08 07 2016 amk

20
t DAGSFERÐIR MEÐ FJÖLSKYLDUNNI – FÓTBOLTAGOLF, VÖLUNDARHÚS OG DÝRAGARÐAR UPPSKRIFT AÐ „PULLED PORK“ FRÁ LÆKNINUM Í ELDHÚSINU EIGNAÐIST DRAUMASVEFNHERBERGIÐ MEÐ HJÁLP FJÖLSKYLDUNNAR TÖLVULEIKJAFÍKN UNGMENNA ER VAXANDI VANDAMÁL 8 FÖSTUDAGUR 08.07.16 LOSNAÐI VIÐ SJÁLFSHATRIÐ Í SAMTÖKUM MATARFÍKLA ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR Mynd | Hari BJÚTÍSNAPPARI OPNAR SNYRTITÖSKUNA

description

Lifestyle, AMK, Fréttatíminn, Iceland

Transcript of 08 07 2016 amk

Page 1: 08 07 2016 amk

t

DAGSFERÐIR MEÐ FJÖLSKYLDUNNI

– FÓTBOLTAGOLF, VÖLUNDARHÚS

OG DÝRAGARÐAR

UPPSKRIFT AÐ „PULLED PORK“ FRÁ

LÆKNINUM Í ELDHÚSINU

EIGNAÐIST DRAUMASVEFNHERBERGIÐ

MEÐ HJÁLP FJÖLSKYLDUNNAR

TÖLVULEIKJAFÍKN UNGMENNA ER

VAXANDI VANDAMÁL

8

FÖSTUDAGUR 08.07.16

LOSNAÐI VIÐ SJÁLFSHATRIÐ Í SAMTÖKUM MATARFÍKLAELÍSABET

ÓLAFSDÓTTIRMynd | Hari

BJÚTÍSNAPPARI OPNAR SNYRTITÖSKUNA

Page 2: 08 07 2016 amk

Þetta herbergi er bara búið að vera gamall draumur alveg síðan ég var lítil, ætli ég hafi ekki séð sambærileg svefn­

herbergi í bíómyndum til að byrja með. Mér hafa alltaf þótt alls konar himnasængur rosalega heillandi,“ segir Ellen Ýr Gunnlaugsdóttir, snyrtifræðingur á Dalvík, kímin, en Ellen Ýr, ásamt fjölskyldu sinni, fann virkilega skemmtilega lausn til þess að útbúa svefnherbergi drauma sinna.

„Ég vissi alveg hvað ég vildi og var dugleg að skoða hugmyndir á síð­um eins og Pinterest. Ég fann hins vegar ekki mikið nema ljósmyndir af rúmum sem umkringd voru hvítum gardínum, það var eitthvað minna um hvernig þetta væri gert,“ segir Ellen Ýr. Hún ráðfærði sig þá við for­eldra sína, þau Guðbjörgu Stefáns­dóttur og Gunnlaug Antonsson, sem hún segir vera algjöra snillinga og afskaplega handlagna, um hvern­ig best væri að bera sig að í að láta drauminn rætast.

„Ég sýndi þeim myndir og þeim datt í hug að setja bara upp gard­ínustangir fyrir ofan rúmið. Þannig að það var rokið í Ikea við fyrsta tækifæri sem gafst, við búum nefni­lega öll fyrir norðan,“ segir Ellen Ýr og hlær.

Ellen Ýr hikar lítillega þegar hún er innt eftir því hvort mikið vesen hafi verið að festa stangirnar upp í loft. „Svona aðeins,“ segir hún og hlær við. „Ekkert svakalegt þó, ekki þegar maður á svona pabba eins og minn. Unnusta mínum, Jóhanni Má Kristinssyni, leist samt ekkert á blikuna í fyrstu en leyfði mér þó að halda áfram með þessa hug­mynd. Þegar allt var komið á sinn stað viðurkenndi hann þó að þetta

hefði lukkast betur en hann þorði að vona.“ Um sannkallað fjölskyldu­verkefni var að ræða en amma Ellen­ar saumaði svo gardínurnar sem umkringja rúmið. „Ég vildi frekar velja efni heldur en að kaupa tilbún­ar gardínur, af því ég hafði svolítið ákveðnar hugmyndir um hvernig efnið ætti að vera. Það voru bara keyptir margir metrar og svo sat amma og saumaði.“

Ellen Ýr setti ljósmynd af her­berginu inn á Facebookhóp­inn vinsæla Skreytum Hús, þar sem eru yfir 23.000 meðlimir og fékk mikil viðbrögð. „Ég fékk bæði pósta frá fólki og helling af athugasemdum við myndina sem ég setti inn. Fólk var rosa­lega forvitið um hvernig ég hefði gert þetta og svo litinn á svefnher­berginu.“

Amma Ellenar saumaði gardínurnar.

Lét gamlan draum rætastÖll fjölskyldan tók þátt í að gera draumasvefnherbergi Ellenar Ýrar að veruleika.

Herbergið er sannkallaður draumur.

Hérna sjást gardínustangirnar sem Ellen og fjölskylda festu í loftið.

Draumar hennar voru brostnirGwen Stefani á í sjóðheitu ástarsambandi við Blake

Shelton þessa dagana. Eftir að hún skildi við eigin-mann sinn til 20 ára, Gavin Rossdale, átti hún samt mjög erfiðan tíma. Gwen segir frá þessu í viðtali við Harpes s Bazaar: „Draumar mínir voru brostnir. Það eina sem ég vildi, allt mitt líf, var að eignast börn og

vera gift, eins og foreldrar mínir.“ Hún segir líka að það hafi verið erfiðast að þurfa að deila forræðinu með

Gavin og sjá börnin sín sjaldnar. Við tók sorgartímabil en Gwen segist hafa komið út sterkari en fyrr eftir þetta allt saman.

Á gangi án trúlofunarhringsinsHayden Panettiere sagði frá því í maí að hún hygð-ist leita sér aðstoðar vegna fæðingarþunglyndis. Til hennar hefur ekki sést síðan, fyrr en á mánu-daginn. Þá var leikkonan á gangi í New York, með bók í hendi, að reykja sígarettu. Það sem vakti áhuga slúðurblaðanna var þó að hún er ekki lengur með trúlofunarhring sinn, en hún er trúlofuð Wlad-imir Klitschko. Þau byrjuðu fyrst saman árið 2009 en hættu saman árið 2011. Þau tóku síðan aftur upp þráðinn tveimur árum seinna, eða í byrjun árs 2013.

Fyrrum eiginkona Michael Jackson með brjóstakrabbameinSamkvæmt slúðurmiðlinum TMZ er fyrrum eiginkona Michael Jackson, Debbie, með brjóstakrabbamein. Hún er móðir Paris Jackson og mun gangast undir aðgerð í næstu viku.

Eftir að Michael lést urðu Paris og Debbie mjög nán-ar, en það var síðan fyrir ári sem Paris gekk í gegn-um erfiðan tíma sem endaði með því að þær mæðgur hættu að tala saman. Debbie mun því ekki eiga von á því að hafa dóttur sína sér við hlið á meðan hún tekst á við krabbameinið. Heimildarmaður sagði samt að eftir að Paris hefði komist að því að mamma hennar væri veik hefði hún sent henni smáskilaboðin „I Love You“.

Emily Blunt eignast aðra dóttur Breska leikkonan Emily Blunt er orðin tveggja barna móðir. Hún eignaðist dóttur í júní en eiginmaður hennar, John Krasinski, tilkynnti fæðingu dóttur þeirra á Twitter á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, 4. júlí.

Emily og John giftu sig árið 2010 og eiga fyrir 2 ára gamla dóttur sem heitir Hazel Grace Krasinski. Emily sagði frá því opinberlega hversu ólíkar meðgöngurn-ar tvær voru. Á fyrri meðgöngunni segist hún hafa verið mjög góð við sjálfa sig, hvíldi sig þegar hún vildi og fór í jóga og gerði allskonar fyrir sjálfa sig. Hinsvegar hafi hún á seinni meðgöngunni haft nóg að gera við að eltast við barnið sem hún á fyrir.

…fólk 2 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016

Ég vildi frekar velja efni

heldur en að kaupa tilbúnar gardínur, af því ég hafði svolítið ákveðnar hugmyndir um hvernig efnið ætti að vera. Það voru bara keyptir margir metrar og svo sat amma og saumaði.

Djúphreinsaður örbylgjuofnNotaðu eina teskeið af matarsóda og glerskál, hálffulla af vatni. Hrærðu matarsódanum út í vatnið og settu út í hálfa sneið af sítrónu. Settu skálina í örbylgjuofninn og settu ofninn af stað í nokkrar mín­útur. Gufan mun leysa óhreinindin upp og sítrónan og matarsódinn munu gera ofninn ilmandi fersk­an. Þegar tíminn er liðinn geturðu þurrkað ofninn að innan með rakri tusku.

Föst fita losuð með olíuEr feitt fitulag á hellunum, pott­unum eða pönnunum? Þú getur losað það upp með enn meiri olíu! Hljómar fáránlega en það er ekk­ert sem nær olíu jafn vel af eins og olía. Notaðu ólívuolíu og skrúbb eða svamp og nú nærð olíunni af um leið.

Vaxlitir á veggjumVar barnið þitt að krota á veggina? Það er ekkert mál að ná því af með matarsóda og vatni. Bleyttu svamp

og settu hann í smá matarsóda og nuddaðu af.

Dagblöð á gluggana Það er snilld að nota dagblöð til að þrífa rúður og spegla. Þú færð frá­bæran glans á glerið með dagblöð­um einum saman.

Bónaðu blöndunartækinBlöndunartækin verða oft mjög fljótt öll í blettum og kámi. Til þess að fyrirbyggja það er sniðugt að nota bílabón á þau. Þá hrindir það

vatninu frá og þau hald­ast glans­andi hrein lengur.

Hvíti þvotturinn hvítariEf þig langar að hressa upp á hvíta þvottinn þinn þá virkar það að setja hálfan bolla af sítrónu­djús í þvottavélina með þvottinum.

Ávaxta- svampurSítrusávexti eins og sítrónur,

límónur (lime) og appelsínur

er hægt að nota sem svamp á baðkör

og vaska. Skerðu bara ávöxtinn í tvennt og settu

smá matarsóda, uppþvottalög og vatn í skál og dýfðu ávextinum í og skrúbbaðu.

Á að þrífa um helgina?Hér eru nokkur einföld ráð sem virka!

Page 3: 08 07 2016 amk
Page 4: 08 07 2016 amk

SUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖT

SUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖT

SUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖT

SUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖT

SUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖT

SUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖT

SUNDFÖTSUNDFÖTSUNDFÖT

Bláu húsin Faxafeni | S. 555 7355 | www.selena.is Selena undirfataverslunBláu húsin Faxafeni | S. 555 7355 | www.selena.is Selena undirfataverslun

Sólrún Lilja Ragnarsdó[email protected]

Ég er búin að vera í átta ár í 12 spora samtökum fyrir matarfíkla. Það er lausnin sem ég fann,“ segir Elísabet Ólafs-

dóttir, sem margir kannast við sem Betu rokk. Beta missti fyrst 40 kíló á fjórum árum og svo 20 á tveimur árum, en hún hafði þá bætt aftur á sig þegar hún gekk með yngri son sinn árið 2014. Hún er ekki ennþá komin í sína kjör-þyngd, en veit að hún mun verða komin þangað á næsta ári. Hún borðar hvorki sykur né sterkju og vigtar allt sem hún lætur ofan í sig. „Þetta virkar fyrir mig því beikon er leyfilegt,“ segir hún og skellir upp úr. „Ég á alltaf beikon í ísskápnum. Í dag er ég á leiðinni að verða mjó og get borðað pakka af beikoni í kvöldmat,“ bætir hún kímin við.

Varð fyndna feita stelpanÞegar Beta fór inn í samtök matar-fíkla var hún bæði hætt að drekka og reykja og hafði um tíma ver-ið að reyna að taka til í lífi sínu. Hana langaði að léttast, ekki síður af heilsufarsástæðum en útlits-legum ástæðum. „Ég var búin að búa til allskonar prógrömm fyrir mig til að telja kalóríur og reyna að borða minna en ég brenndi. Ég var raun búin að vera í megrun frá því ég var ellefu ára,“ segir Beta en þá sendi fimleikaþjálfar-inn hennar blað með henni heim með upplýsingum um hvað hún mátti ekki borða ásamt fyrirmæl-

um um að hún ætti að léttast um 5 til 7 kíló. „Það var þá sem þetta byrjaði; að vera endalaust í megr-un, endalaust samviskubit og sjálfshatur,“ útskýrir hún.

„En svo varð ég fyndna feita stelpan og var aldrei á neinum bömmer yfir því. Ég var í kringum 80 kíló, var í hljómsveit og fékk alla þá athygli sem ég vildi. Ég fékk alltaf að fara í sleik þegar ég vildi það. Þannig að þyngdin var ekkert að trufla mig sérstaklega mikið.“ En það átti eftir að breytast. Árið 2004 kynntist hún manni í gegnum internetið og urðu þau fljótt mjög ástfangin.

„Við vorum saman í gegnum netið í þrjá mánuði en þegar við hittumst loksins fékk hann flog yfir því hvað ég var feit. Honum fannst ég bara ekki sexí, langaði ekki í mig og fannst þetta ekki ganga – af því ég var of feit.“

Drakk til að finnast hún sætÞetta var töluvert áfall fyrir Betu, sem vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið, enda höfðu ástarjátn-ingarnar flogið þeirra á milli vikum saman. „Ég var 27 ára og var „dömpað“ fyrir að vera feit. Það var þá sem þetta fór fyrst að hafa veruleg áhrif á mig. Og þá fór ég að þyngjast. Ég var auð-vitað alltaf þunga stelpan en gat samt ekki borðað meira en tvær beikonsneiðar án þess að líða illa yfir því. Ég man eftir því að hafa reynt að drekka þangað til ég var nógu sæt til að fara út. Einu sinni drapst ég meira að segja áfengis-dauða heima hjá mér því ég náði ekki að verða nógu sæt til að kom-ast út. Það er ógeðslega glatað.“

Fór að þyngjast eftir að hafa verið „dömpað“ fyrir að vera feitElísabet Ólafsdóttir missti fyrst 40 kg á 4 árum og svo 20 kg á 2 árum. Hún áttaði sig á því að hún væri matarfíkill eftir hafa upplifað tímabil þar sem hún fór ein á KFC og grét yfir því að geta ekki hætt að borða.

Beta þyngdist jafnt og þétt á næstu árin. Sérstaklega við tíma-mót eins og að skipta um vinnu, þá hlóðust kílóin upp. Og einn daginn var hún orðin 104 kíló, 166 senti-metrar á hæð. „Fólk þekkti mig ekki niðri í bæ,“ segir Beta sem þá var meira að segja búin að vera án áfengis í heilt ár, án þess að létt-ast. Alltaf að passa sig, endalaust á hnefanum og reyndi við hina ýmsu líkamsrækt þrátt fyrir að finnast það drepleiðinlegt, en ekkert skil-aði árangri. Og heilsan var eftir því.

Borðaði KFC og grét„Ég hélt á tímabili að ég væri kom-in með áunna sykursýki og ákvað að fara til læknis. Ég hugsaði með mér að ef læknirinn segði að ég væri með sykursýki þá myndi ég ganga í samtök matarfíkla sem ég hafði kynnst í gegnum vinkonu mína. Svo rann upp fyrir mér hvað þetta var galið hjá mér. Þá höfðu liðið tveir mánuðir sem ég upplifði mig sem algjöran fíkil. Ég lagði fyrir utan KFC, borðaði ein og grét yfir því að geta ekki hætt. Ég gerði mér þarna grein fyrir því að ég væri fíkill. Ég þurfti ekki að bíða eftir einhverri niðurstöðu. Ég bara byrjaði.“

Um leið og Beta kom fór inn í samtökin breyttist sýn hennar á mat og matarræði. Hún sá strax beinu brautina sem hún þurfti að feta til að ná árangri. „Ég hætti að pæla í því hvað ég væri þung, hvað væri hollt, kalóríum og sam-viskubiti. Auðvitað var ég alveg „spinnegal“ í tvær vikur á meðan sykurinn var að fara úr líkaman-um, ég var dofin í puttunum og með mikil fráhvörf. En svo náði lík-aminn jafnvægi, ég hætti að finna þessa þörf og fór að taka eftir líf-inu. Ég léttist kannski ekki nema um 900 grömm á mánuði, en ég gerði það í 40 mánuði.“

Höndlaði ekki fíkninaÞegar Beta var svo alveg að ná kjörþyngd ákvað hún að taka sér smá hlé frá lífsstílnum sem hún hafði tileinkað sér. „Ég var búin að vera mjó í korter og sagði sjálfri mér að ég væri bara með þetta. Mér fannst ég ógeðslega mjó og sæt og þar sem ég var að skreppa til Brussel fannst mér ég verða að leyfa mér allavega smá belgískt konfekt,“ segir hún og hlær. „Ég sagði sponsornum mínum frá þessu, hún ráðlagði mér frá því, en eðlilega gat hún ekki stoppað mig. Ég var búin að ákveða þetta fyrirfram. Ég reyndi að byrja hægt og rólega. Fékk mér fyrst indverskan mat hérna heima með manninum mínum og það var ótrúlega skrýtið að taka fyrsta bitann. Úti í Brussel hafði ég svo enga stjórn á mér. Ég var í tvo tíma yfir morgun-verðarhlaðborðinu því ég varð að smakka allt. Svo sofnaði ég með ís í annarri og súkkulaði í hinni eftir að hafa borðað hamborgara. Ég fékk ekkert í magann af þessu en ég var með 100 í púls allan tímann. Hjartað hamaðist og hamaðist. Það ætlaði að rifna úr brjóstinu á mér.“

Betu fannst þetta mjög óþægi-leg aukaverkun og hræddist af-

leiðingarnar ef hún héldi áfram á þessari braut. „Ég fann að ég gat ekki lifað þessu lífi, ég yrði að snúa aftur í fráhaldið mitt, annars myndi ég deyja fyrir fimmtugt. Fyr-ir utan sjálfshatrið og vanlíðanina þá fann ég að líkaminn höndlaði ekki fíknina mína. Þetta snýst því í raun ekki um agann sem okkur í samtökunum er svo oft hrósað fyr-ir, þetta snýst bara um að lifa af.“

Ræktin ekki til að grennastÞað sem er kannski athyglis-verðast við sögu Betu er að hún hreyfði sig lítið á meðan hún var að missa öll þessi kíló, enda fannst henni það bæði leiðinlegt og erfitt. Löngunin til að hreyfa sig kom ekki yfir hana fyrr hún var að nálgast kjörþyngd.

„Ég byrjaði að hreyfa mig af því ég var hætt að svitna við að labba og vera til. Þeir sem eru svona þungir þurfa ekki að fara í líkams-rækt. Það er nógu erfitt fyrir þessa einstaklinga að labba. Það er svo mikið af fólki sem er í ræktinni án þess að nenna því og mig svíður í hjartað yfir þessum stóra misskiln-ingi. Fólk á ekki að fara ræktina til að grennast. Það er gott að fara í ræktina til að bæta andlega líðan og til að styrkja sig, en ekki til að

léttast. Gúglið það. Maturinn skipt-ir öllu. Og ef þú ætlar að taka út sykur og sterkju, einbeittu þér þá að því, ekki neinu öðru. Hreyf-ingin kemur þegar líkaminn kallar á hana,“ segir hún ákveðin og vísar til eigin reynslu.

Lífsstíll til frambúðarÁ heimili Betu er til allskonar sykraður matur og sælgæti, enda maðurinn hennar og synir á hefð-bundnu matarræði. Á borðinu fyrir framan okkur stendur til dæmis skál með súkkulaðimolum og kexi, en henni er alveg sama. Fólkið í kringum hana er smám saman að læra að hún er ekki bara í megrun eða átaki, heldur er þetta lífsstíll sem hún er búin að tileinka sér og ætlar að viðhalda honum til frambúðar.

„Ég skil vel að það geti verið erfitt að fá fólk eins og mig í mat, en ég redda mér sjálf. Svo hringi ég á veitingastaði áður en ég mæti og kokkum finnst ég yfirleitt bara skemmtileg áskorun,“ segir Beta glöð í bragði. Henni líður vel í eig-in skinni og er himinlifandi með að vera laus undan samviskubiti og sjálfshatri yfir að vera ekki í rækt-inni.

Líður vel í dag Beta stefnir á að vera komin í kjörþyngd á næsta ári, en hún borðar hvorki sykur né sterkju og vigtar allt sem hún lætur ofan í sig. Mynd | Hari

…viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016

„Svo náði líkaminn jafnvægi, ég hætti að finna þessa þörf

og fór að taka eftir lífinu. Ég léttist kannski ekki nema um 900 grömm á mánuði, en ég gerði það í 40 mánuði.“

Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • [email protected] Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, [email protected]; Kidda Svarfdal, [email protected] og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, [email protected]. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.

Page 5: 08 07 2016 amk

PRESS_DG_DolceRosaExcelsa_220x297_5mm_IS.indd 1 11/02/16 18:11

Page 6: 08 07 2016 amk

Mínigolf og fótboltagolfÍ Skemmtigarðinum í Grafarvogi má finna tvo glæsilega átján holu mínigolfvelli. Fyrir 12 ára og eldri kostar 1.500 krónur, börn 6-11 ára 800 krónur og börn undir 5 ára spila frítt. Það er enginn of gamall eða of ungur fyrir mínigolf. Þegar mínigolfhringnum er lokið er fátt annað í stöðunni en að spreyta sig í fótboltagolfi. Það virkar svo að fótbolta er sparkað í átt að flaggstöng og sá sigrar sem kemst hringinn á sem fæstum „höggum“ eða skotum. Tilvalið fyrir unga fótboltaunnendur og fjölskylduna alla.

Réttarhálsi 2 • 110 ReykjavíkSími: 520 6666 • [email protected] • rv.is

Rekstrarvörur- vinna með þér

Rekstrarvörur– fyrir þig og þinn vinnustað

Curver karfa ferköntuð Knit með höldum 8l, hvít

Curver karfa ferköntuð Knit með höldum 3l, hvít

Söluaðilar: Húsasmiðjan, um allt land • Miðstöðin, Vestmannaeyjum Vaskur, Egilsstöðum • Rekstrarvörur, Reykjavik og RV.is

– fyrir ruslið

– fyrir þvottinn

– fyrir þína hluti

Curver fata m.fótstigi 30x27x45 cm - 20 l - svört

Curver fata m.fótstigi 31x35x70 cm - 40 l - svört

Curver fata með fótstigi Slim Bin - 25 l - málm

Curver fata m.fótstigi Slim Bin - 25x42x61 cm 40 l - málm

Curver taukarfa Style með loki - 45x26x62 cm - 60 l - hvít

Curver taukarfa Style með loki - 45x26x62 cm - 60 l - dökkgrá

Curver taukarfa Style með loki - 59x38x27 cm - 45 l - hvít

Curver taukarfa Style með loki - 59x38x27 cm - 45 l - svört

er komið aftur til Íslands!– körfur, box og fötur til allra nota

Knit

Ný lína

2016

Curver karfa Knit með höldum 3l, hvít

Curver karfa ferköntuð Knit með höldum 19l, hvít

Fjölskyldan á Brúsastöð-um er sennilega ekki dæmigerð enda búum við örlítið fyrir utan bæjarmörkin og erum

með hænur í garðinum, auk þess að vera með lítið athvarf í bíla-stæðinu með villiköttum sem tekur upp töluverðan tíma hús-freyjunnar,“ segir María Krista Hreiðarsdóttir, einn eigenda lífsstílsverslunarinnar Systur og Makar.

María Krista segir engar helgar vera beint venjulegar hjá fjöl-skyldunni, en hún á þrjú börn ásamt eiginmanni sínum, Berki Jónssyni. „Ef við viljum gera eitt-hvað með drengjunum sem búa enn heima, Mána 16 ára og Nóa 12 ára, þá er það helst að skjótast

saman í bíó og mögulega innbyrða einhverja óhollustu á undan á vel völdum veitingastað borgarinnar. Máni stundar „downhill“ hjóla-sport af kappi, svo slíkar keppnir eiga hug hans allan og eru yfirleitt haldnar um helgar. Pabbi hans er dug-legur að fylgja honum eft-ir í því, ég læt hins vegar duga að fylgjast með stráksa á Fésbókinni enda með hjartað svoleiðis í buxunum þegar dreng-urinn hendir sér niður grýttar brekkur á fjallahjólinu,“ segir María kímin.

Nói, yngri sonur Maríu og Bark-ar, er meira fyrir tölvuleiki en hjólreiðar. „Hann eyðir alltof mikl-um tíma fyrir framan skjáinn og

mamman er stundum með svíð-andi móral yfir því, en við trúum því að hann verði fræg YouTube--stjarna sem komi til með að halda fjölskyldunni uppi þegar líður á,“

segir María og hlær. „Sumar helgar nýt-

um við í sumarbústaðn-um okkar í Hvalfirði sem við eigum ásamt systur minni og mágkonu. Full-komin helgi væri líklega að vera þar öll saman, vakna á svipuðum tíma, borða góðan morgunmat

og slaka vel á. Það myndi toppa helgina ef elsta dóttirin, Mekkín, væri með í för en hún stundar nám í hjúkrun í Kaupmannahöfn og við sjáum alltof lítið af þessari elsku.“

María Krista ásamt Berki, eiginmanni sínum, sonunum Mána og Nóa, Kötlu systur sinni og Tótu mágkonu.

Fara í bíó.Borða góðan (og sæmilega óhollan) mat.

Skreppa í bústaðinn.Slaka vel á.

Engar helgar eru beint venjulegar

Hestaleikhús og sundFákasel er staðsett mitt á milli Hveragerðis og Selfoss. Þar starfar eina hestaleikhús landsins og fá börn og fullorðnir innsýn í sögu íslenska hestsins og hlutverk. Mikið er lagt í hljóð og sjónræna tilburði á 40 metra löngum skjá. Sýningar standa yfir alla daga vikunnar klukkan 13, 16.30 og 19. Nánari upplýsingar www.fakasel.is.

Frá hestaleikhúsinu eru ýmsar skemmtilegar sundlaugar á nálægum slóðum. Laugarvatn Fontana er fjölskylduvænn staður útbúinn þremur tegundum af gufum og heitum pottum. Sundlaugin á Hellu, Selfossi og Flúðum. Gamla laugin og Hveragerði eru einnig skammt undan.

Dagsferðir með fjölskyldunniÁ meðan sólin skín er tilvalið að nýta helgarn-ar í eitthvað nýtt og frumlegt með fjölskyld-unni. Ísland getur verið ykkar útland í faðmi fjölskyldunnar og náttúru.

Völundarhús og dýragarðurÍ Garðyrkjustöðinni Engi í Laugar-ási er lífrænn markaður og fal-legur jurtagarður með merktum plöntum og sætaplássi. Gróður-húsið iðar af lífi en þar má skoða og fræðast um fágætar plöntur. Á laugardag og sunnudag er lífræni markaðurinn opinn frá klukkan 12- 18 með allskyns kryddjurtum, jarðarberjaplöntum og hind-berjum, kúrbíti, dilli, gulrótum, myntu, eggaldini, salvíu, myntu-tei og svo mörgu, mörgu fleira. Á sunnudaginn, 10. júlí, verður boð-ið upp á hverabrauð með silungi.

Í garðinum er 1000 fermetra völ-undarhús klippt úr limgerði fyrir krakkana. Á staðnum er skemmti-leg leikaðstaða fyrir börn, leiktæki og staðir til þess að borða nesti. Skammt undan er dýragarðurinn Slakki sem ekkert barn og foreldri má láta framhjá sér fara.

…fjölskylda 6 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016

Page 7: 08 07 2016 amk
Page 8: 08 07 2016 amk

Steinunn Ósk Valsdóttir. Mynd | Hari

„Ansi margt sem er ómissandi í snyrtitöskunni“Steinunn Ósk bloggar og heldur út skemmtilegu Snapchat-i þar sem hún meðal annars sýnir förðun og spjallar um snyrtivörur.

Steinunn Ósk Valsdótt-ir er 24 ára náms-maður, bloggari og tvíburamamma sem búsett er í Keflavík.

Steinunn Ósk heldur einnig út líf-legu Snapchat-i þar sem hún með-al annars sýnir förðun, spjallar um snyrtivörur ásamt því að gefa fylgjendum innsýn í sitt daglega líf en hún starfar einnig á Keflavíkur-flugvelli, í verslun Deisymakeup í Borgartúni og tekur að sér förðun. Steinunn hefur alla tíð hafa mik-inn áhuga á og mikla ástríðu fyrir förðun og er virkilega hæfileikarík, að mati blaðamanns.

„Ég hef ekki sótt förðunarskóla en ég hef lært alveg rosalega mik-ið af Ásdísi Ingu, vinkonu minni, eiganda Deisymakeup. Ég er ótrúlega heppin með hana. Svo er þetta bara æfing og meiri æfing, þannig verður þú betri og betri. Ég hef auðvitað gert fullt af mistökum og lært af þeim. Ég tók einfaldlega skrefið, henti mér í djúpu laugina og byrjaði að farða.

Við fengum að kíkja á hvað er ómissandi í snyrtitöskunni hjá þessari uppteknu konu.

Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með Steinunni Ósk geta bætt henni

við á Snapchat: steinunnoskblog.

1

2

35 6

4

„Fyrsta verð ég að nefna þráðlausu Temptu Air vélina mína, sem er ein flottasta förðunarvél í heiminum í dag. Þetta er airbrush vél sem ég nota á húðina, sama hvort ég er að setja á mig meik, kinnalit, highlighter eða skyggja andlitið. Þessi vél er algjörlega ómissandi og er endingarbesti farði sem ég hef kynnst, eins er farðinn olíulaus þannig að minni líkur eru á að húðin fari að glansa.“

„Dip Brow frá Anastasia Beverly Hills er eitthvað sem ég nota á hverjum degi og er alveg ómissandi.“

„Glow Kit frá Anastasia Beverly Hills á fast pláss í snyrtitöskunni minni. Ég gríp alltaf í þetta box þegar ég vil fá ljóma í andlitið, sem er nú yfirleitt á hverjum degi.“

„Hyljarahjólið frá Temptu er eitthvað sem ég nota óspart, bæði þegar ég farða sjálfa mig og aðra. Ég nota þetta til þess að hylja bletti, bólur, bauga og allt sem þarf að fela áður farði á borð við meik er settur á húðina.“

„Ég er voðalega hrifin af nude varalitum og varalitur númer 26 frá Aden er í miklu uppáhaldi hjá mér núna.“

„Uppáhalds maskarinn minn er án efa Telescopic frá L’Oréal. Þetta er besti maskari sem ég hef prófað, ég er með frekar lítil augnhár og mér finnst Telescopic lengja augnhárin mest og gera svo mikið fyrir þau.“

…tíska 8 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016

280cm

98cm

20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní

Túnika kr. 3000

Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16

Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta

Loksins komnar aftur

*leggings háar í mittinu

kr. 5500.

Tökum upp nýjar vörur daglega

Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16

Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta

Loksins komnar aftur

*leggings háar í mittinu

kr. 5500.

Tökum upp nýjar vörur daglega

Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16

Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta

Loksins komnar aftur

*leggings háar í mittinu

kr. 5500.

Tökum upp nýjar vörur daglega

20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní

Túnika kr. 3000

Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16

Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta

Loksins komnar aftur

*leggings háar í mittinu

kr. 5500.

Tökum upp nýjar vörur daglega

Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16

Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta

Loksins komnar aftur

*leggings háar í mittinu

kr. 5500.

Tökum upp nýjar vörur daglega

Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16

Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta

Loksins komnar aftur

*leggings háar í mittinu

kr. 5500.

Tökum upp nýjar vörur daglega

ÚTSALAÚTSALAÚTSALAÚTSALAÚTSALAÚTSALAÚTSALA

ÚTSALAÚTSALAÚTSALAÚTSALA

ÚTSALAÚTSALAÚTSALAÚTSALA

ÚTSALAÚTSALAÚTSALAÚTSALA

ÚTSALAÚTSALAÚTSALAÚTSALA

ÚTSALAÚTSALAÚTSALAÚTSALA

ÚTSALAÚTSALAÚTSALAÚTSALA

SKÓRVERÐ FRÁ KR 1950

50% AFSL. AF ÖLLUM

VÖRUM

Laugavegi 178 |S. 551-2070 & 551-3366 | www. misty.is

ÞÆGILEGUSTU SKÓR ALLRA TÍMA ? getur vel verið !

CATWALK fást í stærðum 36-41 kr. 11.900,-kr. 11.900,-

Póstsendum hvert á land sem er

Page 9: 08 07 2016 amk

*Samtals sala í stykkjum í Frakklandi, Ítalíu, Spáni og Þýskalandi á samansöfnuðu tímabili [janúar 2015 - september 2015]. 1Instrumental test - 24 konur - 50 ml krukka, 8 klst. rakagjöf við hverja notkun. 2Instrumental test - 24 konur. 3Instrumental test - 26 konur

DJÚPUR RAKIAQUASOURCE GEL

Stjörnuvara, endurnærandi gelkrem í krukku sem gefur 500 klst öfluga rakagjöf1.

NÆTURMEÐFERÐAQUASOURCE NIGHT SPA

Vaknaðu alla morgna með endurnýjaða og djúpnærða húð.:

eykur rakamagn um +30% á einni nóttu2.

NÝTT SLÉTTIR & ÞÉTTIR

OG GEFUR ÓTRÚLEGAN RAKAAQUASOURCE EVERPLUMP

Ný kynslóð þéttandi gelkrema, svo virk að jafnvel fínar línur sléttast út.

AUGNGEL - VAKNAÐU!AQUASOURCE EYE REVITALIZER

Kælir húðina samstundis um -2°C 3: Dregur úr þrota og dökkum baugum og gefur raka og mýkt. ÚTIVISTARKREM

AQUASOURCE COCOONLétt eins og gel - nærir eins og krem. Öflugt rakagefandi, nærandi og verndandi krem.

R A K A K R E M Í E V R Ó P U *

Page 10: 08 07 2016 amk

Spurt til vegar fyrir alla fjölskyldunaSudoku miðlungs

3

1

4 5 6 8

4 6 8 3

6 3 2

9 5 1 8

9 5 1 6

6 9 2

6 8 1 5

Sudoku þung

6 5 3

1 7

4 9 5

1 6 3

4

9 7 8 4

6 7 3

8 7 4 1 9

Heitir eiginkona Hómers Simpsons Marge?

NEIB

NEIJ

JÁA

Dró Artúr konungur sverð úr steini?

JÁK

Er bílategundin Ferrari frá Frakklandi?

NEIJ

Sagði Jesús dæmisögu um maur og engisprettu?

NEIA

Er faldur pils í íslenskum faldbúningi?

Fundu Rómverjar upp smokkinn fyrstir manna?

NEIN

Er Parþenonhofið í Aþenu?

Heldur fjörfiskur sig helst í auga?

NEIG

Er talað um að læðan gjóti kettlingum?

NEIO

JÁR

NEIÚ

Er leikritið Aurasálin eftir Moliére?

JÁA

Orti Matthías Jochumsson þjóðsönginn?

NEII

Er bókum á bókasöfnum raðað eftir stafrófi titla?

JÁÚ

Hét hásæti Óðins Valaskjálf?

JÁG

Voru Kennedy-bræðurnir fjórir?

JÁÐ

Margfaldast hver mælieining af Richter skalanum með sjö?

NEIA

JÁG

JÁE

NEID

JÁG

JÁA

NEIÚ

JÁR

NEII

JÁL

JÁF

NEIE

JÁT

NEIS

NEIA

JÁH

NEIY

NEIK

JÁR

JÁR

JÁG

JÁJ

NEIG

JÁT

JÁN

NEIA

JÁU

KOMIN Í MARK!

BYRJAHÉR

Hvaða nefnist skötuselur öðru nafni?

NEIK

Uppgötvaði Arkimedes skrúfganginn?

NEIF

Nota kafbátar hringsjá til að skoða sig um á

yfirborðinu?

Er egypski sfinxinn samsettur úr konu

og hesti?

Kallast Guð múslima Múhameð?

Er ánamaðkur augnalaus?

Heitir litla systir Emils í Kattholti Lína?

Er Eyrnaslapi besti vinur Dodda í leikfangalandi?

Heitir söngvarinn í Lúdó Sigurður?

NEID

Byrjaðu á byrjunarreit og svaraðu fyrstu spurningunni já eða nei og skráðu hjá þér bókstafinn sem fylgir svarinu. Eltu svo örvarnar eftir því yfir á næstu spurningu og svo koll af kolli. Ef þú ert kominn í mark er þar lokaspurningin. Þá tekur þú saman bókstafina við öll svörin þín (þeir eru ekki endilega í réttri röð). Svarið við lokaspurningunni raðast saman úr þessum bókstöfum ef þú hefur svarað öllum spurningunum rétt. Góða skemmtun.

Krossgáta á föstudegi1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

11 12

13 14

15 16

17 18 19

20 21 22

23 24 25 26 27 28 29 30

31 32 33

34 35

36 37

38 39

Lárétt1. Nes6. Ljóst11. Löngun12. Slanga13. Slæma14. Rakna15. Klæði16. Kvöld17. Ilskór19. Stígandi20. Frá21. Tveir eins23. Gerast26. Kirkja31. Príl33. Afhenda34. Skrifara35. Ljómi36. Vara37. Glyrna38. Eyða39. Eldstæði

Lóðrétt1. Ríki2. Bók3. Heilan4. Borga5. Tveir6. Slípaður7. Krass8. Margvíslegar9. Kjarr10. Dá14. Mál18. Frábær22. Pjakkur23. Rabb24. Nöldra25. Ólyfjan27. Trylla28. Kk nafn29. Ógreiddur30. Kölski32. Þungi37. Samtök

Lausn síðustu vikuG R O S S L O S N A

R I F J A Ú R V A L

U M T A L S K A F L

G L A T A K A R L A

G A R N Æ R T I N

A S P A S

Ó S A N A K U S K

J U L L A R A N K A

A L D U R A N G A N

F L A K K S K U R N

N A R T A K A R T A

Sími: 587 6000 - Netfang: [email protected]

Nánari upplýsingar átrex.is

Trex er eitt af stærstu rútufyrirtækjum landsins með áratuga reynslu í þjónustu við hópa. Eigum bíla fyrir litla og stóra hópa allt frá 14 sæta bílum upp í 69 sæta bíla.

Hafið samband og látið okkur um aksturinn!

EKKI FLÆKJA FERÐINA TAKTU RÚTU!

…heilabrot 10 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016

Page 11: 08 07 2016 amk
Page 12: 08 07 2016 amk

MAGNOLIAOFFICINALIS

Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.

Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni„Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef ekki sofið betur í mörg ár.“

SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ

balsam.is

Bætt heilsa og betri líðan með

Natural Health Labs100% náttúruleg bætiefni

Hefur verið notað við svefnvandamálum, kvíða og depurð í yfir 2000 ár í Asíu

CURCUMINGullkryddið

Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.

Steinunn Kristjánsdóttir er sjúkraliði að mennt og starfar í Blue Lagoon versluninni á Laugavegi. Hún hefur átt við mikla verki að stríða um allann líkama í

með liðagigt.

„Ég er búin að taka inn minn skammt af verkjalyfjum og var alveg að gefast upp á þeim. Nuddkonan mín sagði mér þá frá Curcumin sem hefur í sannleika

sagt gefið mér nýtt líf. Ég var búin að taka inn Curcumin í einn og hálfan mánuð þegar ég missti út fjóra daga og það var þá sem ég uppgötvaði að Curcumin er það sem hjálpar mér að losna við alla verki.”

LIÐIR – BÓLGUR – GIGT

Bætt heilsa og betri líðan með

Natural Health Labs100% náttúruleg bætiefni

balsam.is

ÖryggiEkki fara af stað í fjallgöngu án

þess að hugsa um forvarnir. Hafðu ávallt með þér hælsæris-plástur, heftiplástur, verkjatöfl-ur og jafnvel kæli- eða bólgu-eyðandi krem. Við vitum oft ekki hvaða verkir eða óþægindi geta komið upp eftir dálitla göngu, en um það leyti ert þú

yfirleitt fjarri mannabyggðum og langt frá næstu þjónustu. Hugsaðu einnig um hvað þú myndir vera

með í bakpokanum ef þú myndir detta og meiða þig.Hafðu síma þinn vel hlaðinn og settu hann í nestispoka, sem hægt er að loka vel, vegna þess að fljótt geta skipst á skyn og skúrir á Íslandinu góða. Einhvers konar staðsetningarbúnað er einnig gott að hafa, bæði til þess að vera ör-uggur um að vita hvar þú ert og til þess að vita hversu langt er til næsta staðar. Ekki er verra að vera með fjölnota verkfæri á borð við Le-atherman.

Annað sem er gott að vitaHafðu meðferðis vindfatnað, því hann bæði vind- og vatns-heldur og vigtar ekki mikið í töskunni þinni. Auka par af sokkum, ef þú blotnar í fæturna, auka plastpoka, vett-linga og vatnshelda hlíf yfir bakpokann þinn.

Þegar þú er að fara í gönguskóna þína, áður en lagt er af stað í gönguna, er gott að setja á sig svokallaðan silkiplástur, sem fæst í apótekum. Þú setur hann á hæl-ana þína, svo sokkarnir og skórinn nuddist ekki harkalega við hælinn. Einnig er þjóðráð að fara í ör-

þunna nælonsokka undir göngusokkana þína til að forðast nún-ing á fótum þínum.

Mjög gott er að hafa göngustafi meðferð-is og fást þeir mjög víða á viðráðanlegu verði. Þeir munu koma til með að létta göngu þína svo um mun-ar og síðast en ekki síst

geta nokkrar blautþurrk-ur geta komið sér vel.

Þurrkaðu framan frá og aftur á bakÞað er mjög mikilvægt að skeina sig rétt til að varna bakteríum

frá því að komast í þvagrásina. Þurrkaðu aftan frá, þ.e.a.s. frá kynfærum og aftur. Ekki að fram-an og upp. Þá er hætta á því að sýklar frá endaþarmi endi í þvag-rásinni.

Forðastu kvennavörur sem ertaÞað eru margar vörur sem konur nota sem

eru geta verið ertandi fyrir þetta svæði. Þetta eru vörur eins og þurrkur, púður og ilmir. Rannsókn-ir hafa sýnt fram á að ef konur nota of margar tegundir af svona vörum eru þær viðkvæmari fyrir þvagfærasýkingum.

Drekktu vatn og farðu oft á salerniðÞað er mjög mikilvægt að drekka alltaf mikið vatn, hvort sem þú sért gjörn á að fá sýk-

ingar eða ekki. Mælt er með því að drekka að minnsta kosti 2 lítra af vatni á dag.Því meira sem þú drekkur af vatni því tærara verður þvagið. Þú piss-ar oftar og bakteríurnar skolast fljótt út og þvagrásin er hreinni.

Hugsaðu vel um mjóbakiðÞað kann að hljóma ótrúlegt en álag á mjó-bakið getur haft áhrif

á taugar í bakinu sem tengjast þvagrásinni. Farðu því vel með bakið þitt og ekki ganga allt of mikið í háum hælum því þeir setja álag á mjóbakið.Gerðu styrktaræfingar sem styrkja bakið og kviðvöðvana og það mun vinna þér í hag.

Skiptu oft um tíðatappaBest er að skipta um tíðatappa á um 4- 6 tíma fresti. Því lengur sem tíðatappinn er í

því lengur fá bakteríur og eitur-efni að vera í leggöngunum sem auka þar af leiðandi mikið hættu á sýkingu í þvagfærum.

Forðastu að fá harðlífiHarðlífi eykur lík-urnar á þvagfæra-sýkingu, samkvæmt

National Health Service. Ef þú ert með harðlífi, safnast hægðir fyrir í þörmum sem valda því að þrýstingur myndast á þvagblöðr-una.Það sem hægt er að gera til að fá síður harðlífi er að borða vel af trefjum, nota hægðamýkjandi efni og drekka mikið af vatni.

Drekktu trönuberjasafaMargir læknar og kvensjúkdómalækn-ar mæla með því að

drekka trönuberjasafa til að koma í veg fyrir þvagfærasýkingar og blöðrubólgur.Það eru efni í trönuberjasafa sem koma í veg fyrir að bakteríur nái að stoppa nógu lengi í blöðrunni til að valda sýkingu.

Pissaðu fyrir og eftir kynlífVið það að stunda kynlíf geta „smitast“ bakteríur frá enda-

þarmi að leggöngum og geta valdið þvagfærasýkingum sam-kvæmt WebMD.

Ekki vera í of þröngum buxumForðastu að vera í mjög þröngum bux-um og eins er best

að vera í nærbuxum úr bómull. Bómullin andar best og heldur kynfærum þínum þurrum. Nælon, til dæmis, heldur raka á þessu svæði sem eru kjöraðstæður fyrir bakteríur til að lifa í.

9 leiðir til að koma í veg fyrir þvagfærasýkinguÞvagfærasýking er sýking sem kemur í þvagblöðruna og getur farið upp í nýrun. Einkennin eru sársauki við þvaglát, tíð þvaglát og í sumum tilfellum hiti, gruggugt þvag og þvagið verður skrýtið á litinn. Þessi sýking er algengari hjá konum því þvagrásin er styttri en hjá körlum og þess vegna eiga bakteríurnar auðveldara aðgengi að blöðrunni

Kannt þú að græja þig fyrir hálendið?Nokkur ráð fyrir óvana fjallagarpa í léttum dagsferðum

NæringMikil orka fer í að ganga um fjöll og firnindi og því gríðarlega mik-ilvægt að huga vel að þeirri orku sem þú veitir líkama þínum í slíkum ferðum. Ef þú ert í leið í dagsferð eða ert að hafa til nesti í bakpokann fyrir dagsgöngu í lengri ferð á fjöllum, skaltu ganga í skugga um að þú hafir næringu fyrir hvern matmálstíma sem er á þeim tíma sem þú gengur og gakktu úr skugga um að þú hafir einnig skyndiorku meðferðis ef orkan þín fer að dvína inn á milli máltíða. Margir hugsa með sér að gott gæti verið að vera með einhvers kon-ar sælgæti meðferðis, en öll orka sem inniheld-ur þrúgusykur gefur þér enn hraðara orkubúst. Vatnsbrúsi er algjört þarfaþing og er mikilvægt að passa upp á að vökva líkama sinn vel. Við eigum það til að átta okkur ekki á því hversu mikinn vökva við töpum á göngu, þá sér-staklega hér á landi, vegna þess að oft er ekki sérlega hlýtt í veðri. Ef þú ert að ganga í miklum kulda er þjóðráð að taka með sér brúsa með heitu vatni svo þú getir annað hvort fengið þér súpu eða kakó á matmálstíma. Langvirkandi kol-vetni, svo sem brauð, er einnig tilvalin nestiskostur.

…heilsa 12 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016

Page 13: 08 07 2016 amk

Styrkir ónæmiskerfið og meltingunaHreysti og betri einbeiting fyrir tilstuðlan Bio-Kult. Unnið í samstarfi við Icecare

Íris Ásmundardóttir er á fullu í framhaldskólanámi og æfir ballett í rúmlega tuttugu klukkustundir á viku ásamt því

að vinna sem aðstoðarkennari í ballett fyrir þau sem eru að taka fyrstu sporin. „Þegar ég lærði að stærsti hluti ónæmiskerfisins væri í meltingarfærunum ákvað ég að gera eins vel og ég gæti til að styðja við og halda þeim í sem bestu standi. Ég ætla mér langt í ballettinum og mér hefur undan-farin tvö ár hlotnast sá heiður að fá að stunda nám við sumarskóla Boston Ballet ásamt því að hafa tekið tíma bæði í Steps on Broa-

Unnið í samstarf við Icecare

Ég er fimmtug kona í krefj-andi stjórnunarstarfi og hef átt við svefnvandamál að stríða af og til undan-

farin 10 ár, sem lýsir sér þannig að ég næ ekki að slökkva á mér á kvöldin,“ segir Lísa Geirsdótt-ir. „Heilinn fer á fullt að hugsa um næstu vinnudaga og ég næ ekki að slaka nægilega á til að sofna. Það eru örugglega margir sem kannast við þessar aðstæð-ur.“ Fyrir nokkrum árum fékk Lísa vægt svefnlyf hjá lækni sem hjálpaði, en hún var ekki hrifin af því að taka svefnlyf að staðaldri. „Lyfin fóru einnig illa í mig, ég vaknaði á morgnana með hálf-gerða timburmenn.“

Fyrir nokkrum mánuðum ráð-lagði góð vinkona Lísu henni að prófa Melissa Dream. „Eftir að ég fór að nota Melissa Dream næ ég að slaka á og festa svefn. Ég sef eins og ungbarn og er hress morguninn eftir. Einnig hefur Melissa Dream hjálpað mér mikið vegna pirrings í fótum sem angraði mig oft á kvöldin. Ég tek tvær töflur um það bil klukkustund áður en ég fer upp í rúm og næ að lesa mína bók og slaka á áður en ég fer inn í draumalandið. Ég

vakna hress og kát á morgnana og er tilbúin að takast á við ver-kefni dagsins án svefnleysis og þreytu.“ Lísa mælir eindregið með Melissa Dream fyrir alla þá sem eiga erfitt með að slaka á og festa svefn. „Það er líka góð tilfinning við að notast við náttúruleg lyf, ef þess gerist kostur.“

Sofðu betur með Melissa Dream Í gegnum aldirnar hef-

ur sítrónumelis (lemon balm), melissa officinalis, verið vinsæl meðal grasalækna, en þaðan dregur varan nafn sitt. Þessar vísindalegu samsettu náttúru-vörur eru hannaðar til að aðstoða þig við að sofa betur og vakna endurnærð/ur og innihalda ekki efni sem hafa sljóvgandi áhrif. Sítrónumelis taflan inniheldur náttúrulegu amínó sýruna L-thean-ine, sem hjálpar til við slökun auk alhliða B-vítamína, sem stuðla að eðlilegri taugastarfsemi. Auk þess inniheldur taflan mikið af

magnesíum, sem stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og dregur þar með úr óþægindum í fótum og handleggjum og bætir svefn.

Melissa Dream fæst í apótekum, heilsuverslunum og í heilsuhillum stór-markaða. Nánari upplýsingar má finna á www.icecare.is.

Hvílist betur með Melissa DreamMelissa Dream-töflurnar fá þig til að slaka á, sofa betur og vakna endurnærð/ur. Ekki eru um lyf að ræða heldur náttúruleg vítamín og jurtir.

Get ekki án Femarelle veriðBetri svefn, jafnara skap og engin hitakóf.

dway og í London. Til þess að geta stundað þetta allt saman af fullum krafti tek ég Bio-Kult á hverjum degi til að styrkja ónæmiskerfið og koma í veg fyrir að ég fái allskon-ar umgangspestir sem ég má ekkert vera að því að eyða tímanum í,“ segir Íris.

Henni finnst Bio--Kult gera sér gott samhliða heilsusamlegu mataræði. „Ég er allavega mjög hraust, sjaldan þreytt, með góða einbeitingu og hlakka nær undan-tekningarlaust að takast á við

verkefni dagsins.“Bio-Kult fyrir alla

Innihald Bio-Kult Candéa--hylkjanna er öflug blanda

af vinveittum gerlum ásamt hvítlauk og grape seed extract. Bio-Kult Candéa hylkin virka sem vörn gegn candida--sveppasýkingu í meltingarvegi

kvenna og karla og sem vörn gegn sveppa-

sýkingu á viðkvæmum svæðum hjá konum. Candida-

-sveppasýking getur komið fram með ólíkum hætti hjá fólki svo sem munnangur, fæðuóþol,

pirringur og skapsveiflur, þreyta, brjóstsviði, verkir í liðum, mígreni eða ýmis húðvandamál.

Bio-Kult Original er einnig öfl-ug blanda af vinveittum gerlum sem styrkja þarmaflóruna. Bio--Kult Candéa og Bio-Kult Orig-inal henta vel fyrir alla, einnig fyrir barnshafandi konur, mjólk-andi mæður og börn. Fólk með mjólkur- og sojaóþol má nota vörurnar. Mælt er með Bio-Kult í bókinni Meltingarvegurinn og geðheilsa eftir Dr. Natasha Campbell-McBride.

Unnið í samstarf við Icecare

Dalla Gunnlaugsdóttir leit-aði til faglegs ráðgjafa árið 2014 vegna mik-illa óþæginda

sökum breytinga-skeiðs. Eftir þessa heimsókn til fag-legs ráðgjafa-fór Dalla að taka inn Femarelle. „Óþægindin voru hitakóf, þreyta, miklar skapsveiflur og svefntruflanir. Ég talaði um þessa vanlíð-

an mína við faglegan ráðgjafa minn og benti hann mér á Femar-elle þar sem ég vildi ekki taka inn hormóna. Eftir tvær vikur leið mér mikið betur. Hitakófin hurfu, ég

svaf betur og skapið varð jafnt. Í dag get ég ekki án

Femarelle verið. Fólki í kringum mig finnst ég allt önnur og finnur mikinn mun á skap-inu hjá mér. Í dag er ég í 130% vinnu ásamt því að stunda

nám sem ég klára 2017. Femarelle færði mér

aukna orku.“

• Slær á óþægindi eins og höfuðverk, svefntruflanir, nætursvita, skapsveiflur og óþægindi í liðum og vöðvum.

• Þéttir bein.• Hefur ekki áhrif á móðurlíf

eða brjóstavef.• Náttúruleg lausn, inniheldur

Tofu-extract og hörfræjaduft.• Inniheldur engin hormón eða

ísóflavóníða.• Staðfest með rannsóknum

síðustu þrettán ár.

Femarelle

…heilsa kynningar13 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016

Íris Ásmundardóttir ballerina er mjög hraust, sjaldan þreytt og með góða einbeitingu

Dalla Gunnlaugsdóttir Í dag er ég í 130% vinnu ásamt því að stunda nám sem ég klára 2017.

Hitakófin

hurfu, ég svaf

betur og skapið

varð jafnt.

Bio-Kult Original er einnig öflug

blanda af vinveitt-

um gerlum sem

styrkja þarma-flóruna.

Page 14: 08 07 2016 amk

Sólrún Lilja Ragnarsdó[email protected]

„Unglingarnir okkar og börn missa af lífinu, þau lifa ekki í raunheimi á meðan á ofnotkuninni stendur,“ seg-ir Friðþóra Sigfúsdóttir, markþjálfi og jógakennari, um áhrif tölvufíkn-ar á ungmenni. Hún heldur úti face-book-síðunni Netfíkn/ofnotkun nets-ins, hefur haldið fjölda fyrirlestra um málefnið og leiðbeint foreldrum sem hafa staðið ráðþrota frammi fyr-ir vandamálinu. Sjálf þekkir hún það vel af eigin raun en sonur hennar var langt leiddur tölvuleikjafíkill á ung-lingsárunum.

Augun opnuðust Friðþóra segist hafa áttað sig á því allt of seint að sonur hennar átti við vandamál að stríða. Og það gerð-ist í raun fyrir algjöra tilviljun. „Ég var orðin langþreytt á því að hann ryksugaði ekki herbergið sitt og hlustaði ekki á mig og tölvan fékk alla hans athygli og tíma. Viðbrögðin hans við því að ég slökkti á rafmagn-inu inni í herbergið hans fékk augu mín til að opnast og sjá að þetta var meira en bara hangs í tölvuleik.“

„Á þeim tímapunkti upplifði Frið-þóra þá skelfilegu tilfinningu að verða hrædd við 15 ára son sinn. „Þegar ég slökkti á leiknum missti hann stjórn á sér og sjálf fékk ég áfall að upplifa hversu illa stödd við

vorum bæði. Ég í minni afneitun og hann sokkinn í spilaheiminn sem átti hug hans allan.“

Gæti ekki verið stoltari í dagÍ kjölfarið var tölvan fjarlægð af heimilinu og erfiðar vikur tóku við. Sonur Friðþóru var ekki mjög sam-vinnuþýður. Honum fannst hann ekki eiga við vandamál að stríða heldur fannst honum móðir sín vera vandamálið, að skipta sér svona af honum og eyðileggja framtíðarplön hans.

„En þetta var í raun botninn sem við þurftum að upplifa til að opna augun og hefja uppbyggingu okkar beggja af alvöru. Og sú vinna hef-ur heldur betur skilað sé. Ég gæti ekki verið stoltari þegar ég horfi á son minn í dag og þessi barátta var svo sannarlega til að leiða okkur saman á ný. Ég tala til foreldra til að hjálpa þeim að stytta þetta erfiða og oft langa ferli með því að segja mína sögu og frá mínum mistökum og um-fram allt sigrum því það er svo mik-il hvatning fyrir foreldra að heyra aðra upplifa það sama upplifa sigur að lokum og heilbrigt fjölskyldulíf á ný,“ segir Friðþóra, en það tók hana tvö ár að læra að eiga við son sinn og tölvuleikjafíknina hans.

Hóta að fyrirfara sérEn hver eru fyrstu hættumerkin sem foreldrar eiga að vera vakandi fyr-

ir í hegðun barna sinna sem glíma við tölvuleikjafíkn? „Skóli og íþrótt-ir eru oft það fyrsta sem aflaga fer. Foreldrar komast oft ekki strax að því að skróp á þessum vettvangi er orðinn veruleiki.

Stærstu áhrifin af þessari öfga-notkun er á andlega líðan. Ofnotk-unin rífur einstaklingana úr raun-veruleikanum og það er svo sorglegt að segja frá því að mörg hver sem eru í mikilli ofnotkun staðna í þroska á meðan spilun er svona mikil.“

Þá segir Friðþóra mörg dæmi þess að börn bregðist illa við ef foreldrarnir ætli að reyna að stýra tölvunotkun þeirra eða draga úr henni með einhverjum hætti. „Dæmi eru um að unglingar hóti að fyrirfara sér þegar reynt er að setja ramma utan um notkunina þeirra. Rústa herbergjum sínum, læsa sig inni, stela og hlaupa að heiman. Sögurnar eru margar og mismun-andi.“

Vaxandi vandamálFriðþóra telur að tölvuleikjafíkn sé vaxandi vandamál meðal ungmenna og bendir á að sumarið og önnur frí séu hættulegri tími en annar hvað þetta varðar. „Ef foreldra grunar að unglingurinn þeirra sé búinn að missa stjórn og greina breytingar á hegðun hans/hennar og lundar-fari er brýnt að grípa inn í og fá að-stoð sem fyrst. Tölvuleikjafíkn er

samfélagslegt mein sem getur haft varanleg áhrif á líf og heilsu ung-menna ef ekkert er aðhafst,“ segir Friðþóra sem mun halda sinn næsta fyrirlestur í byrjun ágúst. „Það er

líka gott fyrir foreldra að leggjast í smá rannsóknarvinnu heima fyr-ir. Leggja saman á ráðin, undirbúa breytta og betri tíma og uppeldis-aðferðir.“

Slökkti á tölvuleik sonarins og hann missti stjórn á sérFriðþóra fræðir foreldra um hvernig þeir eiga að bera sig að vakni grunur um að barn sé haldið tölvufíkn. Sonur hennar var langt leiddur af tölvuleikjafíkn og 15 ára gamall var hann farinn að sýna ógnandi hegðun þegar slökkt var á leiknum.

Þekkir vandann af eigin raun Friðþóra tók rafmagnið af herbergi sonar síns þegar hún var orðin langþreytt á því að hann væri alltaf í tölvunni og áttaði sig þá á því að þetta var ekki bara venjulegt tölvuhangs.

Curcumin  er allt að 50 sinnum áhrifameira en hefðbundið túr-merik. Curcumin hefur jákvæða verkun gegn slæmum liðum, gigt, bólgum og magavandamálum, styrkir hjarta- og æðakerfið og ásamt því að bæta heilastarfsemi og andlega líðan. 

Bætiefnið er unnið úr túrmerik rót frá Indlandi og er 100% nátt-úrulegt, inniheldur engin rotvarn-arefni og er framleitt eftir ströng-ustu gæðakröfum (GMP vottað).

Ráðlögð notkun: Taktu tvö grænmetishylki með vatnsglasi yfir daginn.

• Hreint Koffín í 100 mg töflum (50stk.)

• Án allra aukaefna• Ráðlagður dagskammtur

er 1 - 2 töflur á dag.• Gefur góða orku, úthald og

einbeitingu• Minnkar þreytu og úthaldsleys

Vantar þig orku?• Þægileg orka þegar þú þarft á

henni að halda:• Á morgnana• Í vinnuna• Í skólann og próflesturinn• Fyrir æfinguna

Hreint Curcumin er margfalt áhrifameira en Túrmerik

Koffein apofri

…heilsa kynningar 14 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016

Sjálf tek ég stundum eina

Koffein Apofri töflu áður en ég fer í rækt-ina og næ mun betri æfingu fyrir vikið.

Vilborg Kristinsdóttir.

Öflug og náttúruleg hjálp í baráttunni við vefjagigtVilborg þjáist af vefjagigt en finnur miklar breytingar eftir inntöku Curcumin frá Natural Health Labs.

Hrein orka Koffein Apofri er 100% hreint koffín sem veitir aukna orku á þægilegan hátt.

Unnið í samstarfi við Balsam

Vilborg Kristinsdóttir starfar sem lagerstjóri og leið vít-iskvalir hvern dag vegna vefjagigtar sem lýsir sér

meðal annars með miklum verkj-um um allan líkama. Hún keyrði sig áfram með verkjalyfjum og hörkunni. Aðeins mánuði eftir að hún hóf inntöku á Curcumin gat hún minnkað verkjalyfjanotkun umtals-vert og var farin að geta hluti sem áður voru ómögulegir vegna gigt-arinnar.

Greindist 18 ára Vefjagigt Vilborg var greind með vefjagigt ung að aldri sem gjarnan var kallaður ruslakistusjúkdóm-ur. Það var lítið hægt að gera og fá meðferðarúrræði í boði. Hún lærði að lifa með sjúkdómnum en þurfti mikið af verkjalyfjum til þess að komast gegnum daginn.

„Ég hef líklega byrjað að finna fyrir vefjagigtinni aðeins 18 ára, en ég skrifaði það alltaf á vöðvabólgu. Ég vann til dæmis erfiðisvinnu á kúabúi og skrifaði verkina á þá vinnu. Ég eignaðist börn eftir tvítugt sem getur ýtt undir vöðva-bólgu þannig að ég velti þessu ekk-ert stórkostlega fyrir mér, ég var bara með verki og þannig var það bara,“ segir Vilborg.

Ástandið orðið mjög slæmt Vefjagigtin var svipuð hjá Vilborgu fyrstu 15 árin eftir greininguna en síðastliðin 5 ár hefur hún farið versnandi. Hún próf-aði gjarnan eitt og annað sem átti að hjálpa til og gaf því séns í sex mánuði en ekkert virkaði sem gat slegið verkina. Síðastliðið haust var

ástandið orðið afar slæmt. „Líðanin var orðin þannig hjá mér að mér leið alltaf eins og ég væri með 40 stiga hita og með svakalega beinverki. Þetta var bara kvalræði,“ segir Vil-borg sem þarf vegna starfs sína að erfiða mikið líkamlega hvern dag.

Eins og ég sé tvítug aftur Vilborg kom auga á auglýsingu fyrir Curcumin hylkin og ákvað að prófa; ástandið gæti ekki versnað. „Ég byrjaði að taka þetta inn og leiddi hugann raunar ekkert að því meira. En allt í einu, eftir um það bil mánuð, þá fór ég að finna verulegar breytingar. Ég var ekki lengur eins aum í líkamanum og ég áttaði á mig að ég var farin að stafla vörubrett-um og lyfta þungum hlutum sem ég hafði alls ekki treyst mér til áður. Ég sagði við börnin mín að mér liði eins og ég væri tvítug aftur!“

Alsæl með árangurinn og hætt að taka verkjalyf á kvöldin

Vilborg fann ekki einingis mun á sér líkamlega heldur einnig and-lega. „Það er bara ofboðslega niðurdrepandi að líða vítiskval-ir alla daga og keyra sig áfram á hörkunni. Nú er ég hætt að taka verkjalyf á kvöldin sem er mikill sigur. Líðan mín er í dag raunar ekki sambæri-leg miðað við hvernig hún var í október. Ég mæli hiklaust með Curcumin, ég er bókstaflega alsæl yfir þeim árangri sem hefur komið fram til þessa“. Sölustaðir: Curcumin er fáanlegt í öllum apótekum, heilsu-verslunum og heilsuhill-um stórmarkaða, Orku-setrinu og heimkaup.is

Unnið í samstarfi við Balsam

Koffín hefur löngum verið þekkt fyrir að gefa góða orku, úthald, einbeitingu og hægja á þreytuboðum

til heilans. Koffein Apofri er nýtt á markaði og innheldur 100% hreint koffín, án allra aukaefna.

Margrét Rós Einarsdóttir sölu- og markaðsstjóri segist hafa prófað Koffein Apofri í fyrsta sinn á tímapunkti þegar hún hafi verið að leka niður af þreytu. „Ég vaknaði innan við nokkra mínútna og náði að klára vinnudaginn vakandi og einbeitt. Það kom mér rosalega óvart hversu góð og mjúk áhrifin voru og ég fann ekki til nokkura aukaverkanna eins og aukins hjartsláttar eða skjálfta.“ Hver tafla af Koffein Apofri inniheldur 100 mg af hreinu koff-íni og samkvæmt Lyfjastofnun er óhætt að taka allt að 300 mg á dag. „Almenn reynsla fólks af Koffein Apofri virðist öll vera á einn veg,“ segir Mar-grét Rós. „Það veitir fólki góða orku þegar á þarf að halda, hvort sem það er til að koma sér af stað á morgnanna, eða ná góðri einbetingu í vinnu eða námi. Sjálf tek ég stundum eina Koffein Apofri töflu áður en ég fer í rækt-ina og næ mun betri æfingu fyrir vikið. Eins geta töflurnar verið algjör bjargvættur í prófalestri til að halda einbeintingu.“ Hún seg-ir þetta einnig sniðugt fyrir fólk sem drekkur ekki kaffi, en vantar aukna orku á þægilegan hátt. Sölustaðir: Koffein Apofri er fáanlegt í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaða og á heimkaup.is

„Almenn

reynsla fólks

af Koffein Apofri

virðist öll vera á

einn veg,“

Page 15: 08 07 2016 amk

Nutrilenk Gel – nýi fjölskyldumeðlimurinnKælandi, bólgueyðandi og dregur úr brjóskeyðinguUnnið í samstarfi við Artasan

Nutrilenk Gel sómir sér vel við hliðina á Nutrilenk Gold, lið-

bætiefninu sem þúsundir Ís-lendinga nota. Gelið er hugsað bæði fyrir liði og vöðva en það er kælandi, dregur úr bólgum og er gott fyrir brjóskvefinn. Meðal innihaldsefna eru eucalyptus ilmkjarnaolía og engiferþykkni sem

hafa verið notuð í náttúrulækn-ingum í aldaraðir.

Nutrilenk Gel og Nutrilenk Gold eiga það sameiginlegt

að þau innihalda bæði chondroitin sem hjálp-

ar til við að draga úr brjóskeyðingu og örva brjóskmyndun í skemmdum liðum. Þessar tvær vörur virka fyllilega einar

og sér en geta líka ver-ið afar öflugar saman.

Sölustaðir: Flest apótek, heilsu-búðir og heilsuhillur verslana.

…heilsa kynningar15 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016

„Trefjarnar framkalla

seddu tilfinningu, þú borðar minna og lengri tími líður áður en við verðum svöng.“

„Frábært nýtt

bólgueyðandi

kæligel.“

„Glucomannan stuðlar að

þyngdartapi, sé það

tekið inn sem hluti

af orkusnauðu

mataræði.“

GlucoSlim – nýtt þyngdarstjórnunarefni sem virkarGlucoSlim frá Natures Aid inniheldur glucomannan trefjar sem unnar eru úr rótarhýði konjak plöntunnar. Unnið í samstarfi við Artasan

Þetta þyngdarstjórnunar-efni er samþykkt af mat-vælastofnun Evrópu (EFSA) og rannsóknir sýna að það

stuðlar að þyngdartapi, sé það tekið inn sem hluti af orkusnauðu mataræði.

Glucomannan trefjar eru þekktar víða um heim sem öflugt þyngdar-stjórnunarefni en eins og aðrar vatnsleysanlegar trefjar er talið að þær stuðli að þyngdartapi vegna eftirfarandi þátta:

• Þær eru nánast hitaeininga-lausar

• Þær taka pláss í maganum, auka á seddutilfinningu og draga þannig úr innbyrgðu magni

• Þær seinka tæmingu magans sem þýðir að við verðum síður svöng

• Þær draga úr upptöku próteins og fitu

Trefjar sem margfalda Glucomannan eru vatnsleysan-legar trefjar, unnar úr rótarhýði konjak plöntunnar (Amorphoph-allus konjac) en plantan er einnig þekkt undir nafninu djöflatunga eða vúdúlilja. Eins og með aðrar trefjar þá eykur glucomannan um-fang hægða og auðveld-ar losun en þessar trefjar geta drukkið í sig gríðarlega mikið magn af vökva. Því er nauðsynlegt að drekka vel af vatni samhliða inntöku.

Þyngdartap Trefjarnar eru hitaein-ingasnauðar, þær taka pláss í maganum og framkalla þannig seddutilfinningu svo að fólk borðar minna. Þær hægja á tæmingu úr maga og stuðla því líka að því að lengri tími líður áður en við verðum aftur svöng.

1 http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC2699871/�http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/188428083http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/15614200

Jafnari blóðsykur Eins og aðrar vatnsleysanlegar trefjar draga þær úr upptöku á próteini og fitu og eru vinveittar góðu gerlunum í þörmunum. Fitu-sýran butyrate er búin til af bakter-íum í þörmunum þegar þær komast í snertingu við trefjar en þessi fitusýra er bólgueyðandi og hefur öflug verndandi áhrif á meltingar-veginn. Rannsóknir benda til þess að butyrate viðbótin komi í veg fyrir þyngdaraukningu með því að auka brennslu og draga úr matar-lyst. Þegar glucomannan trefjarnar eru teknar inn reglulega hafa þær einnig jákvæð áhrif á blóðsykurinn, hann verður jafnari og við eigum auðveldara með að halda nartþörf-inni í skefjum.

Minni matarlyst Trefjarnar auka líkur á

þyngdartapi því að þær hægja á upptöku nær-ingarefnanna og hafa þannig jákvæð áhrif á blóðsykurinn og kólesterólið, í kjölfarið flýta þær svo fyrir los-

un. Þetta þýðir einnig að við borðum minna og

höfum minni matarlyst.

Minni líkur á sykursýki II Glucomannan er ekki bara gott þyngdarstjórnunarefni því þó nokkrar rannsóknir benda til þess að það dragi úr líkum á því að við þróum með okkur hjartasjúkdóma og/eða sykursýki II.

Samkvæmt 14 rannsóknum getur glucomannan:

• Lækkað heildar kólesteról• Lækkað LDL kólesteról• Lækkað þríglyseríða• Lækkað blóðsykur

Megin ástæða þess að kólester-ól lækkar er að trefjarnar draga úr upptöku þess í meltingarveginum.

Rannsóknir staðfesta virkni Matvælastofnun Evrópu (EFSA) samþykkir glucomannan sem þyngdarstjórnunarefni og hafa rannsóknir sýnt fram á að þessar trefjar geti stuðlað að þyngdartapi.

GlucoSlim frá Natures Aid GlucoSlim inniheldur eingöngu glucomannan trefjar en rannsóknir sýna að til að tryggja virkni þeirra verður að taka að minnsta kosti 3000 mg daglega eða 2 hylki af GlucoSlim þrisvar sinnum á dag og drekka 1-2 vatnsglös samhliða.

Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana.

Page 16: 08 07 2016 amk

Föstudagur 08.07.2016

ReykjavíkTangarhöfða 8Sími: 590 2000

ReykjanesbærNjarðarbraut 9Sími: 420 3330

Opið virka daga frá 9 til 18 og laugardaga frá 12 til 16. Verið velkomin í reynsluakstur.

FJÖLHÆFUR OG SPARSAMUR VINNUFÉLAGI

Opel Vivaro1,6 dísel ECOFLEX notar aðeins 6,1l/100 kmmiðað við blandaðan akstur.

Verð frá 3.379.000 kr. án vsk.

Kynntu þér Opel Vivaro á opel.is eða á benni.is

OPEL VIVARO

Við höfumfjölgað útgáfudögum og kemur blaðið nú út tvisvar í viku.

Ef blaðið barst þér ekki, hafðu þá samband við Póstdreifi ngu sími: 585 8311

rúv15.25 Ekki bara leikur (3:10) (Not Just a Game) Heimildarþáttaröð sem afhjúpar hvernig keppnisíþróttir í Bandaríkjunum hafa ítrekað endurspeglað pólitískan áróður á tuttugustu öld. Einkum hefur orðræða forréttindahópa um málefni s.s. þjóðernishyggju, stríð, kyngervi, kynþætti, samkynhneigð og kapítalisma verið haldið á lofti í heimi íþróttanna. e.15.55 Táknmálsfréttir16.05 EM í frjálsum íþróttum Bein útsending frá Evrópumótinu í frjálsum íþróttum í Amsterdam. Fimm íslenskir íþróttamenn verða meðal keppenda.19.00 Fréttir19.25 Íþróttir (213)19.30 Veður19.40 Augnablik - úr 50 ára sögu sjón-varps (27:50) Litið um öxl yfir 50 ára sögu sjónvarps og fróðleg og skemmtileg augna-blik rifjuð upp með myndefni úr Gullkist-unni. Kynnir er Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.20.00 Popppunktur (2:7) (Moses Hightower og Retro Stefson) Hinn sívinsæli Popppunktur snýr aftur á RÚV í sum-ar. Spurningarnar verða að þessu sinni eingöngu um íslenska popp og rokktónlist. Liðin sem keppa í sumarútgáfu Popppunkts 2016 eru: Grísalappalísa, Reykjavíkurdætur, Moses Hightower, Retro Stefson, FM Belfast, Boogie Trouble, Amabadama og Agent Fresco. Stjórnendur eru eins og áður þeir Felix Bergsson og Gunnar Lárus Hjálmars-son. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.21.15 Miranda (3:6) Gamanþáttaröð frá BBC um Miröndu sem er seinheppin og klaufaleg í samskiptum við annað fólk. Aðalleikarar: Miranda Hart, Patricia Hodge og Tom Ellis.21.50 Skarpsýn skötuhjú (4:6) (Partners in Crime) Breskur spennumyndaflokkur byggður á sögum Aghötu Christie. Hjónin Tommy og Tuppence elta uppi njósnara í Lundúnum á sjötta áratugnum. Það reynist hjónunum erfiðara að segja skilið við heim njósna og kalds stríðs en þau nokkurn tíma óraði fyrir. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna.22.45 Devils Dust (1:2) (Dauðarykið) Spennumynd í tveimur hlutum byggð á raunverulegum atburðum. Upp kemst að asbest samsteypa í Ástralíu hafi vitað af skaðlegum áhrifum efnisins og þannig borið ábyrgð á milljónum dauðsfalla. Aðalhlutverk: Anthony Heyes, Don Hany og Ewen Leslie. Leikstjóri: Jessica Hobbs. Atriði

í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.00.15 Hinterland (4:4) Velski rann-sóknarlögreglumaðurinn Tom Mathias berst við eigin djöfla samhliða því sem hann rannsakar snúnar morðgátur. Aðalhlutverk: Richard Harrington, Mali Harries og Hannah Daniel. Atriði í myndinni eru ekki við hæfi barna. e.01.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok (87)

sjónvarp símans08:00 Rules of Engagement (13:24)08:20 Dr. Phil09:00 America's Next Top Model (7:16)09:45 Hotel Hell (6:6)10:30 Pepsi MAX tónlist12:10 EM 2016 á 30 mínútum (22:23)Skemmtilegur þáttur þar sem farið er yfir allt það helsta á EM 2016. 12:45 The Biggest Loser - Ísland (2:11)Þriðja þáttaröðin af Biggest Loser Ísland. 13:45 Dr. Phil14:25 The Millers (11:23)14:45 The Odd Couple (2:13)Glæný gamanþáttaröð sem slegið hefur í gegn í bandarísku sjónvarpi. 15:05 Jane the Virgin (2:22) Við höldum áfram að fylgjast með Jane sem varð óvart ólétt eftir frjósemisaðgerð sem var aldrei ætluð henni. 15:50 The Good Wife (1:22) Bandarísk þáttaröð með Julianna Margulies í aðal-hlutverki. 16:35 The Tonight Show with Jimmy Fallon17:15 The Late Late Show with James Corden17:55 Dr. Phil18:35 Everybody Loves Raymond (5:25)18:55 King of Queens (7:25)19:20 How I Met Your Mother (15:24)19:45 Korter í kvöldmat (6:12) Ástríðu-kokkurinn Óskar Finnsson kennir Íslendingum að elda bragðgóðan kvöldmat á auðveldan og hagkvæman máta. 19:50 America's Funniest Home Videos (35:44)20:15 Along Came Polly Rómantísk gaman-mynd með Ben Stiller og Jennifer Aniston í aðalhlutverkum.21:45 Second Chance (6:11) Spennandi þáttaröð um Jimmy Ptritchard, fyrrum lög-reglustjóra sem er með ýmislegt misjafnt á samviskunni. 22:30 The Tonight Show with Jimmy Fallon23:10 The Late Late Show with James Corden

23:50 Code Black (11:18) Dramatísk þátta-röð sem gerist á bráðamóttöku sjúkrahúss í Los Angeles. 00:35 Penny Dreadful (6:10)01:20 House of Lies (10:12)01:50 Zoo (13:13) Spennuþáttaröð sem byggð er á metsölubók eftir James Patter-son.02:35 Second Chance (6:11) Spennandi þáttaröð um Jimmy Ptritchard, fyrrum lög-reglustjóra sem er með ýmislegt misjafnt á samviskunni. 03:20 The Tonight Show with Jimmy Fallon04:00 The Late Late Show with James Corden04:40 Pepsi MAX tónlist

Stöð 218:30 Fréttir Stöðvar 218:50 Íþróttir

Hringbraut20:00 Heimilið Fjölbreyttur þáttur um neytendamál, fasteignir, viðhald, heimil-isrekstur og húsráð. Umsjón: Sigmundur Ernir Rúnarsson21:00 Skúrinn Lifandi þættir og líf og yndi bíladellukarla. Umsjón: Jóhannes Bachmann21:30 Kokkasögur Kokkasögur með Gissa er spjallþáttur á léttum nótum með sögum úr veitingageiranum og matvælaiðnaðinum - Kokkanámið, kokkapólitíkin, áskoranir og staðreyndir tengdar faginu. Umsjón: Gissur Guðmundsson22:00 Lífið og Grillspaðinn Magasínþáttur Hringbrautar. Mannlífið, matur, heilsa, kúltúr, útivist, kynningar og fleira.22:30 Fólk með Sirrý Góðir gestir koma í mannlegt spjall hjá Sirrý. Umsjón: Sigríður Arnardóttir23:00 Lífið og Borðleggjandi með Sirrý Magasínþáttur Hringbrautar. Mannlífið, matur, heilsa, kúltúr, útivist, kynningar og fleira.23:30 Kvikan Fréttaskýringaþáttur um áhugaverð þjóðmál. Umsjón: Björn Þor-láksson

N419:30 Föstudagsþáttur Hilda Jana fær til sín góða gestiDagskrá N4 er endurtekin allan sólar-hringinn um helgar.

Út fyrir þægindarammann með PollySjónvarp Símans Along Came Polly föstudag klukkan 20.15.

Stórskemmtileg gamanmynd með Ben Stiller og Jennifer Aniston í aðalhlutverkum. Rueben Feffer er lítið fyrir það að taka áhættu í lífinu eða bregða sér út fyrir þægindarammann á nokkurn hátt. Líf hans er í föstum skorðum þegar eiginkona hans heldur framhjá honum og kollvarpar tilveru hans. Rueben er í öngum sínum þegar hin eldhressa Polly verður á vegi hans og fær hann til þess að sjá lífið á nýjan hátt.

Popppunktur snýr afturRÚV Popppunktur föstudag klukkan 20.

Hinn sívinsæli spurningaþáttur Popppunktur snýr aftur á RÚV í sumar, mörgum eflaust til mikillar gleði. Að þessu sinni snúa spurningarn-ar aðeins að íslenskri rokk- og popptónlist. Hljómsveitir sem við munum sjá í keppnisskapi í sumar eru meðal annars Amabadama, Agent Fresco, Reykjavíkurdætur, FM Belfast, Retro Stefson og fleiri góðar. Þáttastjórn-endur eru eins og áður, þeir Felix Bergson og Dr. Gunni.

Johnny Depp í tímaþröngNetflix Nick of Time.

Hörku-spennandi mynd frá árinu 1995 með Johnny Depp í aðalhlutverki. Depp leikur Gene Watson, einstæðan og rólyndan föður, sem skyndilega lendir í klóm glæpa-manna sem gefa honum 80 mínútur til þess að drepa ríkisstjórann í Kaliforníu ella drepa þeir dóttur hans. Með önnur aðalhlutverk fara Christopher Walken, Roma Maffia og Peter Strauss.

…sjónvarp 16 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016

Page 17: 08 07 2016 amk

„Ég er voða löt við það að horfa á sjónvarp og á rosa erfitt með að halda athygli út þátt, sérstak-lega með síma í hendi þar sem ég er kannski aðeins of háð sam-félagsmiðlum. Ég ætti allavega að vera duglegri að fylgjast með sjónvarpsfréttum og svoleiðis. Ég er þó búin að horfa á alla fót-boltaleikina hjá íslensku strák-unum, líkt og 99% af íslensku þjóðinni, með ágætis einbeitingu og miklu fjöri. Ég toppaði það svo með því að fara á Ísland-Frakk-

land leikinn í París síðastliðinn sunnudag.

Þó ég horfi lítið á sjónvarp er ég með Netflix í tölvunni og er núna komin langleiðina með nýj-ustu seríu af Orange is the New Black. Ég dýrka þá! Netflix býður líka upp á flott úrval af heimildar-myndum. Síðasta heimildamynd sem ég sá heitir Hot Girls Wanted og ég mæli eindregið með henni. Hún er mjög átakanleg og sorgleg en mjög mikilvæg að sjá.

Svo finnst mér ótrúlega gaman að fara í bíó, þó það sé kominn dágóð-ur tími síðan ég sá einhverja stór-mynd. Fór reyndar á Finding Dory um daginn og fannst hún æði.“

SófakartaflanDóra Júlía Agnarsdóttir

Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is

ER MYNDAVÉLIN ÍÞYNGJANDI?Lausnir frá Peak Design gera það ánægjulegt að ferðast með myndavélina, hvort sem það er innan borga eða í óbyggðum

EVERYDAY MESSENGER TÖSKUR FRÁ PEAK DESIGN

Ánægð með heimildarmyndirnar á Netflix

Gamanþáttaröð sem slegið hefur í gegnSjónvarp Símans The Odd Couple föstudag klukkan 14.45.

Gamanþáttaröð sem sló í gegn í bandarísku sjónvarpi á síðasta ári og enginn aðdáandi Matthew Perry ætti að láta framhjá sér fara. Felix og Oscar eru gamlir skólafélagar sem nú eru fráskildir og ákveða að fara að leigja saman – þrátt fyrir að vera algjörar andstæður. Hér er um að ræða fyrstu seríu en von er á þeirri þriðju með haustinu.

Seinheppna MirandaRÚV Miranda föstudag klukkan 21.15.

Gamanþáttur frá BBC um Miröndu sem er alveg sérstaklega seinheppin og vandræðaleg í samskiptum við annað fólk, sama hvort það er við hitt kynið, vini sína eða fremur kröfuharða móður hennar. Í aðalhlutverki er grínistinn Miranda Hart en hún er einnig handritshöfundur. Bráð-fyndnir þættir sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Handrit úr smiðju Tina FeyNetflix Mean Girls.

Hressandi og skemmtileg mynd sem ólík er öðrum unglinga-myndum. Gamanleikkonan og rithöfundurinn Tina Fey skrifaði handrit myndarinnar sem segir áhorfandanum strax að hann eigi von á góðu. Kvikmyndin tekur á öllum þeim vandamálum sem unglingar takast á við og allri dramatíkinni sem því fylgir – á bæði gamansaman og alvarlegan hátt. Með aðalhlutverk fara Lindsey Lohan, Rachel McAdams og Amy Poehler.

Mælir með Dóra Júlía eyðir ekki miklum tíma í sófanum en mælir með nýjustu seríu af Orange is the New Black og heimildarmyndinni Hot Girls Wanted. Mynd | Hari

Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðar-erindið. Það er kraftur Guðs sem frelsar hvern þann mann sem trúir...

www.versdagsins.is

…sjónvarp17 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016

Page 18: 08 07 2016 amk

Sundrað svínakjöt er mín þýðing á réttin-um pulled pork, sem flestir vanir grillarar þekkja vel. Og þetta

er ekki flókin uppskrift; það eina sem þarf er tími – en það þarf nóg af honum. Varlega áætlað sex til átta klukkustundir. Þetta er því verkefni fyrir ljúfan helgardag eða þegar maður er í sumarleyfi og vill verja deginum við grillið.

Eftir að kjötið er síðan komið á grillið þarf ekki mikið að hafa fyrir því – í raun bara bíða – og ef sólin skín er það ekki svo slæmt. Maður dútlar eitthvað eða sinnir fjölskyldunni í rólegheitum vitandi að veisla bíður manns.

Það eru nokkrar leiðir í mark við þessa eldamennsku. Í fyrsta lagi má grilla kjötið á gasgrilli við lágan hita – þá þarf að beita ein-hverjum brögðum til að fá reyk-bragðið sem er svo eftirsóknar-vert. Hægt er að nota reykbox með bleyttum viði og skipta nokkrum sinnum um hann yfir daginn, eða nota reykt vatn (liquid smoke) og nudda því inn í kjötið áður en það fer á grillið eða pensla því á undir lok eldamennskunnar. Jafnframt væri hægt að nota reykt salt í grillnuddið. Svo er hægt að elda í reykofni sé hann við höndina. Þá þarf að gæta þess að skammta kol eða við yfir daginn til að halda jöfnu hitastigi. Ætli auðveldast sé ekki að nota kolagrill og raða kolunum upp í snák og bæta nokkrum viðarbútum við til að hafa jafnan reyk allan eldunartím-ann. Niðurstaðan verður dásam-lega ljúffeng!

Fyrir 8-102,2-2,5 kg grísahnakki/ frampartur2 msk jómfrúarolía4 msk grillnudd (heimagert eða keypt)eplaskvetta á brúsa8-10 hamborgara-brauð100 g klettasalat4 msk majónes eða rjómaosturPæklaður rauð-laukurBBQ-grillsósa (heimagerð eða keypt)

Eftir að kjötið er síðan komið

á grillið þarf ekki mikið að hafa fyrir því – í raun bara bíða – og ef sólin skín er það ekki svo slæmt.

Ferðumst saman með IceMaps.com

Með því að samnýta ferðir um landið getur þú sparað pening, kynnst frábæru fólki og verndað umhverfið!

Á IceMaps.com getur þú skoðað ferðir annarra og skráð þína eigin ferð á milli allra helstu staða á Íslandi

Það er auðvelt að deila fari,kynntu þér málið á IceMaps.com

Stolt Suðurríkjanna – „sundrað“ svínakjötRagnar Freyr Ingvarsson, Læknirinn í eldhúsinu, færir okkur uppskrift að sundruðu

svínakjöti eða „pulled pork“ sem er alls ekki svo flókin líkt og margir halda.

1. Skolið og þerrið svínakjötið.2. Nuddið það vandlega með jómfrúar-

olíu og dreifið grillnuddinu jafnt yfir.3. Raðið kolunum upp í snák og kyndið

upp. Þegar grillið er komið í um 135°C er kjötið sett á grillið.

4. Hafið vatnsbakka beint undir kjötinu svo það eldist við óbeinan hita.

5. Eftir fjóra til fimm tíma er kominn myndarlegur „börkur“ á kjötið og efsta lagið farið að rofna lítillega. Þá er eplaskvettunni sprautað jafnt yfir allt kjötið.

6. Vefjið kjötið vandlega inn í álpappír (tvöfalt lag svo það rifni síður) og eldið í tvær til þrjár klukkustundir í viðbót (kjarnhiti 85-90°C).

7. Færið kjötið yfir á stórt fat eða skúffu og rífið það í sundur. Gætið þess þegar þið takið álpappírinn utan af að tapa ekki vökvanum – blandið honum saman við kjötið.

Berið fram í brauði smurðu með majónesi eða rjómaosti og pækluðum rauðlauk, sé hann til, ásamt klettasalati og að sjálfsögðu uppáhalds grillsós-unni ykkar.

Fyrir pæklaða laukinn120 ml sítrónusafi50 ml hvítvínsedik1 tsk sjávarsalt1 tsk óreganó1½ tsk sykur1 stór rauðlaukur

Pæklaður laukur1. Blandið sítrónusafa, ediki, salti og

sykri saman og hrærið vel. Sykurinn og saltið á að leysast upp í vökvan-um.

2. Sneiðið laukinn, losið í sundur og setjið í löginn ásamt óreganói.

3. Sótthreinsið hreina krukku með því að setja hana í 100°C heitan ofn í 10-15 mínútur.

4. Hellið blöndunni í krukkuna og lokið. Látið kólna við herbergishita í nokkr-ar mínútur áður en krukkan er sett í ísskáp. Látið standa í sólarhring áður en laukurinn er notaður.

Geymist í kæli í tvær til þrjár vikur.

Niðurstaðan verður

dásamlega ljúffeng!

…matur 18 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016

Page 19: 08 07 2016 amk
Page 20: 08 07 2016 amk

alla föstudaga og laugardaga

„Það skiptir svo miklu máli að hugsa um fyrirtæki með hjartanu.“Tanja Ýr Ástþórsdóttir í viðtali við amk... á morgun

Samdi lag um framhjáhald SwiftCalvin Harris samdi lag um það hvernig hann telur að Taylor Swift hafi haldið framhjá sér.

Uppselt á tónleika í Kaupmannahöfn

Fyrsta breiðskífa Júníusar Meyvant, Floating Harmonies, kemur út í dag. Platan er gefin út um allan heim en lögð er áhersla á dreifingu um Evrópu. Hljómsveitin er nýkomin heim af Hróarskeldu og stefnir á tónleikaferðalag um Evrópu, nú þegar er uppselt í Kaupmannahöfn. Til gamans má geta að umslag plötunnar er listaverk eftir Unnar Gísla, Júníus Meyvant sjálfan.

Undirbýr Miss Universe

Samfélagsmiðladrottningin Manúela Ósk Harðardóttir, sem var krýnd Ungfrú Ísland árið 2003, stendur nú í ströngu við að undirbúa fegurðarsamkeppnina Miss Universe Iceland sem haldin verður hér á landi í haust. Haldnar voru prufur fyrir áhuga-samar stúlkur í vor og voru nokkr-ar föngulegar stúlkur valdar úr stórum hópi umsækjenda. Þær eru nú í stífum æfingum fyrir keppnina og í vikunni voru þær myndaðar bak og fyrir af fagljós-myndara, en allar fegurðardís-ir verða að eiga góðu möppu af myndum.

Til stóð að Manúela tæki þátt í Miss Universe í kjölfar þess að hún var valin Ungfrú Ísland en hún varð að hverfa frá keppni á lokametrunum vegna veikinda. Nú fær hún tækifæri til að koma að keppninni á annan hátt og láta ljós sitt skína.

Framleiðir sport hárteygjur

Fótboltakappann hjá Breiða-bliki, Atla Sigurjónsson, prýða fallegir ljósir lokkar. Á vellinum notar hann hárteygjur og tók blik-inn nýverið upp á því að fram-leiða sínar eigin teygjur, svokall-aðar Sport Teygjur. Allur ágóði sölunnar rennur til Styrktarfé-lags krabbameinssjúkra barna. Teygjurnar koma tvær í pakka og fást í Jóa útherja og Toppmenn&-Sport. Nú þegar hefur lands-liðskonan Fanndís Friðriksdóttir tryggt sér pakka af teygjunum.

Tónlistarmaðurinn Calvin Harris varð fyrri til að semja lag um sam-bandsslit sín og söngkonunnar Taylor Swift. Að sjálfsögðu fjallar textinn um meint framhjáhald Swift en Harris er sannfærður um að hún hafi verið byrjuð að hitta leikarann Tom Hiddelston áður en þau hættu saman.

Lagið heitir Ole og textinn er skrifaður út frá sjónarhorni Hidd-elton þar sem ekki fer á milli mála

að Harris telur sína fyrrverandi hafa haldið framhjá sér. Það þarf ekkert að lesa á milli línanna og ímyndunaraflið er óþarft. Textinn er eins blátt áfram og hann getur orðið:

„Ég sé það á netinu að þú ert allt í einu byrjuð að haga þér eins og góð stelpa, fara í ferðir með kærastanum þínum og veita hon-um athygli…“ segir meðal annars í textanum. Og hann verður aug-

ljósari: „Þú ert með mig undir dulnefni í símanum þínum, svo þú getir haft samband við mig og sagst hafa farið í gegnum miklar raunir. Skilið hann einan eftir og bókað þér hótelherbergi.“

Harris hefur þó ekki horn síðu Hiddelton, en ljóst er að hann er sár út í Swift. Og hann hefur ítrek-að bent á að ákvörðunin um að fara þessa leið hafi alfarið verið hennar.