Alþjóðleg viðmið og þverfaglegt samstarf við greiningu sértækra lestrarörðugleika. Jónas...
-
date post
22-Dec-2015 -
Category
Documents
-
view
223 -
download
0
Transcript of Alþjóðleg viðmið og þverfaglegt samstarf við greiningu sértækra lestrarörðugleika. Jónas...
Alþjóðleg viðmið og þverfaglegt samstarf við
greiningu sértækra lestrarörðugleika
.
Jónas G. Halldórsson sálfræðingur
Orsakir námserfiðleika
• Almennt skert starf heilans (þroskahömlun)
• Afmarkaðir veikleikar í taugasálfræðilegu þroskamynstri (sértækir námserfiðleikar)
• Hreyfihömlun
• Sjón- og heyrnarskerðing
• Tilfinningaleg líðan, áhugi, vilji
• Tengt ólíkri menningu og málumhverfi
• Ónóg kennsla, örvun og umönnun
Sértækir námserfiðleikar
• Geta verið í grunngreinum námsins, lestri, skrift, stafsetningu eða stærðfræði
• Orsök yfirleitt meðfæddir veikleikar í taugasálfræðilegu þroskamynstri, tengdir erfðum, eðlilegir en óheppilegir
• Greind yfirleitt í meðallagi eða þar yfir• Aldur, þroski og æfing vinnur með, en
vandinn hverfur yfirleitt ekki alveg
Alþjóðlega viðurkennd flokkunarkerfi og skilgreiningar
• DSM-IV Diagnostic and Statistical Manual of Mental Disorders. American Psychiatric Association, 1994.
• ICD-10 International Statistical Classification of Diseases and Related Health Problems. World Health Organization, 1992.
Íslensk þýðing ICD-10 1996
• Specific developmental disorders of scholastic skills = Sértækir námserfiðleikar = Sértækar þroskaraskanir á námshæfni
• Specific reading disorder = Sértækir lestrarörðugleikar = Sértæk lesröskun
ICD10 F80-F89RASKANIR Á SÁLARÞROSKA
• Sértækar tal- og málþroskaraskanir
• Sértækar þroskaraskanir á námshæfni
• Sértæk þroskaröskun á hreyfisamhæfingu
• Blandnar sértækar þroskaraskanir
• Aðrar raskanir á sálarþroska
• Ótilgreind röskun á sálarþroska
ICD10 F81.0-F81.9Sértækar þroskaraskanir á námshæfni
• Sértæk lesröskun
• Sértæk stöfunarröskun
• Sértæk röskun á reiknihæfni
• Blandin röskun á námshæfni
• Aðrar þroskaraskanir á námshæfni
• Þroskaröskun á námshæfni ótilgreind
Algengi og kynjamunur
• Sértæk þroskaröskun á námshæfni algengasta tegund námsörðugleika
• Sértæk lesröskun algengust sértækra þroskaraskana á námshæfni
• Meira en 10% nemenda á Íslandi eigi við sértæka lesröskun að stríða
• Algengari meðal pilta en stúlkna (?)
MISMUNAGREINING (a): Sértækar þroskaraskanir á námshæfni útiloka:
• Námserfiðleika af völdum tornæmis og þroskahömlunar
• Námserfiðleika vegna hreyfihömlunar• Námserfiðleika vegna skertrar sjónar eða
heyrnar• Námserfiðleika vegna áunnins heilaskaða
eftir slys eða sjúkdóm (t.d. lesstol)
MISMUNAGREINING (b): Sértækar þroskaraskanir á námshæfni útiloka:
• Námserfiðleika sem stafa af atferlis- og geðbrigðaröskunum
• Slaka námsstöðu vegna ófullnægjandi kennslu, örvunar eða umönnunar
• Námserfiðleika vegna ólíks mál- og menningarumhverfis
Mismunagreining
• Mismunagreining er nauðsynlegur hluti af greiningarferlinu
• Námserfiðleikar af mismunandi toga hafa mismunandi greiningarnúmer innan ICD-10. Með mismunagreiningu er ekki verið að útiloka nemendur frá þjónustu, heldur er verið að benda á mismunandi orsakir, þarfir og horfur
Fylgikvillar (a)
• Einkenni ofvirkni og athyglibrests
• Hegðunarröskun og aðlögunarvandi
• Kvíði og depurð
• Frávik í hreyfiþáttum
• Frávik í málþroska
Fylgikvillar (b)
• Athugun, þar sem kannað er hvort fylgikvillar eru til staðar, er mikilvæg við greiningu á sértækum þroskaröskunum á námshæfni, með hliðsjón af íhlutun
ICD-10 Sértæk lesröskun (a)
• Sértæk og afgerandi hömlun við að ná tökum á lestrarfærni, sem ekki skýrist eingöngu út frá greindaraldri, skertri sjón eða ófullnægjandi kennslu
• Vandinn getur komið fram í lesskilningi, við að þekkja eða átta sig á orðum, við upplestur, við að vinna verkefni sem krefjast lesturs
ICD-10 Sértæk lesröskun (b)
• Stafsetningarerfiðleikar fylgja oft sértækri lesröskun fram á unglingsár, jafnvel þótt framfarir hafi orðið nokkrar í lestri
• Oft er saga um frávik í málþroska á foskólaaldri
• Vandi tengdur líðan og hegðun er oft til staðar á skólaárum
ICD10 greiningarviðmið
• Niðurstaða staðlaðs og rannsakaðs kunnáttuprófs er marktækt lægri en niðurstaða staðlaðs og rannsakaðs greindarprófs
• Merki eru um taugasálfræðilega veikleika í þroskamynstri
• Ekki eru augljósar aðrar ástæður námserfiðleika en líffræðilegar
Próftæki við ICD-10 greiningu
• Staðlað og rannsakað greindarpróf
• Stöðluð og rannsökuð kunnáttupróf sem taka mið af ICD-10 greiningarviðmiðum
• Taugasálfræðileg prófasöfn og próf sem meta hreyfiþroska og málþroska
• Matslistar til að meta atferli, aðlögun og líðan
Af hverju alþjóðlega viðurkenndar skilgreiningar? (a)
• Sameiginlegt álit helstu sérfræðinga, byggt á niðurstöðum vönduðustu rannsókna, endurskoðað reglulega
• Forsenda samanburðar rannsókna milli þjóða og innan þeirra. Sérstök rannsóknaviðmið fylgja ICD-10.
• Fara ekki út fyrir stöðu þekkingar
Af hverju alþjóðlega viðurkenndar skilgreiningar? (b)
• Segja fyrir um íhlutun og rétt til þjónustu bæði hér á landi og erlendis
• Leggja áherslu á mismunagreiningu og að finna fylgikvilla
• Engin skilgreining er fullkomin, en með íslensku rannsóknastarfi getum við haft áhrif á þróun alþjóðlegra viðmiða
Af hverju þverfagleg nálgun?
• Þörf fyrir mismunandi sérfræðiþekkingu og reynslu við greiningu
• Þörf fyrir mismunagreiningu og athuga hvort fylgikvillar eru til staðar
• Ýmis greiningartæki eru notuð
• Þörf fyrir fjölbreytta og sérhæfða íhlutun
• Til hagsbóta fyrir nemendur og foreldra
Horfur nemenda með sértækar þroskaraskanir á námshæfni
• Betri horfur tengdar vægari og færri taugasálfræðilegum veikleikum, hærri greindarvísitölu og betri aðstæðum heima fyrir
• Betri horfur tengdar því að fá greiningu fyrr og viðeigandi íhlutun
• Aukin áhættuhegðun hjá þeim sem detta út úr skóla
Sértæk lesröskun
er vangreind hér á landi
Vandi (a)
• Skortur á samræmdum, faglegum, stöðluðum vinnubrögðum og skilgreindum vinnuferlum við skimun, greiningu og meðferð nemenda
• Skortur á þekkingu og sérhæfingu
• Ekki samstaða um skilgreiningar
• Ekki samstaða um taugafræðilega og taugasálfræðilega nálgun
Vandi (b)
• Ekki samstaða um þverfaglegt samstarf
• Ekki nægur skilningur á gildi vel staðlaðra og rannsakaðra skimunar-, mats- og próftækja
• Borið hefur á hugmyndafræði sem er andsnúin greiningu og meðferð
• Varnarstaða og togstreita milli fagstétta
Úrlausn (a)
• Alþjóðlega viðurkenndar skilgreiningar, taugasálfræðileg nálgun og þverfaglegt samstarf
• Stöðluð og sérhæfð vinnubrögð í skimun, greiningu og íhlutun, og hlutverk og ábyrgð hvers og eins skilgreind
• Endurskoðun þjónustuúrræða, þ.m.t. ráðgjafar- og sálfræðiþjónusta skóla
Úrlausn (b)
• Áhersla á stöðlun og rannsóknir á próf- og matstækjum
• Þjónusta í stöðugri þróun, sem byggð er á niðurstöðum vandaðra íslenskra og erlendra rannsókna
• Samstarf innlendra og erlendra sérfræðinga og stofnana um þróun, fræðslu og rannsóknir