á heildareftirspurn til að vega á móti þessum eðlislæga óstöðugleika og draga úr hagsveiflum
Sumir: Já, hagstjórnendur eiga að reyna að draga úr hagsveiflum
Ástæðulaust að íþyngja almenningi með óþörfum sveiflugangi í efnahagslífinu
Með stjórn ríkisfjármála og peningamála er hægt að hemja hagsveifluna og draga þá um leið úr sveiflum í landsframleiðslu og atvinnu
Munið myndir
Tobins
Hagsveiflur í Bandaríkjunum 1871-2003
1871 1880 1889 1898 1907 1916 1925 1934 1943 1952 1961 1970 1979 1988 1997
-25
-20
-15
-10
-5
0
5
10
15
20
25 Kaupmáttur VLF á mann, breyting í % á ári
Aðrir: Nei, hagstjórnendur eiga ekki að reyna að draga úr hagsveiflum
Aðgerðir í peningamálum orka á efnahagslífið með löngum og ófyrirsjáanlegum töfum Það tekur tíma fyrir t.d. vaxtahækkun að
draga úr fjárfestingu fyrirtækja, svo að þenslunni, sem vaxtahækkuninni var ætlað að slá á, er kannski lokið, þegar vaxtahækkunin byrjar að bíta
Aðgerðir í ríkisfjármálum orka á efnahagslífið með töfum, þar eð ríkisútgjöld og skattar eru ákveðin á seinvirkum stjórnmálavettvangi
Aðrir: Nei, hagstjórnendur eiga ekki að reyna að draga úr hagsveiflum
Vegna óhjákvæmilegra tafa gerist það of oft, að hagstjórnendur magna hagsveiflur óvart frekar en að milda þær eins og þeir ætluðu
Æskilegt væri, að hægt væri að eyða öllum sveiflum með hagstjórn, en það er ekki raunhæft markmið
Sumir: Já, stjórn peningamála á að fylgja föstum reglum
Stjórn peningamála eftir geðþótta – þ.e. án fastra reglna – getur liðið fyrir óhæfa seðlabankastjóra og misbeitingu valds
Ef seðlabankastjórar dansa eftir pípum stjórnmálaflokka, getur stjórn peningamála eftir geðþótta leitt af sér hagsveiflur sem endurspegla tímasetningu kosninga, t.d. með því að lækka vexti fyrir kosningar til að kaupa atkvæði handa ríkisstjórninni Pólitískar hagsveiflur
Sumir: Já, stjórn peningamála á að fylgja föstum reglum
Ekki er alltaf fullt samræmi sé milli þess, sem hagstjórnendur segja, og þess, sem þeir gera Það getur borgað sig fyrir seðlabanka að stíga á
bensínið (þ.e. lækka vexti) fyrir kosningar, þótt hann prediki nauðsyn þess að draga úr verðbólgu
Þetta heitir kvik ósamkvæmniEf hagstjórnendur gera sig seka um kvika
ósamkvæmni (e. time inconsistency), missir almenningur trúna á yfirlýsingar seðlabankans um það, að hann ætli að draga úr verðbólgu
Sumir: Já, stjórn peningamála á að fylgja föstum reglum
Með því að gera seðlabankanum skylt samkvæmt lögum að tryggja hóflegan og stöðugan vöxt peningamagns er hægt að reisa skorður við óhæfi, misbeitingu valds og kvikri ósamkvæmni ...... nema seðlabankinn klikki, annað
eins hefur nú gerztGetur verið hollt að binda hendur sínar
Aðrir: Nei, stjórn peningamála á ekki að fylgja föstum reglum
Fastar reglur draga um of úr sveigjanleika peningastefnunnar í ljósi nýrra og óvæntra aðstæðnaSveigjanleiki getur verið æskilegur, sé
vel með hann fariðÓsveigjanleg hagstjórn dregur úr getu almannavaldsins til að bregðast rétt og tímanlega við breyttum aðstæðum í efnahagslífinu
Aðrir: Nei, stjórn peningamála á ekki að fylgja föstum reglum
Vandinn, sem er sagður fylgja geðþóttastjórn peningamála og misbeitingu valds, er ekki reistur á óyggjandi reynslurökum
Ekki er ljóst, hversu mikil brögð hafa verið að pólitískum hagsveiflum
Sumir: Já, útgjöld og tekjur ríkisins eiga að standast á
Ríkishallarekstur leggur óréttlætanlegar byrðar á komandi kynslóðir með því að þyngja skattbyrði þeirra og rýra ráðstöfunartekjur þeirra
Þegar skuldir ríkisins og vextir af þeim falla í gjalddaga, munu skattgreiðendur framtíðarinnar standa frammi fyrir tveim kostumHærri skattar eða minni ríkisútgjöld?
Sumir: Já, útgjöld og tekjur ríkisins eiga að standast á
Ríkishallarekstur veltir kostnaðinum af þjónustu ríkisins við núlifandi kynslóð á herðar næstu kynslóðar, án þess að næsta kynslóð hafi tök á að bera hönd fyrir höfuð sér
Ríkishallarekstur dregur úr þjóðarsparnaði og þá um leið úr fjármunamyndun, vinnuframleiðni og hagvexti
Aðrir: Nei, útgjöld og tekjur ríkisins þurfa ekki að standast á
Áhyggjur af ríkishallarekstri eru stundum ýktar
Hliðrun skuldarbyrðarinnar inn í framtíðina kann að vera réttlætanleg að því leyti, að ýmis ríkisútgjöld eru einnig komandi kynslóðum í hag
Skuldir ríkisins geta vaxið án afláts, þar eð fólksfjölgun og tækniframfarir auka getu þjóðarbúsins til að greiða vexti af vaxandi skuldum
Sumir: Já, það á að breyta skattalögum til að örva sparnað
Þjóðarsparnaður er ein helzta uppspretta hagvaxtar til langs tíma litið Sáum það í hagvaxtarkaflanum
Framleiðslugeta þjóðar ræðst að miklu leyti af sparnaði hennar og fjárfestingu
Mikill sparnaður leiðir af sér mikla fjárfestingu í vélum og tækjum
Sumir: Já, það á að breyta skattalögum til að örva sparnaðNúgildandi skattalög draga úr
sparnaði, t.d. með því að skattleggja fjármagnstekjur og refsa mönnum þannig fyrir auðsöfnun
Önnur leið er að skattleggja heldur neyzlu
Með neyzluskatti, t.d. vaski, greiða heimilin skatt af eyðslu sinni frekar en sparnaði Sparnaður er þá undanþeginn
skattheimtu, þar til spariféð er virkjað til að kaupa neyzluvörur eða þjónustu
Sumir: Já, það á að breyta skattalögum til að örva sparnað
Háir fjármagnstekjuskattar draga úr sparnaði og þannig einnig úr fjármunamyndun, vinnuframleiðni og hagvexti
Aðrir: Nei, það á ekki að breyta skattalögum til að örva sparnað
Breytingar á skattalögum til að örva sparnað eru einkum auðmönnum í hagHeimili með háar tekjur spara hærra
hlutfall tekna sinna en heimili með lágar tekjur
Sérhver skattabreyting, sem ýtir undir sparnað, er hátekjuhópum í hag
Aðrir: Nei, það á ekki að breyta skattalögum til að örva sparnað
Léttari skattbyrði hátekjufólks leiðir til aukins ójafnaðar og þyngri skattbyrðar lágtekjufólks
Minni ríkishalli er beinni og réttlátari leið til að auka þjóðarsparnað og leiðir síður til aukins ójafnaðar
Yfirlit
Fylgjendur virkrar hagstjórnar líta svo á, að hagkerfið sé í eðli sínu óstöðugt og hægt sé að draga úr hagsveiflum með vel útfærðum hagstjórnaraðgerðum
Gagnrýnendur virkrar hagstjórnar benda á, að hagstjórnaraðgerðir orka á hagkerfið með töfum og erfitt sé að spá fyrir um gang efnahagslífsins og hvort tveggja geti leitt til þess, að tilraunir til hagstjórnar magni hagsveiflur frekar en að milda þær
Yfirlit
Fylgjendur fastra reglna um stjórn peningamála halda því fram, að peningastjórn eftir geðþótta geti liðið fyrir óhæfa seðlabankastjóra, misbeitingu valds og kvika ósamkvæmni
Gagnrýnendur fastra reglna um stjórn peningamála leggja áherzlu á, að peningastjórn eftir geðþótta sé sveigjanlegri og geti því brugðizt betur en bundnar hendur við breyttum aðstæðum
Yfirlit
Þeir, sem telja nauðsynlegt að draga úr skuldum ríkisins, halda því fram, að ríkisskuldin íþyngi komandi kynslóðum með því að þyngja skattbyrði þeirra og rýra ráðstöfunartekjur þeirra
Þeir, sem telja ekki nauðsynlegt að draga úr skuldum ríkisins, leggja áherzlu á, að ríkisskuldin sé aðeins lítill angi af miklu stærra viðfangsefni á vettvangi ríkisfjármálanna
Yfirlit
Þeir, sem eru hlynntir því að örva sparnað með skattaívilnunum, benda á, að almannavaldið refsar sparifjáreigendum með því til dæmis að skattleggja fjármagnstekjur og draga úr bótum handa þeim, sem hafa safnað auði
Þeir, sem telja ekki nauðsynlegt að örva sparnað með skattaívilnunum, benda á, að margar skattaívilnanir til að örva sparnað myndu einkum vera auðmönnum í hag og myndu hafa tiltölulega lítil áhrif á einkasparnað