Eystrahorn 43. tbl. 2015

8
Fimmtudagur 10. desember 2015 www.eystrahorn.is Eystrahorn 43. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is Fyrr í sumar auglýsti Sveitarfélagið Hornafjörður eftir umsóknum í starf skipulagsstjóra. Eftir ráðningaferlið var það niðurstaða bæjarráðs að Gunnlaugur Róbertsson yrði fyrir valinu. Gunnlaugur er fæddur árið 1977 og er giftur Laufeyju Sveinsdóttur, saman eiga þau tvö börn og eru búsett á Höfn. Gunnlaugur hefur MSc. próf í verkfræði frá DTU (Tækniháskóla Danmerkur) auk þess hefur hann sótt námskeið í stjórnun. Gunnlaugur hefur búið í Danmörku síðustu ár og starfað hjá ráðgjafafyrirtækjum svo sem Sweco og Rambøll. Gunnlaugur hefur öðlast umfangsmikla reynslu í hönnun og áætlunargerð á vega-, lestar- og fótgöngubrúm. Gunnlaugur hefur mikla reynslu í stjórnun þverfaglegra, flókinna verkefna. Á ferli sínum hefur Gunnlaugur metið burðarþol fjölmargra mannvirkja og út frá niðurstöðum veitt ráðgjöf varðandi styrkingu/niðurrif, aðallega á brúarmannvirkjum og göngum. Gunnlaugur hefur tekið þátt í og stýrt ýmsum útboðsverkum á háhraða lestarverkefnum sem og hraðbrauta- og þjóðvegaverkum. Gunnlaugur hefur gegnt lykilhlutverki við ýmis alverktakaverkefni. Skipulagsstjóri hefur yfirumsjón og eftirlit með faglegu starfi skipulagssviðs. Hann er ábyrgur fyrir daglegum rekstri sviðsins þ.m.t. starfsmannamálum og fjármálum. Áætlunargerð og stefnumótun í samstarfi við skipulagsnefnd. Undirbúning og eftirfylgni mála sem varða skipulagsnefnd og situr fundi skipulagsnefndar með málfrelsi og tillögurétt. Samskipti við innri og ytri stofnanir. Hlutverk skipulagsfulltrúa er að hafa umsjón með skipulagsgerð, hafa eftirlit með að framkvæmdir séu í samræmi við útgefin leyfi og annast að öðru leyti þau verkefni sem honum eru falin af sveitarstjórn. Það er í höndum skipulagsfulltrúa í umboði sveitarstjórnar að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar við gerð skipulagsáætlana varðandi útlit bygginga og form og aðgengi fyrir alla. Skipulagsfulltrúi skal sjá um að öll gögn sem ákvarðanir skipulagsnefndar eru byggðar á, séu tryggilega varðveitt. Ber ábyrgð á skipulags- og tæknimálum ásamt framkvæmdum í sveitarfélaginu. Nú þegar líður að jólum og fjárhagsáætlun sveitarfélagsins hefur verið afgreidd er gott að setjast niður og fara yfir stöðuna. Þegar unnið er að fjárhagsáætlun er verið að skoða rekstur nánar en gert er á öðrum tíma ársins og framkvæmdum forgangsraðað. Hvað reksturinn varðar þá snýst þetta jú allt um tekjur og gjöld og hvað er svo eftir til framkvæmda! Tekjurnar eru í fastmótuðum skorðum en ef óskalisti útgjalda væri skoðaður þá er svo ótalmargt sem þarf að gera fyrir svo utan það sem gaman væri að gera. Fjárhagsleg staða Sveitarfélagsins Hornafjarðar er traust og hefur verið svo um árabil. Hins vegar erum við ekki stórt sveitarfélag og er reksturinn mjög viðkvæmur fyrir sveiflum í samfélaginu s.s. kjarasamningum, aflabrögðum o.s.frv. Í bæjarstjórn höfum við öll metnað fyrir góðum rekstri sveitarfélagsins. En erum ekki alltaf sammála um forgangsröðun. Mörg eru verkefnin sem þarf að ráðast í og ljóst að þrátt fyrir góða stöðu sveitarfélagsins það er margt sem ekki kemst að. Ég hef t.d. óskað eftir upplýsingum um áætlaðan kostnað þess að heimilisfræðistofa grunnskólans verði endurbætt. Sú aðstaða er löngu úr sér gengin og var um tíma horft til þess að heimilisfræðin flyttist í Vöruhúsið, en frá því hefur verið horfið. Ef farið yrði í endurbætur á heimilisfræðistofunni er ekki ólíklegt að hagkvæmast eða allavega skynsamlegast væri að taka millibygginguna á milli Heppuskóla og íþróttahúss í heild sinni í gegn. En hún er ekki á framkvæmdalista ársins 2016. Jökulheimar og uppbygging leiguíbúða á vegum sveitarfélagsins hafa verið í umræðunni nú í haust. Bæði verkefnin brýn að mínu mati en hvorugt lögbundið skylduverkefni sveitarfélagsins. Einnig það að treysta Matarsmiðjuna í sessi, koma Miklagarði í fulla starfsemi og margt, margt fleira. Meirihluti bæjarstjórnar hefur sett stefnuna á einn leikskóla undir eitt þak árið 2017. Var það gert í kjölfar skoðanakönnunar þar sem boðið var upp á möguleika á nýju húsnæði. Það kemur ekki á óvart að meirihluti var fyrir því að byggt yrði við, en í dag er farið að ræða þann möguleika að byggja nýjan leikskóla frá grunni en svo öllu sé nú til haga haldið þá eru 20 milljónir í framkvæmdaáætlun ársins 2016 í leikskóla. Með áðurnefndri skoðanakönnun var ákveðnum hluta íbúa sveitarfélagsins gefið tækifæri til að hafa áhrif á framkvæmdaáætlun sveitarfélagins, alla vega til 2017! Því lagði ég það til við afgreiðslu fjárhagsáætlunar sl. fimmtudag hvort ekki væri rétt að bjóða uppá almennar íbúakosningar um forgangsröðun framkvæmda sveitarfélagsins. Verður vonandi tekin afstaða til þess fyrir fjárhagsáætlunarvinnu næsta haust. Fjölmörg verkefni eru framundan, lögbundin skylduverkefni og önnur sem geta auðgað atvinnulíf, mannlíf og lífsgæði íbúa og því rétt að ekki aðeins fámennur hópur komi sínum sjónarmiðum að heldur allir þeir íbúar sem vilja leggja sína skoðun til málanna. Varðandi tekjuöflun sveitarfélagsins þá hækkar álagningarprósenta fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði um 0,03% um áramót og verður heimild til álagningar þá fullnýtt í þeim flokki. Undirrituð átti frumkvæði að þeirri hækkun og naut stuðnings formanns bæjarráðs til að koma því máli fyrir bæjarstjórn. Bæjarstjórn samþykkti síðan hækkunina og ákvað að umrædd hækkun tæp 1,4 milljón króna myndi renna til Atvinnu- og rannsóknarsjóðs næstu þrjú árin. Að mínu mati er það góð lausn sem styður við frumkvöðla og nýsköpun í atvinnulífi. Hér hef ég stiklað á stóru um hin ýmsu verkefni sem við erum að fást við í bæjarstjórn. Um sumt er sátt og annað ekki en þegar á heildina er litið upplifi ég góðan anda og samstöðu innan bæjarstjórnar. Ég vil hvetja íbúa til að vera virka í samfélagsumræðunni og vil benda á að allar fundargerðir eru aðgengilegar á stjórnsýsluvef sveitarfélagsins. Það er alltaf gaman að eiga samræður við íbúa um málefni samfélagsins okkar og fá fram ykkar áherslur og væntingar. lokum vil ég fyrir hönd aðal- og varabæjarfulltrúa Framsóknarflokksins, óska öllum íbúum og gestum Sveitarfélagsins Hornafjarðar gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári! Ásgerður K. Gylfadóttir oddviti Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Hornafjarðar Hvað er í gangi - eitt og annað af bæjarstjórnarmálum Gunnlaugur Róbertsson ráðinn skipulagsstjóri

description

 

Transcript of Eystrahorn 43. tbl. 2015

Page 1: Eystrahorn 43. tbl. 2015

Fimmtudagur 10. desember 2015 www.eystrahorn.is

Eystrahorn43. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is

Fyrr í sumar auglýsti Sveitarfélagið Hornafjörður eftir umsóknum í starf skipulagsstjóra. Eftir ráðningaferlið var það niðurstaða bæjarráðs að Gunnlaugur Róbertsson yrði fyrir valinu. Gunnlaugur er fæddur árið 1977 og er giftur Laufeyju Sveinsdóttur, saman eiga þau tvö börn og eru búsett á Höfn. Gunnlaugur hefur MSc. próf í verkfræði frá DTU (Tækniháskóla Danmerkur) auk þess hefur hann sótt námskeið í stjórnun. Gunnlaugur hefur búið í Danmörku síðustu ár og starfað hjá ráðgjafafyrirtækjum svo sem Sweco og Rambøll. Gunnlaugur hefur öðlast umfangsmikla reynslu í hönnun og áætlunargerð á vega-, lestar- og fótgöngubrúm. Gunnlaugur

hefur mikla reynslu í stjórnun þverfaglegra, flókinna verkefna. Á ferli sínum hefur Gunnlaugur metið burðarþol fjölmargra mannvirkja og út frá niðurstöðum veitt ráðgjöf

varðandi styrkingu/niðurrif, aðallega á brúarmannvirkjum og göngum. Gunnlaugur hefur tekið þátt í og stýrt ýmsum útboðsverkum á háhraða lestarverkefnum sem og hraðbrauta- og þjóðvegaverkum. Gunnlaugur hefur gegnt lykilhlutverki við ýmis alverktakaverkefni. Skipulagsstjóri hefur yfirumsjón og eftirlit með faglegu starfi skipulagssviðs. Hann er ábyrgur fyrir daglegum rekstri sviðsins þ.m.t. starfsmannamálum og fjármálum. Áætlunargerð og stefnumótun í samstarfi við skipulagsnefnd. Undirbúning og eftirfylgni mála sem varða skipulagsnefnd og situr fundi skipulagsnefndar með málfrelsi og tillögurétt. Samskipti við innri og ytri

stofnanir. Hlutverk skipulagsfulltrúa er að hafa umsjón með skipulagsgerð, hafa eftirlit með að framkvæmdir séu í samræmi við útgefin leyfi og annast að öðru leyti þau verkefni sem honum eru falin af sveitarstjórn. Það er í höndum skipulagsfulltrúa í umboði sveitarstjórnar að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar við gerð skipulagsáætlana varðandi útlit bygginga og form og aðgengi fyrir alla. Skipulagsfulltrúi skal sjá um að öll gögn sem ákvarðanir skipulagsnefndar eru byggðar á, séu tryggilega varðveitt. Ber ábyrgð á skipulags- og tæknimálum ásamt framkvæmdum í sveitarfélaginu.

Nú þegar líður að jólum og fjárhagsáætlun sveitarfélagsins hefur verið afgreidd er gott að setjast niður og fara yfir stöðuna. Þegar unnið er að fjárhagsáætlun er verið að skoða rekstur nánar en gert er á öðrum tíma ársins og framkvæmdum forgangsraðað. Hvað reksturinn varðar þá snýst þetta jú allt um tekjur og gjöld og hvað er svo eftir til framkvæmda! Tekjurnar eru í fastmótuðum skorðum en ef óskalisti útgjalda væri skoðaður þá er svo ótalmargt sem þarf að gera fyrir svo utan það sem gaman væri að gera. Fjárhagsleg staða Sveitarfélagsins Hornafjarðar er traust og hefur verið svo um árabil. Hins vegar erum við ekki stórt sveitarfélag og er reksturinn mjög viðkvæmur fyrir sveiflum í samfélaginu s.s. kjarasamningum, aflabrögðum o.s.frv. Í bæjarstjórn höfum við öll metnað fyrir góðum rekstri sveitarfélagsins. En erum ekki alltaf sammála um forgangsröðun. Mörg eru verkefnin sem þarf að ráðast í og ljóst að þrátt fyrir góða stöðu sveitarfélagsins að það er margt sem ekki kemst að. Ég hef t.d. óskað eftir upplýsingum um áætlaðan kostnað þess að heimilisfræðistofa grunnskólans verði endurbætt. Sú aðstaða er löngu úr sér gengin og var um tíma horft til þess að heimilisfræðin flyttist í Vöruhúsið, en frá því hefur verið horfið. Ef farið yrði í endurbætur á heimilisfræðistofunni er ekki ólíklegt að hagkvæmast eða allavega skynsamlegast væri að taka millibygginguna á milli Heppuskóla og íþróttahúss í heild sinni í gegn. En hún er ekki á framkvæmdalista ársins 2016. Jökulheimar og uppbygging leiguíbúða á vegum sveitarfélagsins hafa verið í umræðunni nú í haust. Bæði verkefnin brýn að mínu mati en hvorugt lögbundið skylduverkefni sveitarfélagsins. Einnig það að treysta Matarsmiðjuna í sessi, koma Miklagarði í fulla starfsemi og margt, margt fleira. Meirihluti bæjarstjórnar hefur sett stefnuna á einn leikskóla undir eitt þak árið 2017. Var það gert í kjölfar skoðanakönnunar þar sem boðið var upp á

möguleika á nýju húsnæði. Það kemur ekki á óvart að meirihluti var fyrir því að byggt yrði við, en í dag er farið að ræða þann möguleika að byggja nýjan leikskóla frá grunni en svo öllu sé nú til haga haldið þá eru 20 milljónir í framkvæmdaáætlun ársins 2016 í leikskóla. Með áðurnefndri skoðanakönnun var ákveðnum hluta íbúa sveitarfélagsins gefið tækifæri til að hafa áhrif á framkvæmdaáætlun sveitarfélagins, alla vega til 2017! Því lagði ég það til við afgreiðslu fjárhagsáætlunar sl. fimmtudag hvort ekki væri rétt að bjóða uppá almennar íbúakosningar um forgangsröðun framkvæmda sveitarfélagsins. Verður vonandi tekin afstaða til þess fyrir fjárhagsáætlunarvinnu næsta haust. Fjölmörg verkefni eru framundan, lögbundin skylduverkefni og önnur sem geta auðgað atvinnulíf, mannlíf og lífsgæði íbúa og því rétt að ekki aðeins fámennur hópur komi sínum sjónarmiðum að heldur allir þeir íbúar sem vilja leggja sína skoðun til málanna. Varðandi tekjuöflun sveitarfélagsins þá hækkar álagningarprósenta fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði um 0,03% um áramót og verður heimild til álagningar þá fullnýtt í þeim flokki. Undirrituð átti frumkvæði að þeirri hækkun og

naut stuðnings formanns bæjarráðs til að koma því máli fyrir bæjarstjórn. Bæjarstjórn samþykkti síðan hækkunina og ákvað að umrædd hækkun tæp 1,4 milljón króna myndi renna til Atvinnu- og rannsóknarsjóðs næstu þrjú árin. Að mínu mati er það góð lausn sem styður við frumkvöðla og nýsköpun í atvinnulífi. Hér hef ég stiklað á stóru um hin ýmsu verkefni sem við erum að fást við í bæjarstjórn. Um sumt er sátt og annað ekki en þegar á heildina er litið upplifi ég góðan anda og samstöðu innan bæjarstjórnar. Ég vil hvetja íbúa til að vera virka í samfélagsumræðunni og vil benda á að allar fundargerðir eru aðgengilegar á stjórnsýsluvef sveitarfélagsins. Það er alltaf gaman að eiga samræður við íbúa um málefni samfélagsins okkar og fá fram ykkar áherslur og væntingar. Að lokum vil ég fyrir hönd aðal- og varabæjarfulltrúa Framsóknarflokksins, óska öllum íbúum og gestum Sveitarfélagsins Hornafjarðar gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári!

Ásgerður K. Gylfadóttir oddviti Framsóknarflokksins

í bæjarstjórn Hornafjarðar

Hvað er í gangi- eitt og annað af bæjarstjórnarmálum

Gunnlaugur Róbertsson ráðinn skipulagsstjóri

Page 2: Eystrahorn 43. tbl. 2015

2 EystrahornFimmtudagur 10. desember 2015

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum

HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811

Kt. 240249-2949

EystrahornEystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

kemur út fimmtudaginn 17. desemberÞeir sem óska eftir að senda jólakveðjur, auglýsa eða fá birt efni í jólablaðinu eru beðnir að hafa samband við ritstjóra sem fyrst í tölvupósti: [email protected]. Jólablaðið kemur út fimmtudaginn 17. desember og þarf allt efni, auglýsingar og kveðjur að berast í síðasta lagi fyrir hádegi þriðjudaginn 15. desember. Fólk getur sjálft samið kveðjurnar eða valið staðlaðar kveðjur sem hægt er að fá sendar í tölvupósti. Hér fyrir neðan er sýnishorn af einni gerð jólakveðju sem kostar kr. 3.000,- (3.720,- m/vsk).

Jólablað Eystrahorns

Sendum vinum og vandamönnum innilegar jólakveðjur

með þökk fyrir liðin ár .

Jón og Gunna

HafnarkirkjaSunnudaginn 13. desember

Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00 með þátttöku

fermingarbarna.

Aðventuhátíð kl. 20:00Barnakórinn og Samkórinn syngja ásamt

bjöllukór og flautuleikurum. Hugrún Harpa Reynisdóttir flytur hugvekju.

Prestarnir

Vaktsími presta: 894-8881

bjarnanesprestakall.is

Kaþólska kirkjan á HornafirðiMessur á næstunni verða á eftirtöldum dögum kl. 12:00:• Sunnudaginn 13. desember,

3ja sunnudag í aðventu.• Sunnudaginn 27. desember, Jólamessa.• Sunnudaginn 10. janúar, skírn DrottinsHittumst í kapellunni okkar.Gott væri að skrá sig 13. desember hjá Pétri varðandi húsblessanir.

BrunnhólskirkjaSunnudaginn 13. desember

Aðventuhátíð kl. 14:00Sigurður Hannesson flytur hugvekju.

Prestarnir

KálfafellsstaðarkirkjaSunnudaginn 13. desember

Aðventuhátíð kl. 16:00Torfhildur Hólm Torfadóttir

flytur hugvekju

PrestarnirRakarastofan verður opin

kl. 10:00 - 18:00 alla virka daga frá 10. desember.Opið verður:

laugardaginn 12. desember kl. 11:00-16:00, laugardaginn 19. desember kl. 11:00-16:00, sunnudaginn 20. desember kl. 11:00 -16:00.

Lokað verður á aðfangadag og fram til 4. janúar.

Rakarastofa Baldvins

Félagsstarf í EKRUNNIJólasamvERa Félags EldRI HoRNFIRðINga verður haldin í Ekrunni sunnudaginn 13. desember og hefst kl. 15:00. Kaffiveitingar og skemmtilegheit í anda jólanna. HITTUMST HRESS!

Félag eldri Hornfirðinga

Föstudagshádegií Nýheimum kl. 12:15

Ljúfir tónar - allir velkomnir.

Page 3: Eystrahorn 43. tbl. 2015

3Eystrahorn Fimmtudagur 10. desember 2015

Lúðrasveit- Hornafjarðar, Tónskólans og Big-bandið verða með tónleika í Sindrabæ laugardaginn 12. desember kl. 15:00. Aðgangur ókeypis. Kaffiveitingar verða seldar á tónleikunum. Húsið opnað kl. 14:30. Lúðrasveit Hornafjarðar sem skipuð er nemendum í 7. bekk og eldri, ætla á mót til Calella á Spáni í sumar, en þar hafa bæjaryfirvöld sóst eftir hljómsveitum og öðrum listahópum til að efla menningarlíf bæjarins. Reiknað er með um eða yfir 1000 manns í þessum hópum. Hljómsveitin mun spila a.m.k. þrenna tónleika þar ytra en þetta mun vera 10. árið sem þetta mót er haldið. Veitingasalan á okkar jólatónleikum er liður í fjáröflun. Einnig mun hljómsveitin spila víða um bæinn á Þorláksmessu.

Tónleikarnir verða í Sindrabæ laugardaginn 12. desember kl. 15:00.

Aðgangur ókeypis.

Rithöfundakynning í Nýheimum

Árlegur upplestur rithöfunda verður í Nýheimum Fimmtudaginn 10.des. klukkan 20:00

Alls eru sex rithöfundar sem heimsækja okkur í þetta sinn og þeir eru:

Bjarki Bjarnason

Hermann Stefánsson

Gerður Kristný

Sigríður Hjördís Jörundsdóttir

Soffía Auður Birgisdóttir

Þórunn Jarla Valdimarsdóttir

Einnig verða tónlistaratriði.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Piparkökur og konfekt í boði og kaffi á boðstólum.

Hornafjarðarsöfn

LúðrajólNáMskeIð

Námskeið fyrir lyftara, dráttarvélar með tækjabúnaði, liðléttinga og minni

jarðvinnuvélar.

Námskeiðið verður á Hornafirði, þriðjudag 15. desember

og miðvikudag 16. desember 2015 í slysavarnarhúsinu á Höfn.

Hefst kl. 13:00 báða dagana.

skráning í síma 550 4670 eða [email protected]

Page 4: Eystrahorn 43. tbl. 2015

4 EystrahornFimmtudagur 10. desember 2015

PIZZA-HLAÐBORÐFimmtudaginn 10. desember frá kl. 18:00

Fjölbreytt úrval af pizzum, franskar, kokteilsósa og salat.

Kr. 1.890,-Kr. 950,- fyrir 6-12 áraFrítt fyrir yngri en 6 ára

Sími 478-2200 Í KVÖLD

Auglýsing til íbúa Hornafjarðar

Í gildi er samþykkt Sveitarfélagsins Hornafjarðar er varðar umgengni og þrifnað utanhúss.

Samþykktin snýr að almennum reglum um hvernig haga beri umhirðu og þrifnaði utanhúss hjá heimilum, fyrirtækjum, opinberum aðilum og á opnum svæðum innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Meginmarkmið samþykktarinnar er að tryggja að íbúar, lóðarhafar og umsjónamenn lóða gangi ekki á rétt annarra íbúa í sveitarfélaginu með athöfnum sínum, og virði skilmála lóðaleigusamnings viðkomandi lóðar.

Sveitarfélagið Hornafjörður hvetur fyrirtæki, heimili, opinbera aðila, lóðarhafa og aðra íbúa til að kynna sér samþykktina og tileinka sér þær almennu reglur sem settar eru fram í henni.

Jafnframt eru sömu aðilar hvattir til að taka til á lóðum sínum og gæta almennrar snyrtimennsku innan lóða sinna, koma hlutum sínum þannig fyrir að þeir séu innan lóðamarka o.s.frv.

SamþykktinamáfinnaávefSveitarfélagsinsHornafjarðar, www.hornafjordur.is

Með sameiginlegu átaki allra íbúa sveitarfélagsins má bæta ásýnd þess svo úr verði eitt snyrtilegasta sveitarfélag landsins.

Kröftugar og jákvæðar undirtektir skila góðum árangri.

Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri

Verkefnastjóri á skólaskrifstofu

Skólaskrifstofa Hornafjarðar auglýsir eftir verkefnastjóra í 50% starf.

Skólaskrifstofansinnirverkefnumsemviðkomastarfileik- grunn- og tónlistarskóla sem og verkefnum á sviði íþrótta- og tómstundamála.

Verkefnastjóri þarf að hafa góða samskiptahæfni og sveigjanleika en einnig að hafa frumkvæði og geta unnið sjálfstætt. Óskað er eftir manneskju með háskólamenntun og starfsreynslu á sviði uppeldis- og kennslumála. Æskilegt að hún geti haft störf sem fyrst.

Verkefnin eru afar fjölbreytt t.d. að:

• Hafayfirsýnogsjáumutanumhaldumsóknaumleikskólapláss í samvinnu við leikskólastjóra.

• Sinnirsamstarfiumframkvæmdvinnuskóla.

• Koma að stefnumörkun og áætlanagerð.

• Aðstoða við skipulagsbreytingar.

• Aðstoða við eftirlit með framkvæmd leik- grunn- og tónlistarskólalaga, æskulýðslaga og viðeigandi reglugerða.

• Önnur verkefni sem fræðslustjóri felur verkefnastjóra.

Laun samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 20. des. 2015 og skulu umsóknir ásamt ferilskrám berast á rafrænu formi á netfangið [email protected]

FrekariupplýsingarumstarfiðveitirRagnhildurJónsdóttir fræðslustjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar í síma 470 -8000 eða í tölvupósti á netfangið [email protected].

Page 5: Eystrahorn 43. tbl. 2015

5Eystrahorn Fimmtudagur 10. desember 2015

Stíll hönnunarkeppni félagsmiðstöðvanna var haldin í Hörpu laugardaginn 28. nóvember og er óhætt að segja að keppnin hafi heppnast ótrúlega vel í alla staði. Í keppninni tóku þátt 40 lið víðsvegar af landinu en þemað í ár var náttúran. Við í Þrykkjunni létum okkur að sjálfsögðu ekki vanta og sendum þangað lið samansett af hæfileikaríkum ungum stúlkum sem í vetur hafa lagt mikið undir til að undirbúa og gera verkefnið sitt sem allra glæsilegast. Það voru þær Arndís Ósk Magnúsdóttir, Irina Gloria Mantea, Sóley Lóa Eymundsdóttir og Svandís Perla Snæbjörnsdóttir sem skipuðu lið Þrykkjunnar og var innblástur þeirra sjávarföllin. Verkefnið þótt með eindæmum glæsilegt og bar af fyrir efnilega framsetningu. Fyrir vikið hlutu stelpurnar sérstök hvatningarverðlaun og er ekki hægt að segja annað en að þær hafi verið vel að verðlaununum komnar. Að lokum var það Salóme Morávek sem söng sig inn í hug og hjörtu áhorfenda en hún var eitt af fjölmörgum skemmtiatriðum sem stigu á stokk í Flóa í Hörpu þann daginn. Salóme flutti lögin Somewhere Over the Rainbow eftir Judy Garland og Imagine eftir John Lennon og gerði það auðvitað með stakri prýði, eins og henni einni er lagið. Vert er að nefna að Salóme kemur til með að flytja framlag Þrykkjunnar í söngvakeppni Samfés í mars næstkomandi og var því flutningurinn í Hörpu skemmtileg æfing og uppákoma fyrir það sem koma skal. Það verður ekki nægilega oft sagt hversu stolt og ánægð við erum með ungmennin okkar hér á Höfn. Það er greinilegt að hér er nóg til að hæfileikaríku ungu fólki og því mikilvægt að við opnum þeim öll heimsins tækifæri. Það er þó oft meira en að segja það að senda unga fólkið okkar þvers og kruss um landið og því stuðningur heimamanna okkur afar mikilvægur. Fyrir hönd Þrykkjunnar og þeirra keppenda sem fram komu í Hörpu langar mig að senda þeim fyrirtækjum sem styrktu okkur sérstakar þakkir. Hótel Höfn, Rósaberg, Sigurður Ólafsson og Skinney Þinganes, það er ykkur að þakka að ungmennin okkar fengu að njóta sín og leyfðu öðrum að njóta hæfileika sinna þennan fallega vetrardag í Hörpu.

Fyrir hönd Þrykkjunnar, Dagbjört Ýr Kiesel, tómstundafulltrúi Hornafjarðar

Umsóknir um styrki Atvinnu- og rannsóknarsjóðs 2016

Atvinnumálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknarsjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Sjóðurinnveitirstyrkitilverkefnasemeflabyggðeða atvinnu í sveitarfélaginu án þess að skekkja samkeppnisstöðu starfandi fyrirtækja á svæðinu. Sjóðnum er ætlað að veita styrki til atvinnuþróunar, nýsköpunar og rannsókna.

Þeir sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu og hafa þar fasta búsetu geta sótt um styrki til sjóðsins. Atvinnumálanefnd Hornafjarðar hefur umsjón með sjóðnum.

Nánari upplýsingar eru veittar í ráðhúsi, Hafnarbraut 27 Höfn eða á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hornafjordur.is/stjornsysla,undirReglurogsamþykktir.

Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2016. Umsóknareyðublöðeraðfinnaáheimasíðusveitarfélagsins, undir Umsóknir.

Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi

Stíll HönnunarkeppniJólagleði knattspyrnudeildarJólagleði yngri flokka verður

miðvikudaginn 16. desember.

Kl. 16:00 yngri hópurinn (6. fl. og 7. fl. karla og kvenna).

Kl. 17:00 eldri hópurinn (5.fl., 4.fl. og 3. fl. karla og kvenna).

Fótbolti, leikir og fleira skemmtilegt. Mætum öll

og tökum foreldrana með.

Þjálfarar og stjórn Knattspyrnudeildar Sindra

Page 6: Eystrahorn 43. tbl. 2015

6 EystrahornFimmtudagur 10. desember 2015

M e i r a p r ó fMeirapróf verður haldið á Hornafirði eftir

áramót og byrjar það fimmtudag 7. janúar nk.Upplýsingar og skráning í 893-3652

eða [email protected]Ökuskóli Austurlands

opnunartími í desember10. - 22. desember ..............kl. 14:00 - 18:00Þorláksmessa........................kl. 14:00 - 20:0029. - 30. desember ..............kl. 14:00 - 18:00

Nú nýverið fluttist til Hornafjarðar skapandi og kröftug ung hjón, Guðrún og Tjörvi, ásamt þremur dætrum sínum. Guðrún tók við starfi atvinnuráðgjafa SASS með aðsetur á Höfn og nú hefur Tjörvi komið sér upp vinnuaðstöðu í Vöruhúsinu. Hann hefur lokið grunnnámi frá Kvikmyndaskóla Íslands, útskrifaðist sem margmiðlunarfræðingur frá Tækniskólanum í Reykjavík og nú nýverið lauk hann framhaldsnámi í þrívíddargrafík og tæknibrellum við ESCAC kvikmyndaskólann á Spáni þar sem fjölskyldan bjó síðastliðið ár. „Okkur langaði að búa á Höfn, heimabæ Guðrúnar, og gefa dætrum okkar tækifæri á að alast upp hér og njóta frelsisins sem því fylgir, og þegar Guðrúnu bauðst spennandi starf hjá SASS var ekki spurning um annað en að kýla á þetta“ segir Tjörvi þegar hann er spurður út í ástæðu þess að fjölskyldan fluttist til Hafnar. „Guðrún plataði mig með sér hingað fyrir um fimm árum síðan, þá vorum við hérna í tæpt ár á meðan við vorum í fæðingarorlofi með Freyju næst elstu dóttur okkar. Henni tókst að sannfæra mig þá, eftir margar tilraunir.“ Tjörvi á ekki langt að sækja rætur en hann er ættaður frá Djúpavogi og var Steingrímur Ingimundarson símstöðvarstjóri þar afi hans og á hann ættingja bæði hér og á Djúpavogi. „Það er gott að hafa hluta af fjölskyldunni nálægt okkur og svo höfum við líka Björk

systur Helgu tengdamömmu og Gróu langömmu stelpnanna nálægt og það er ómetanlegt“.Tjörvi starfaði lengi við kennslu í Tækniskólanum, þar sem hann kenndi umbrot og hönnun, eftirvinnslu fyrir kvikmyndir, forritun og tölvuleikjagerð. „Mig hafði lengi langað að fara í frekara nám í þrívíddargrafík og tæknibrellum fyrir kvikmyndir, því sagði ég starfi mínu lausu fyrir ári síðan og við skelltum okkur út. Það var langþráður draumur hjá mér að fara í meira nám og Guðrúnu hafði alltaf langað að prófa að búa á Spáni, svo þarna slógum við tvær flugur í einu höggi“.

Tjörvi hefur verið viðloðandi raftónlist og hljóðupptökur síðan á unglingsárum og hefur hann spilað lengi undir listamannsnafninu Subminimal. Hann hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum hér á landi meðal annars nokkrum sinnum á Iceland Airwaves við góðan orðstír og einnig hefur hann komið fram erlendis. „Við fórum nokkrir til Madrídar í september í fyrra og komum fram á Días Nórdicos festival, þar kemur fram tónlistarfólk frá Norðurlöndunum, þetta var rosalega skemmtileg reynsla og tilbreyting að spila tónlistina sína fyrir Madrídar búa, en hér heima þá er maður oft að spila fyrir sama fólkið í hvert skipti sem maður kemur fram“. Tjörvi hefur gefið út tónlistina sína í Bretlandi, Þýskalandi og hér heima.Eins og áður sagði hefur Tjörvi komið sér upp vinnuaðstöðu í Vöruhúsinu og tekur hann að sér ýmis verkefni á sviði margmiðlunar t.d. heimasíðugerð, hönnun og umbrot, myndvinnslu, videóvinnslu og þrívíddargrafík. „Ég finn fyrir miklum krafti hér á svæðinu og spennandi tímar framundan. Ég hef mikinn áhuga á að framleiða kynningarefni fyrir ferðamennskuna og svo er hægt að gera spennandi hluti með þrívíddína“. Hægt er að ná í Tjörva í síma 848-3933 eða með því að senda tölvupóst á [email protected]

Ekki spurning um að kýla á þetta

Hornafjarðarmeistaramótiðverður í Nýheimum sunnudaginn

3. janúar nk. kl. 16:00

(Athugið breytta dagsetningu. Mótið hefur venjulega verið milli hátíða)

Útbreiðslustjóri

litla Sveitabúðin Opin næsta laugardag kl. 12:00 – 17:00.•Hólabrekkabýðuruppágrænmeti,konfekt,gjafakörfuro.fl.•Miðskersbúiðverðurmeðjólasteikur,tvíreykthangikjöto.fl.

Til sölu m.a. frá:•Dilksnesisulturo.fl.,•Arfleifðtískufatnaður,skór,handunnarprjónavörurog

íslensk hönnunarvara.

Súpa,kaffiogvöffluraðvandaáboðstólnum. Hlökkum til að sjá ykkur, Anna og Anna

Page 7: Eystrahorn 43. tbl. 2015

7Eystrahorn Fimmtudagur 10. desember 2015

Það er alltaf jafn ánægjulegt að frétta af ungu fólki sem er að spreyta sig á ýmsum sviðum. Jón Guðni Sigurðsson (sonur Sigga Guðna og Rósu) var að gefa út geisladisk. „Já, þetta er að sjálfsögðu frumraun mín og diskinn nefni ég Walking Down the Road. Á diskinum eru 10 frumsamin lög með textum eftir mig sem allir eru samdir á þessu ári. Við pabbi sáum um allan hljóðfæraleik á diskinum og einnig sá ég um alla vinnslu. Diskurinn er tekinn upp og unninn að öllu leyti á Höfn.“ sagði Jón Guðni. Myndbandavinnslan gefur diskinn út og verður hann til sölu í Nettó á Höfn og einnig hægt að panta hann hjá Jóni Guðna í gegnum netfangið [email protected].

Geisladiskur Jóns Guðna

Hársnyrtistofan

Austurbraut 15 - Sími 478-2110Stór sending af

módeiskartgripum frá gullsmiðju Helgu GULLKÚNST

var að koma.Fallegar gjafavörur úr

kærleikslínunni.Nýr dömu og herra ilmur

frá Calvin Klein.OPIÐ laugardaginn

12. desember kl.13:00 - 16:00.

Verið velkomin

Nú styttist í jólin!

TAX FREEFimmtudaginn 10. desember

Föstudaginn 11. desember Laugardaginn 12. desember

Af ÖLLU í versluninniFull búð af barna-, dömu- og

herra fatnaði og skóm.

Verslum í heimabyggð

Verið velkomin

Verslun Dóru

Page 8: Eystrahorn 43. tbl. 2015

WWW.NETTO.IS | TILBOÐIN GILDA 10. – 16. DES 2015MJÓDD · SALAVEGUR · BÚÐAKÓR · GRANDI · AKUREYRI · HÖFN · GRINDAVÍK · REYKJANESBÆR · BORGARNES · EGILSSTAÐIR · SELFOSS

ÞÚ GETUR NÁLGAST BÆKLINGINN Í HEILD SINNI Á NETTO.IS | BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR OG MYNDAVÍXL | VÖRUÚRVAL GETUR VERIÐ BREYTILEGT MILLI VERSLANA

Jólabæklingurinn er kominn út!Tilboð á jólabókum

IVerð: 3.119 kr

Verð: 4.354 kr

Verð: 3.215 kr

Verð: 4.689 krVerð: 3.349 kr

Verð: 3.215 kr

Verð: 3.704 kr

Verð: 4.689 kr

Verð: 4.689 kr

Verð: 4.689 kr

frábær jóla- eða möndlugjöfI

Verð: 2.798 kr

11.049 kraðeins

4.549 kraðeins

Verð: 2.798 kr Verð: 2.798 kr

Verð: 3.398 kr Verð: 2.998 kr

Verð: 2.998 kr

Verð: 2.999 kr

Verð: 4.998 kr Verð: 2.498 kr

Verð: 4.998 kr Verð: 2.498 kr Verð: 2.498 kr Verð: 2.798 kr

Verð: 2.298 kr

Verð: 2.498 kr

Verð: 2.498 kr

Verð: 2.498 kr

78 | Nettó í jólaskapi

www.netto.is | 79

www.netto.is | 17

ALVÖRU MATURÁ ÖRFÁUM MÍNÚTUM

KJÚKLINGABRINGUR

BARBECUEKJÚKLINGABRINGUR

FAJITASKJÚKLINGABRINGUR

ARGENTÍNU

Spennandi erlent kjöt

ANDABRINGUR - FRANSKAR2.998 KR/KG

ANDALEGGUR/LÆRI1.798 KR/KG

ARGAL PAVO KALKÚNN DELI3.391 KR/KG

DANISH CROWN HÁGÆÐA NAUTALUNDIR3.997 KR/KG DÁDÝRAVÖÐVAR - NÝJA SJÁLAND

3.598 KR/KG

GÆS - HEIL6.998 KR/STK

GÆSABRINGUR3.498 KR/KG

KALKÚNABRINGUR - ERLENDAR2.098 KR/KG

KALKÚNN - HEILL998 KR/KG

KENGÚRU FILLE3.598 KR/KG

NAUTALUNDIR - NÝJA SJÁLAND 2.999 KR/KG

www.netto.is | 17

8 | Nettó í jólaskapi

www.netto.is | 9

FRAMÚRSKARANDI UM JÓLIN

LÉTTREYKTUR LAMBAHRYGGURBLÁBERJA LAMBALÆRI

KEA HAMBORGARHRYGGUR

KEA HANGIKJÖT

EL TORO NAUTAVÖÐVI

ÍSLENSK HRÁSKINKA

Síðastliðin ár hefur Norðlenska skarað fram úr í bragðkönnunum.

Ár eftir ár hafa neytendur sett traust sitt á Norðlenska þegar

kemur að jólamatnum. Fyrir það erum við þakklát og ætlum að

halda áfram að uppfylla kröfur um indæla jólasteik.

2.498 kr/kg

Hangilæri úrbeinað

4.173 kr/kg

1.798 kr/kg

Londonlamb

2.498 kr/kg

LONDONLAMB

KEA Hangilæri á beini

2.698 kr/kgKEA

Hangiframpartur sagaður

1.498 kr/kg

KEAHangiframpartur úrbeinaður

3.498 kr/kg

UPPSKRIFTIR

AFÞREYING

JÓLAGJAFIR

GOTTERÍ

KJÖT

MEÐLÆTI

BAKSTUR

www.netto.is

| Mjódd · Salavegur · Búðakór· Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss | tilboðin gilda 10.-16. desember 2015

Gjafakort Nettó fæst í verslunum

Nettó um land allt.

Kortið er einfalt og þægilegt í notkun.

Starfsfólk verslana okkar veitir allar nánari

upplýsingar um gjafakortið og aðstoðar þig

með glöðu geði.

Gleðil

eg jól

Gleðileg jól

Gjafakort er gjöf sem gleður....

mar

khon

nunv

ehf

RUGGUHESTUR - 71 CM9.998 KR/PK

DINSEY FROZEN PÚSL598 KR/PK

MY FIRST DISNEY DOLL 3 TEGUNDIR7.998 KR/PK

HOT WHEELS CITY BÍLABRAUT STÓR12.989 KR/PK

BOXPÚÐI UPPBLÁSINN CAGE FIGHTER14.989 KR/PK

TECHNO GEARS MARBLE MANIA9.898 KR/PK

PLAYMO BARNAHERBERGI M. VÖGGU2.998 KR/PK

CAT JARÐÝTA M. HREYFINGU6.998 KR/PK

ST NÁTTLJÓS FROZEN5.989 KR/PK

AVENGERS 36” BOP BAG BOXPÚÐI1.998 KR/PK

DISNEY PRINCESS BALLERINA DOLL3.998 KR/PK

VEGGSKRAUT, MINIONS/FROZEN/AVENGERS/TURTLES/MICKEY OG FL.6.998 KR/PK

PLAYMO ELDHÚS3.998 KR/PK

PLAYMO SJÓRÆNINGJASKIP STÓRT11.998 KR/PK

B KIDS 10 IN ONE MUSIC COMBO9.989 KR/PK

DISNEY FROZEN SINGALONG ELSA DOLL9.998 KR/PK

PLAYMO KRAKKAHERBERGI2.998 KR/PK

PLAYMO SUMARHÚS4.998 KR/PK

CARS 2 PIZZLES998 KR/PK

HELLO KITTY SCHOOL BUS PLAYSET6.989 KR/PKPLAYMO SJÓRÆNINGI1.998 KR/PK

PLAYMO DELUXE PLAYMOHÚS17.989 KR/PK

DELUXE DIE CAST MICROSCOPE SET9.989 KR/PK

TONKA CLASSICS VÖRUBÍLL9.898 KR/PK

PÚSL 56 BITA MINIONS PÚSL 3D879 KR/PK PÚSL 100 MINIONS PÚSL 3D1.098 KR/PK

SPIL MINIONS HIT THEM OUT4.498 KR/PK

PÚSL 200 BITA MINIONS PÚSL 3D1.198 KR/PK

PLAYMO EINKAÞOTA5.989 KR/PK PLAYMO LÖGREGLUBÍLL M. BÁT6.989 KR/PK

TALSTÖÐVAR3.998 KR/PKDUPLO TRAKTOR M. VAGNI3.849 KR/PK

LEGO CITY MOTORKROSS3.998 KR/PK

JólaleikfönginPiparkökur í Nettó

ÓDÝRT JÓLAPIPARKÖKUR 375g 199 kr/pk

ANNAS PIPARKÖKUR ORIGINAL 375g 498 kr/pk

MARY´S GONE CRACKERS PIPARKÖKUR Verð áður 699 kr/pk489 kr/pk

GLÚTENFRÍTT

VEGAN35%

afsláttur

Konfekt

MOZARTKÚLUR Í BOXI - 300 G

598 KR/PK

TRUFFLUR - 200 GCLASSIC, HESLIHNETU & KAFFI

498 KR/PK

ONLY JÓLAKÚLUR - 400 G

498 KR/PK

ONLY KONFEKT DÓS - 200 G

698 KR/PKONLY JÓLASVEINA-SÚKKULAÐI POKI - 100 G

299 KR/PKWOOGIE JÓLABAUKUR M. SÆLGÆTI - 110 G

349 KR/STK

LINDOR MJÓLKURSÚKKULAÐI - 200 GVERÐ ÁÐUR 899 KR/PK

799 KR/PK (RAUÐI)

LINDT BEAR MILK - 10 G

98 KR/STK

Gleðileg humarjól Humarsúpa að hætti

meistarans

Hráefni

500 g humar í skel

3 stk fiskiteningar

3 stk meðalstórar gulrætur

2 stk hvítlauksrif

2 l vatn

1 stk laukur

1 stk paprika, græn

1 l rjómi (má líka nota

matreiðslurjóma)

ljós sósuþykkir

smjör til að steikja skeljarnar

Skelflettið og hreinsið humarinn,

Brúnið skelina í potti ásamt

hvítlauknum við vægan hita, Bætið

vatni, gróft skornum lauk, papriku

og gulrótum út í og látið krauma í

10 tíma.

Sigtið soðið og bætið fiskikrafti

út í. Þykkið soðið með ljósum

sósuþykki eftir smekk og bætið svo

rjómanum saman við. 15 mín áður

en súpan er borin fram er humarinn

settur út í. Passið að súpan sjóði

ekki eftir það, humarinn á bara að

hitna í gegn. Berið þessa ljúffengu

súpu fram með hvítlauksbrauði

sem fengið hefur að hitna í ofni á

meðan humarinn verður til. Hægt

er að útbúa soðið með nokkrum

fyrirvara og geyma í frysti.

V.I.P. HUMAR 800g

6.570 kr/pk

HUMAR2 kg

8.998 kr/pk

Smábrauð Gróf 12s 720g

398 kr/pk

Rúnstykki Gróf m/Durum

6s 450g

398 kr/pk

SKELBROT BLANDAÐ1 kg

3.898 kr/pk

HVÍTLAUKSBRAUÐ GRÓFT

Gróft og fínt - 2 stk

298 kr/pk

HUMAR ÁN SKELJAR1 kg

3.998 kr/pk

Við hjá Nettó erum stolt að geta boðið upp á þennan

hágæða Hornafjarðarhumar sem framleiddur

er í humarbænum Höfn í Hornafirði.

NÝTTKORTATÍMABIL HEFST

10. DES