Ferðaáætlun FFA 2016
-
Upload
ingimar-arnason -
Category
Documents
-
view
245 -
download
8
description
Transcript of Ferðaáætlun FFA 2016
2016FERÐAÁÆTLUN
Ferðafélag Akureyrar var stofnað 1936. Félagið er sjálfstæð deild innan Ferðafélags Íslands, sem þýðir að félagsmenn njóta allra sömu réttinda og félagar í F.Í. Ferðafélag Akureyrar býður upp á góða landkynningu og skemmtilegan félagsskap. Ferðir félagsins eru fjölbreyttar, lengri og styttri gönguferðir, jeppaferðir, sjóferðir, fjölskyldu- og skemmtiferðir, náttúru-skoðunarferðir og fleira. Allir geta fundið ferðir við sitt hæfi.
Félagið á og rekur sjö skála í óbyggðum á Norðulandi. Gæsla er í stærstu skálunum yfir sumarmánuðina. Nauðsynlegt er að panta gistingu með góðum fyrirvara.
Skrifstofa félagsins er opin í júní, júlí og ágúst milli kl. 15 og 18 virka daga. 1. sept.-31. maí er skrifstofan opin virka daga kl. 11-13. Auk þess opið milli kl. 18 og 19 á föstudögum þegar ferðir eru á dagskrá um komandi helgi. Á heimasíðu félagsins er að finna upplýsingar um félagið, skála þess og ferðaáætlun. Allir eru velkomnir í ferðir félagsins. Félagsmenn fá afslátt af fargjöldum og af gistigjöldum í skálum allra félagsdeilda F.Í. Þessara réttinda nýtur fjölskyldan öll þótt aðeins einn sé skráð-ur félagi.
Nauðsynlegt er að panta tímanlega í lengri ferðirÍ sumarleyfisferðir þarf að greiða staðfestingargjald kr. 8.000 við bókun. Ef ferð er afpöntuð innan viku frá bókun og meira en 2 vikum fyrir brottför, er hún endurgreidd að staðfestingar-gjaldi frátöldu. Ef 7-14 dagar eru til brottfarar fæst helmingur fargjalds endurgreitt, en eftir það er ekki um endurgreiðslu að ræða. Ferðafélagið áskilur sér rétt til að fella niður eða breyta ferðum ef nauðsyn krefur. Félagið tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra og hvetur því fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingu fyrir ferðir.
2
Ferðafélag AkureyrarStrandgötu 23600 Akureyri
Sími: 462 2720Heimasíða: www.ffa.is
Netfang: [email protected]ð yfir veturinn frá kl. 11-13
Léttar og stuttar ferðir:Ætlað öllum.
Miðlungs erfiðar ferðir:Flestir geta tekið þátt hafi þeir réttan útbúnað og líkamlega getu til þess.
Erfiðar ferðir:Einungis fyrir vana ferðamenn sem geta borið með sér allan útbúnað og eru færir um að takast á við ófyrir-séðan vanda.
Mjög erfiðar ferðir:Ferðir þar sem fólk ber með sér allan búnað og þarf að takast á við mikin hæðarmun. Aðeins fyrir fólk í mjög góðri þjálfun.
3
SKÁLAR FERÐAFÉLAGS AKUREYRAR
4
DREKI VIÐ ÖSKJUFjöldi: 55 manna
Þjónusta:Verð: 4.000 / 7.500
GPS staðsetning: 65°02.520 16°35.720
ÞORSTEINSSKÁLIHERÐUBREIÐARLINDIRFjöldi: 25 manna
Þjónusta:Verð: 3.500 / 6.500
GPS: staðsetning 65°11.560 16°13.390
LAUGAFELLFjöldi: 40 manna
Þjónusta:
Verð: 3.500 / 6.500
GPS: staðsetning 65°01.630 18°19.950
DYNGJUFELL Í DYNGJUFJALLADALFjöldi: 16 manna
Þjónusta:
Verð: 3.000 / 5.000
GPS: staðsetning 65°07.480 16°55.280
Skálaverðir á sumrin
Tjaldsvæði
Gönguleiðir
Eldunaraðstaða
Neyðarsími
Áætlunarbílar
ÞJÓNUSTUMERKI
Vatnssalerni
Kamar
Rennandi vatn
Sturta
Sorpílát
Heit laug
5
BOTNI Í SUÐURÁRBOTNUMFjöldi: 16 manna
Þjónusta:
Verð: 3.000 / 5.000
GPS: staðsetning 65°16.180 17°04.100
BRÆÐRAFELL Í ÓDÁÐAHRAUNIFjöldi: 12 manna
Þjónusta:
Verð: 2.500 / 4.000
GPS: staðsetning 65°11.310 16°32.290
LAMBI Á GLERÁRDALFjöldi: 16 manna
Þjónusta:
Verð: 3.000 / 5.000
GPS: staðsetning 65°34.880 18°17.770
Naf
n á
myn
dJA
NÚ
AR
6
Á Y
stuv
íkur
fjal
li
JanúarNýársganga 1. janúar. Brottför kl. 13 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Grétar Grímsson. Verð: Frítt. Farið út í óvissuna til að fagna nýju ári.
Bakkar Eyjafjarðarár. Skíðaferð 9. janúar. Brottför kl. 11 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Anke Maria Steinke. Verð: Frítt.Gangan hefst við bílastæðið við gamla Leiruveginn að austan. Létt og þægileg gönguleið fyrir alla sem ekki langar að fara í bröttu brekkurnar. Upplögð fjölskylduferð.
Súlumýrar. Skíðaferð 16. janúar. Brottför kl. 11 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Frímann Guðmundsson. Verð: Frítt.Gangan hefst við afleggjarann í Fálkafell og haldið þaðan upp Sig-urðargil og á Súlumýrar. Þar er frábært skíðagöngusvæði og finna má þar leiðir við allra hæfi.
21. janúar. Ferðakynning
Ystuvíkurfjall. Gönguferð Fjall mánaðarins. 23. janúar. Brottför kl. 11 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Grétar Grímsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Gengið frá bílastæði á Víkurskarði til vesturs, upp hlíðina og á toppinn, 552 m. Þaðan er gott útsýni yfir til byggðarinnar vestan fjarðarins og til Hríseyjar. 6 km. Hækkun 220 m.
7
Naf
n á
myn
dFE
BR
ÚA
R
8
Þorr
afer
ð í L
amba
í G
lerá
rdal
FebrúarÞorraferð í Lamba. Skíðaferð 13.-14. feb. Brottför kl. 11 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Ingvar Teitsson.Verð: 7.000/5.000. Innifalið: Fararstjórn og gisting.Ekið upp í Glerárdal að Sigurðargili, gengið þaðan á skíðum í Lamba, nýjan skála FFA, þar sem snæddur verður þjóðlegur þorra-matur um kvöldið undir vernd Trölla Glerárdals. Haldið heimleiðis næsta dag. 11 km hvora leið. Hækkun 470 m.
Þingmannahnjúkur. Gönguferð Fjall mánaðarins. 20. febrúar. Brottför kl. 11 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Einar Brynjólfsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Gengið frá Eyrarlandi yfir Þingmannalæk og eftir gömlum sneiðing-um á hnjúkinn, 650 m. 3 km hvor leið. Hækkun 630 m.
Galmaströnd. Skíðaferð 26. febrúar. Brottför kl. 11 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Frímann Guðmundsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Gengið frá Syðri-Reistará og niður undir sjó. Síðan norður til Hjalt-eyrar og skoðað hvaðan við fáum heita vatnið. Svo út á Arnarnes-nafir og aftur að Reistará um Bjarnarhól. Um 12 km. Lítil hækkun.
9
Gen
gið
um V
agla
skóg
MA
RS
10
MarsGengið um Vaglaskóg. Skíðaferð 5. mars. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Anke Maria Steinke. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið er að bílastæðinu í Vaglaskógi. Gengið um skóginn að Þórðar-stöðum eða eins og aðstæður leyfa. Lítil hækkun.
Krafla – Mývatn. Skíðaferð 12. mars. Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Ingvar Teitsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Ekið í Kröflu. Gengið þaðan að Leirhnjúki og hann skoðaður. Þaðan gengið um Sátu og norðan við Hlíðarfjall. Ferðin endar á að renna sér niður þægilega hallandi gil og að flugvellinum. Um 12 km. Lækkun 260 m.
Grenivíkurfjall. Gönguferð Fjall mánaðarins. 19. mars. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Konráð Gunnarsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Gengið frá bílastæði við uppgöngu á Kaldbak, þaðan upp fjallshlíð-ina og í átt að Sveigsfjalli. Um 6 km. Hækkun 500 m.
11
Opiðum helgarkl. 7-16
Opiðvirka daga
kl. 7-18
Úts
ýnið
af U
ppsa
lahn
júk
AP
RÍL
12
AprílGönguskörð. Skíðaferð 2. apríl. Brottför kl. 8 í rútu frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Frímann Guðmundsson.Verð: 6.500/6.000. Innifalið: Fararstjórn og akstur. Ekið að Hálsi í Köldukinn. Gengið upp hálsinn og þaðan gegnum Gönguskörð og endað við Syðri-Hól í Fnjóskadal. 13 km. Hækkun 350 m.
Skíðastaðir – Þelamörk. Skíðaferð 9. apríl. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Frímann Guðmundsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Gengið frá Skíðastöðum út hlíðina á Sjónarhól. Þaðan er þægilegt rennsli niður að Þelamerkurskóla. Farið í heita pottinn (ekki innifalið). Frekar létt ferð við flestra hæfi.
Uppsalahnjúkur. Gönguferð Fjall mánaðarins. 16. apríl. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Konráð Gunnarsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið er að Öngulsstöðum og að sumarhúsinu Seli. Gengið upp að vörðunni nyrst á Öxlinni og áfram inn eftir fjallinu. Síðan upp norð-austur hrygg fjallsins á hnjúkinn, 1100 m. 9 km.Hækkun 930 m.
13
Súl
urM
AÍ
14
Maí Súlur. Göngu- eða skíðaferð Fjall mánaðarins.1. maí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Líney Elíasdóttir. Þátttaka er ókeypis. Árleg ferð á bæjarfjall Akureyrar, 1143 m. Nokkuð auðveld göngu leið á fjallið. 11 km. Hækkun 880 m.
Seldalur við Öxnadal.Göngu- eða skíðaferð eftir aðstæðum 7. maí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Grétar Grímsson. Verð: 2.500/2.000 Innifalið: Fararstjórn.Ekið er inn að eyðibýlinu Bakkaseli í Öxnadal og gengið eftir götu-slóðum um áreyrarnar inn dalinn eftir aðstæðum og síðan aftur að bílunum. Um 14 km. Hækkun 180 m.
Fuglaskoðunarferð 14. maí. Brottför kl. 10 með rútu frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjórar: Jón Magnússon og Sverrir Thorstensen.Verð: 7.400/6.900 Innifalið: Fararstjórn, akstur og aðgangseyrir á safnið.Árleg fuglaskoðunarferð FFA. Ekið með rútu að Húsabakka í Svarfaðardal, fuglasafnið og fuglar í umhverfinu skoðað.
Hjóla- og gönguferð 21. maí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Sjá nánar á ffa.is.
15
Þorv
alds
dalu
r in
n að
vat
ni M
AÍ
- JÚ
NÍ
16
Reistarárskarð - Flár, 1000 m. Skíðaferð 28. maí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Vignir Víkingsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ferðin hefst við Freyjulund við Reistará. Stigið á skíðin í skarðinu og sveigt upp á Flár, hábungu fjallsins. Gengið suður eftir fjallinu eins og aðstæður leyfa og til baka norður í skarðið. 20 km. Hækkun 950 m.
Júní Þorvaldsdalur inn að vatni 4. júní. Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Valur Magnússon. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Gengið frá Stærra-Árskógi inn að vatni og til baka. 16 km. Hækkun 200 m.
Hálshnjúkur við Ljósavatnsskarð, 627 m.Fjall mánaðarins 11. júní. Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Grétar Grímsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið er í Vaglaskóg og að Efri-Vöglum þar sem gangan hefst. Geng-ið er upp hlíðina eftir stikaðri leið og á Hálshnjúkinn þar sem frá-bært útsýni er yfir Fnjóskadalinn og Ljósavatnsskarðið. Farið er sömu leið til baka. 5 km. Hækkun 380 m.
17
Gön
guvi
ka 1
JÚN
Í
18
19
Raðganga 1.
Grímubrekkur, Ólafsfjörður – Dalvík 18. júní. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Konráð Gunnarsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið að Kálfsá í Ólafsfirði og gengið upp Kálfsárdal og niður Grímu-brekkur og Upsadal til Dalvíkur, 14 km. Mesta hæð 930 m.
Gönguvika 1.
Haus í Staðarbyggðarfjalli 20. júní. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Roar Kvam. Verð: 1.000/500. Innifalið: Fararstjórn.Gengið frá sumarhúsinu Seli upp brekkurnar að vörðunni nyrst á Hausnum. 430 m. Gengið inn eftir fjallinu og niður austan megin. Af Hausnum er mikið og fagurt útsýni yfir héraðið.
Sumarsólstöður á Múlakollu 21. júní. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Gunnar Halldórsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Gengið upp á Múlakollu, 970 m, frá gamla Múlaveginum og upp dalinn norðan Brimnesár. 8 km.
Á t
oppn
um m
eð F
FAJÚ
NÍ
20
21
Á toppnum með FFASumarleikurinn vinsæli
Á toppnum með Ferðafélagi Akureyrar hefst í byrjun júní.
Kynnist ykkar nánasta umhverfi og gerist þaular Eyjafjarðar.
Glæsilegir vinningar í boði fyrir heppa þátttakendur.
Sjá nánar á heimasíðunni ffa.is þegar nær dregur.
Rað
gang
a 2
JÚN
Í
22
Gamli, skáli við Kjarnaskóg 22. júní. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Halldór Brynjólfsson. Verð: 1.000/500. Innifalið: Fararstjórn.Gangan hefst við bílastæðið við Kjarnakot og genginn stígurinn suður í Hvammsskóg og upp í Gamla. 5 km.
Laufáshnjúkur. Jónsmessunæturganga 23. júní. Brottför kl. 21 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Einar Brynjólfsson/ Björn Ingólfsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið að prestssetrinu Laufási og þaðan gengið á hnjúkinn. Auðveld ganga en síðasti hlutinn er nokkuð brattur. Stórkostlegt útsýni yfir Eyjafjörðinn og Höfðahverfið. 6 km. Hækkun 680 m.
Fálkafell, skáli 24. júní. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Halldór Brynjólfsson. Verð: 1.000/500. Innifalið: Fararstjórn.Gengið frá hitaveitutönkunum og að Fálkafelli.
Raðganga 2. Derrisskarð, Skíðadalur – Þorvaldsdalur 25. júní. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Konráð Gunnarsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið er að Hlíð í Skíðadal og gengið upp í Derrisskarð. Þaðan er haldið niður Derrisdal og um Fögruhlíð að Hrafnagilshrauni í Þor-valdsdal og að Stærri-Árskógi. 21 km. Mesta hæð 1150 m.
23
Með
fram
Gle
ráJÚ
LÍ
24
Júlí Skessuskálarfjall í Út-Kinn, 881 m. 2. júlí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Ingimar Árnason. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið að bænum Nípá í Út-Kinn. Gengið upp vegslóða upp í Kota-skarð og þaðan á fjallið. Ef veður og færi leyfir má ganga suður fjallið og niður með Nípánni að sunnan. Vegalengd 10-14 km.Hækkun 850 m.
Meðfram Glerá 9. júlí. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Ingimar Eydal. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Gengið meðfram Glerá frá Heimari-Hlífá til ósa. Frábær og áhuga-verð gönguferð í okkar nánasta umhverfi þar sem skoða má sjald-séðar jurtir. Göngutími 4-5 klst.
Lambi, afmælisferð 10. júlí. Brottför kl. 8 Fararstjórar: Stefán Sigurðsson/Ingimar Árnason. Verð: Frítt. Innifalið: Fararstjórn.Útiveru og dásemda fjallahringsins á útivistarsvæði Akureyringa notið. Í góðu færi er þetta frekar létt ferð eftir merktri gönguleið. Um 20 km. Hækkun 450 m.
Tungnafjall í Eyjafirði, 1140 m. Fjall mánaðarins 16. júlí. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Elín Hjaltadóttir. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið inn að Munkaþverá að Rifkelsstaðarétt. Eftir að fossinn sem fellur í Mjaðmá hefur verið skoðaður er gengið upp með Efri-Þverá, síðan upp hrygg Tungnafjalls og hnjúkana hvern af öðrum á topp-inn. 18 km. Hækkun 1000 m.
25
Gön
guvi
ka 2
JÚLÍ
26
Gönguvika 2.
Steindyr – Nykurtjörn 18. júlí. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Frímann Guðmundsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Ekið inn í Svarfaðardal að vestan að Steindyrum. Gengið upp með Þverá og fossinn skoðaður, þaðan upp hlíðina að Nykurtjörn og hún skoðuð. Síðan er farið niður að Húsabakka. 6 km. Hækkun 600 m.
Hólshyrna (Álfhyrna) í Siglufirði 19. júlí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Una Sigurðardóttir. Verð: 2.500/2.000. Ekið til Siglufjarðar og bílum lagt á bílastæðinu við útsýnisplanið á Saurbæjarási. Þaðan er gengið upp brattan hrygg Hólshyrnu, síðan inn eftir Hólsfjalli með viðkomu á ýmsum toppum. Farið niður í Skútadalinn og til baka að bílum. 9 km. Hækkun 600 m.
Stórutjarnaskóli – Níphólstjörn 20. júlí. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Konráð Gunnarsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Ekið er að Stórutjarnaskóla og gengið þaðan upp hlíðina að vatninu í framhlaupinu og umhverfið skoðað. Stutt ganga og þægileg, lítil hækkun.
27
Fjöl
lin u
mhv
erfis
Gle
rárd
alin
nJÚ
LÍ
28
Sesseljubúð – Hallgrímur – Háls 21. júlí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjórar: Stefán Sigurðsson/Ingimar Árnason.Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ferðin hefst á Öxnadalsheiði þar sem sæluhúsið Sesseljubúð stóð. Gengið upp með Grjótá og fylgt Eystri Grjótá að Gilsárskarði. Síðan upp á Varmavatnshólafjall, þaðan sem er frábært útsýni. Þá er farið niður Vatnsdalinn meðfram Hraunsvatni og að bænum Hálsi. 17 km. Hækkun 690 m.
Finnurinn í Ólafsfirði 22. júlí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Ekið er til Ólafsfjarðar að bænum Ytri-Á. Þaðan er gengið á fjallið Arnfinnsfjall eða Finninn, eins og fjallið er jafnan kallað af heima-mönnum. 6 km. Hækkun 690 m.
Öskjuvegur 1 22.-26. júlí. Sjá á bls. 33.
Fjöllin umhverfis Glerárdalinn 23. júlí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjórar Ingimar Árnason og Karl Stefánsson.Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Ekið er að bænum Þverá í Öxnadal þaðan sem gangan hefst. Geng-ið er upp með Þveránni og síðan Lambánni og upp á Jökulborg. Þá yfir á Kistufjall og niður í Glerárdal. Þá er komið að Stórastalli og Glerárdalshnjúk, lokahnykkurinn er að fara upp á Kerlingu og niður að Finnastöðum. Vegalengd um 25 km. Heildarhækkun um 2200 m.
29
Blá
skóg
aveg
urJÚ
LÍ
30
Þingmannavegur, afmælisferð 24. júlí. Brottför kl. 8 frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Helga Guðnadóttir. Verð: 6.500/6.000 Innifalið: Fararstjórn og rúta.Genginn er svokallaður Þingmannavegur yfir Vaðlaheiði frá þing-staðnum í Eyjafjarðarsveit að Hróarsstöðum. Á leiðinni er gengið yfir afar sérstaka hleðslu yfir gil.Í tilefni af 80 ára afmæli Ferðafélags Akureyrar býður félagið í grill í lok ferðar.
Mælifellshnjúkur í Skagafirði, 1138 m. 30. júlí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Una Sigurðardóttir. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið í Skagafjörð sem leið liggur að uppgöngunni í Mælifellsdal. Síðan er gengið eftir merktri slóð á hnjúkinn. Þaðan er útsýnið stórfenglegt til allra átta. 6,3 km. Hækkun um 700 m.
Bláskógavegur 31. júlí. Brottför kl. 8 með rútu frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Sigurgeir Sigurðsson. Verð: 10.800/10.300. Innifalið: Fararstjórn og akstur.Ekið er til Húsavíkur og á Þeistareykjaveg að vegslóða út að Sælu-húsmúla. Þaðan verður gengin hin forna leið Bláskógavegur (ath. ekkert vatn á leiðinni!) að býlinu Undirvegg í Kelduhverfi. Komið við í Gljúfrastofu ef aðstæður leyfa. 21 km.
31
Ösk
juve
gur
JÚLÍ
– Á
GÚ
ST
32
33
Öskjuvegur 1 22.-26. júlí. Brottför kl. 17 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Ingvar Teitsson. Verð: 68.000/59.000. Innifalið: Akstur, flutningur, gisting og fararstjórn.Skráningargjald kr. 10.000 greiðist við bókun. Lágmarksfjöldi: 10.Gist í skálum og gengið með lágmarksbúnað og svefnpoka, ekið er með farangur á milli skála.
1.d. Ekið í Dreka, skála FFA austan Dyngjufjalla, með viðkomu í Herðubreiðarlindum. 2.d. Gengið frá Drekagili, yfir Dyngjufjöll að Öskju og ef til vill farið í sund í Víti. Hópurinn sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka að Dreka.3.d. Ekið í Öskjuop, gengið yfir Dyngjufjöll um Jóns-skarð og í Dyngjufjalladal. Gist í Dyngjufelli. 14 km.4.d. Gengið norður Dyngjufjalladal í Suðurárbotna. Gist í Botna. 20-22 km.5.d. Gömlum jeppaslóða fylgt niður um Suðurárbotna og meðfram Suðurá að Svartárkoti. 15-16 km. Ekið í Mývatnssveit um Engidal og Stöng. Farið í Jarðböðin í Mývatnssveit. Ekið til Akureyrar.
ÁgústÖskjuvegur 2 6. -10. ágúst. Brottför kl. 17 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Frímann Guðmundsson. Verð: 68.000/59.000. Innifalið: Akstur, flutningur, gisting og fararstjórn. Sjá Öskjuvegur 1.
Þver
brek
kuhn
júku
rÁ
GÚ
ST
34
35
Kerling. Sjö tinda ferð 6. ágúst. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjórar: Sigurlína Jónsdóttir og Frímann Guðmundsson. Verð: 4.500/2.500. Innifalið: Fararstjórn. Gengið á Kerlingu í Eyjafirði, 1538 m, frá Finnastöðum og svo norð-ur eftir tindunum Hverfanda, Þríklökkum, Bónda, Litla Krumma, Stóra Krumma, Syðrisúlu og Ytrisúlu. Endað í Glerárdal. 20 km.
Þverbrekkuhnjúkur. Fjall mánaðarins 13. ágúst. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23Fararstjóri: Karl Stefánsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið að Hálsi í Öxnadal og þaðan er gengið um Vatnsdal á Þver-brekkuhnjúk, 1173 m, síðan um Bessahlaðaskarð og Beitarhúsagil að Hálsi þar sem göngunni lýkur. 19 km. Hækkun 940 m.
Herðubreið 20. ágúst. Brottför kl. 17 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Verð: Í húsi: 11.500/7.500. Í tjaldi: 7.000/5.000. Innifalið: Gisting og fararstjórn. Árleg ferð FFA á þjóðarfjallið. Ekið í Herðubreiðarlindir og gist þar í eina nótt í tjöldum eða skála. Gengið á Herðubreið, 1682 m, á laugardegi og haldið heim. Hjálmur, broddar eða klær og ísexi er nauðsynlegur búnaður. Hækkun um 1000 m.
Ystuvíkurfjall – Laufáshnjúkur. 5 tinda ferð 27. ágúst. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Roar Kvam. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið er að bílastæðinu á Víkurskarði, gengið á Ystuvíkurfjall og þaðan norður eftir tindunum Kræðufelli, Nónhnjúki, Stórahnjúki og Laufáshnjúki og endar gangan í Laufási. 15 km.
Suð
urár
botn
ar -
Hau
stlit
afer
ðS
EP
TEM
BER
36
SeptemberKaldbakur. Fjall mánaðarins 3. sept. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Frímann Guðmundsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Kaldbakur, 1173 m, er fjall Eyjafjarðar með útsýni allt austur á Langanes og inn á hálendi Íslands og ferð upp á hann er ógleym-anleg lífsreynsla. 10 km. Hækkun 1100 m.
Draflastaðir – Skuggabjarga- og Melaskógur 10. sept. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Anna Blöndal. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið að Draflastöðum og gengið þaðan út hlíðina og upp á Múlana og skógræktin skoðuð. Síðan út í Skuggabjörg þar sem staldrað verður við hjá gömlu bæjarrústunum og fræðst um svæðið. Til baka verður farin neðri leiðin og skoðaður skógargróður og hugað að hrútaberjum. Þá er haldið inn á Melatún og að Draflastöðum þar sem gott væri að fá sér kaffisopa. Vegalengd 14 km. Hækkun 200 m.
Suðurárbotnar. Haustlitaferð 17.-18. september.Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Anke María Steinke. Verð: 9.000/7.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið að Svartárkoti og gengið í Botna, skála FFA í Suðurárbotnum þar sem gist verður og haustlitir svæðisins, sem eru stórkostlegir, skoðaðir. Vegalengd um 14 km aðra leið.
37
Skó
lava
rða
OK
TÓ
BER
- N
ÓV
EM
BER
- D
ES
EM
BER
38
OktóberBöggvisstaðafjall, 773 m. Fjall mánaðarins 15. október. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Frímann Guðmundsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið út á Dalvík og upp á skíðasvæðið. Þaðan er gengið upp með lyftunni og áfram að vörðunni. Þaðan er mikið útsýni í góðu veðri yfir Tröllaskagann og austur yfir Eyjafjörðinn. 6 km.Hækkun 720 m.
NóvemberSkólavarða á Vaðlaheiði. Fjall mánaðarins 12. nóv. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Anke Maria Steinke. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið að uppgöngunni í Veigastaðalandi og gengið eftir merktri leið upp á heiðina að vörðunni. 2-3 klst. Létt ganga.
DesemberDraflastaðafjall. Fjall mánaðarins 3. des. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Gunnar Halldórsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Gengið frá bílastæði efst á Víkurskarði upp á fjallið, 734 m, notið útsýnisins og genginn hringur á fjallinu. Frekar létt ganga við flestra hæfi. 10 km. Hækkun 390m.
JanúarNýársganga1. janúar 2017, kl. 13 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.Fararstjóri: Grétar Grímsson. Þátttaka ókeypis og allir velkomnir út í óvissuna til að fagna nýju ári.
39
40
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Þú kemst alltaf í bankann á L.is
Farsímabanki Landsbankans hefur fengið nýtt útlitog viðbætur sem veita þér enn betri yfirsýn yfir fjármálin.Á L.is geturðu framkvæmt allar helstu bankaaðgerðir og einfalt að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.